This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Hrönn Sigurðardóttir 18 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
16.02.2007 at 21:22 #199705
Við erum að fara á morgun nokkrir Sterar inní setur.
Hef heyrt af heitri laug í nágrenni við Setrið eða við Hjartarfell.Ef einhver hefur trakk af þessari leið væri það vel þegið og eða einhver lýsing á henni, Einnig upplýsingar um áhugaverða staði til að far á í námunda við Setrið.
Ágúst B
netfang jogg@simnet. gsm 8947997 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.02.2007 at 21:42 #580696
4 NAUTÖLDULAUG ( ÓLAFSLAUG ).
G.P.S 6438765-1846200. Í Þjórsárverum. Laugin er staðsett undir Hofsjökli sunnanverðum undir Nauthagajökli. Jeppamenn höfðu byggt upp laug með sandpokum í kringum hita uppsprettu, en í vorleysingum 2003 skolaði henni burt. 2004 var komið fyrir fiskikeri í laugarstað og er hún því nothæf á ný. Aðkoma að lauginni er erfið og er einungis hægt komast þangað á breyttum jeppum að vetri. Eða gangandi að sumri, en það er talinn vafasöm gönguleið og ekki á færi annarra en og vanra göngumanna að ganga þá leið, vegna margra straumþungra jökulfalla. Fleiri laugar og hitasvæði eru í Þjórsárverum og er hægt er að fara inn með Ólafsfelli að vestanverðu. En inn að þeim laugum er um klukkustundar gangur frá Nautöldu skála. Þegar starfsmenn Orkustofnunar unnu þar við rannsóknir á árunum 1970-1974, völdu þeir frekar að nota laugarnar vestan við Ólafsfell, þrátt fyrir erfiðari en í Nautöldulaugina. Einnig eru hita uppsprettur í Sílalækjum. Nánari lýsingu á hitasvæðum í Þjórsárverum er hægt að lesa um í Árbók Útivistar frá 1987 númer 13.
16.02.2007 at 21:51 #580698Þið Steratröllin gætuð tekið krók á ykkur þegar þið eruð að nálgast Nautöldu. Og ekið inn í Jökulkrika. En þar er fallegt. Og lítið lón innst í krikanum og stundum íshellir ofan við lónið. Svo er þið farið inn í Kisubotna. Þá er hægt að aka inn Kisugljúfur. Svo er alltaf spennandi að aka inn í Blautukvíslargljúfur. En það er hægt að gera í leiðinni inn í Nautöldu.
16.02.2007 at 23:07 #580700Þakka þér kærlega fyrir þennan fróðleik Jón, við reynum að finna þessa laug og skoðum svæðið.
kveðja Gústi STERI
16.02.2007 at 23:08 #580702Mér sýnist Ofsi vera orðinn þreyttur á aðgerðarleysi hjálparsveitar 4×4 og vill fá okkur úr bænum.
Strákar og stelpa, takið ykkur stöðu.
LG
16.02.2007 at 23:12 #580704Lúdína ég er að velta fyrir mér… sjá Árborgarmenn um flutning bæði úr bænum og í bæinn…?
Er þetta ekki ákaflega hagkvæmt… s.s. minna slit á legum og þess háttar.
–
kv. stef.
ps. "bara fylgja tækjaslóðinni eftir frænda".
spurt er: hver sagði þetta?
16.02.2007 at 23:26 #580706Greinilegt er að gáfaða fólkið úr litludeildinni er farið að draga sig saman og eru Stebba og MHN farinn að yrkja og semja spurningar í keppnina meistarinn 4×4. Enda hvorugt aldrei átt jeppa.
Við spurningu Stebbu litlu þá vill ég stórlega efast um að þessi spurning hafi nokkru sinni farið í loftið.
Njótið kvöldsins.
LG
16.02.2007 at 23:35 #580708Ekki vera sár Lúddi.
Góðar stundir.
ps: búinn að refsa 46" bíl í dag.
16.02.2007 at 23:37 #580710lúther þú verður að fá þér patrol þá kemstu allt sem þú villt.seldu færibandið!!!!!!!!
16.02.2007 at 23:38 #580712Ég bara roðna við að sjá orðið gáfaður og nafn mitt í sömu setningu… takk.
Og aftur roðna ég þegar ég viðurkenni það hiklaust að ég hef ekki enn átt jeppa sem að hefur verið "fluttur" með gámaflutningabíl í bæinn…
Hins vegar finnst mér ákaflega gott að vita af þér Lúdó (og hjálparsveitinni) því að ég veit að þú ert alltaf boðinn og búinn að koma til hjálpar og kemur ef á þarf að halda…
Lúdína rular.Kv. stef (sem leiðist í bænum og finnst Lúther vera bestur)
16.02.2007 at 23:40 #580714þú hefur ekkert að gera við hjálparsveit ef þú átt ekki jeppa 😉
16.02.2007 at 23:45 #580716Æ já alveg rétt Goggi Karlsdráttur…
ég hélt kannski að ég gæti fengið að vera coari á gámabílnum… ef hann er hvort sem er að fara.
–
kv. stef
16.02.2007 at 23:52 #580718ekki vitlaust
17.02.2007 at 10:25 #580720Hehe ég veit hver sagði þetta
Hvað fær maður í verðlaun fyrir að svara rétt Stefanía ??? Og geturðu ekki sett inn videó af Alvöru jeppum(Ford) í reddingum í seturs ferðinni góðu
???? Kveðja Sæmi
17.02.2007 at 11:53 #580722Verðlaun já…hm ég bíð þér hlut sem er svolítið ofmetinn í dag… heiður.
–
Sæmi þú biður um videó af Alvöru jeppum(Ford) í reddingum í seturs ferðinni …
Það var nú sýnt video á síðasta mánudagsfundi (á miðvikudegi) sem að ég tel nú að hafi verið töluvert photoshopað því þar mátti sjá Ford draga LC80, Ford spila patrol, Ford notaðann í vélsleðaferðir og Ford notaðann til salernisferða í Setrinu.. hm…
Það þarf bara að koma þessu í hýsingu til að setja á netið.kv. Stef.
17.02.2007 at 12:09 #580724Já endilega eða að fá að hitta á þig og skrifa þetta á disk eða eitthvað svoleiðis ?? Við þurfum að eignast þetta action
Fordarnir í HAM :))) kveðja Sæmi og Hrönn
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
