This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Samúel Þór Guðjónsson 14 years, 7 months ago.
-
Topic
-
HF fjarskipti voru í tveim bílum í Stórferðinni. Það var hjá mér TF3IK og Degi Bragasyni TF3DB. Við höfðum oft samand okkar á milli og tölum einnig í menn í byggð, yfirleitt yfir endilangt landið.
Við vorum á 3,637 Mhz (það er ca 30% hærri tíðni en gamla góða Gufan) og notuðum bara venjulegar bílstangir, ég var með gamala Gufunesstöng frá Sigga harðar sem ég breytti og Dagur var með svokallaðan HamStick. Ég þurti aldrei að henda út vír enda skki tími til eða mikil þörf á, bílstöngin virkar svo vel.
Hrafnkell félagi okkar í IRA setti upp hlustunarstöð á HF og varpaði á netið svipað og vefútvarp. Hann er nú búinn að klippa niður helstu samtölin og hægt er að nálgast þau hér. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir framtakið.
Þessi ferð sýnir að vel er mögulegt að halda fjarskiprum góðum um allt land ef allir væru með svona stöðvar og Amatör Rettindi itl að nota þær.
Síðan til að hlusta er: http://he.klaki.net/hlustun/00log.html
Athugið að bíða meða spilarinn hleðst niður, svo er hægt að velja skrá úr listanum og spila.Sömu tækni væri svo hægt að nota til að hlusta á VHF endurvarpana okkar.
Snorri
R16 og TF3IK
You must be logged in to reply to this topic.