Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hilux Diesel Túrbínur
This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristján Arnór Gretarsson 21 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
12.09.2004 at 20:25 #194628
Daginn.
Var að spá hvaða túrbínur menn eru helst að setja á 2,4 disel hiluxa?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
12.09.2004 at 23:48 #505688
sæll
Það eru náttúrulega til orginal túrbínur fyrir 2L-T vélina (sem er nánast eins bara með túrbó) þær virka alveg pottþétt vel, fást uppgerðar hjá Blossa í hafnarfirði. Nema þú viljir kaupa hana nýja á 200 kalla
svo eru þær sem mér finnst einna skemmtilegastar, en það eru túrbínur frá Garrett, þær fást einnig í Blossa ef ég man rétt, og svo líka hjá fyrirtæki sem heitir Túrbó. Kostuðu eitthvað um 80-90 þús nýjar þegar ég skoðaði það síðast.
svo er hægt að fara ódýru leiðinni; ná sér í subaru túrbínu. Það er svoleiðis í bílnum hjá mér, og það virkar alveg. Hef reyndar ekki mælt hana enn, en hún blæs eitthvað og bíllinn virkar alveg ágætlega, og eyðir litlu.
en ég stefni á Garrett, ætla bara að klára þennan súbarú fyrst
En ég er nú samt ekki viss um að ég hefði keypt subaru í hann, fékk bílinn með henni. Hugsa að það sé sniðugra að sleppa milliskrefinu og fara beint í eitthvað alvöru 
vona það þetta hjálpi
luxarakveðjur
Baldur
Þ-455
13.09.2004 at 08:44 #505690Mig minnir að ARB framleiði ágætar bínur. Ef ég man rétt, þá er hefur Benni selt þær.
13.09.2004 at 09:20 #505692Garretinn hvu vera rosalega níceastur.
Sjálfur er ég með upptekna 19 ára gamla Toyota turbínu af 2L-T bíl, keyrða eitthvað yfir 300.000 km. Eftir að sú túrbína fékk 2.5" púst ALVEG upp að túrbínuhúsinu þá virkar hún alveg ágætlega, er að blása einhver 10 pund (8 pund inn á vél, týnir tveimur í millikælinum).
Ætlaði nú aldrei að keyra lengi á henni, enda komin sprunga í afgashúsið. En hún neitar bara að gefast upp, keyrir bara og keyrir, eins og sönn Toyota.Kosturinn við orginal Toyota turbínuna er að hún boltast (nánanast) beint á orginal Toyota pústgrein. Er sjálfur með túrbínu frá 1985 á 1995 vél, með 2000 pústgrein. Eina sem þurfti að gera var að snúa aðeins upp á turbínuna til að fá réttann halla á hana, og smíða nýtt púströr frá henni.
ARB framleiðir turbókit, og notar til þess túrbínur frá hinum ýmsu aðilum, aðalega Garret.
kv
Rúnar.
13.09.2004 at 12:59 #505694já var að spá í T-25 eða T-28 bínum frá Garret, hægt að fá þetta ódýrt úti (eru meðal annars á 200SX og Eclipse turbo sem eru 1800-2000cc bílar)
En hvar er hægt að láta breyta pústgreinini til að herlegheitin passi í?
13.09.2004 at 13:37 #505696það á að vera hægt að fá milli stykki svo garrettinn passi á toyotu pústgreinina, en hvar? Ég myndi allavega prófa að tala við bæði toyota og Túrbó
kv
Baldur
13.09.2004 at 20:58 #505698
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Á handa þér túrbínu úr 2,7 Terrano sama sem nýja
getur fengið hana á góðu verði ef þú hefur áhuga.Valdimar
S:867 – 0643
S:554- 4855
14.09.2004 at 18:23 #505700Ég er með Garret T20 úr 2,2l Benz
Ég þurfti að láta smíða fyrir mig millistykki, sem kostaði 25þ en var illa gert.Ég er að ná 12psi í 2100rpm undir álagi.
Það eina sem ég hef áhyggjur af, er það að túbínan fái ekki nóg smur þegar hún snýst svona mikið á litlum snúning.í "hæga gangi" á 2000rpm fer hún í 3-4psi
Og í keyrslu er hún komin "inn" (2psi) í c.a.1250-1350rpmEn ég er búinn að keyra 10þkm með þetta svona.
kv
Player1
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
