FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Heimsmets tilraun á Suðurskautinu

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Heimsmets tilraun á Suðurskautinu

This topic contains 125 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bjarni Már Gauksson Bjarni Már Gauksson 19 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 22.11.2005 at 15:54 #196692
    Profile photo of
    Anonymous

    Nú ætti að fara að styttast í að sex hjóla Fordinn „Ice Challanger“ (IceCool) komi til Suðurskautsins. Ég rakst á þessa heimasíðu sem fjallar um þennan leiðangur.
    Veit einhver um hvernig gengið hefur hingað til hjá leiðangrinum? Spennandi ferðalag sem verður vonandi hægt að fylgjast með á vefnum.

    ÓE

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 121 through 125 (of 125 total)
← 1 … 6 7
  • Author
    Replies
  • 25.12.2005 at 12:24 #533686
    Profile photo of Friðrik H. Friðriksson
    Friðrik H. Friðriksson
    Participant
    • Umræður: 18
    • Svör: 122

    Gleðilega hátíð félagar!

    Ég tel ákaflega líklegt að ákveðnum reglum sé fylgt við skráningu heimsmeta.
    Án þess að ég þekki Gunna nokkuð þá tel ég með öllu óþarft að vera með einhverjar efasemdir í þessu sambandi.
    Óska því Gunna og jeppamennsku á Íslandi, enn og aftur til hamingju með þetta afrek. Þetta er jú merkur áfangi á annars merkilegri jeppasögu landans.

    Kv, Friðrik
    Ps; hef sjálfur stundað störf þar sem miklar vökur hafa tíðkast, það á þó ekkert skylt við lyfjanotkun af neinu tagi.





    25.12.2005 at 12:40 #533688
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Sælir félagar og gleðileg jól. Ég hef ekki fengið neinar nýjar fregnir af heimkomu Gunna, en eins og Eik bendir á segir Morgunblaðið hálf tólf í kvöld og svo sé ég á Sudurland.net segja þeir snemma á annan í jólum. Miðað við þetta gæti verið að þeir sem vilja taka þátt í heiðursverði þurfi að vera klárir í bátana einhvern tíman í nótt, en ég læt vita hérna ef ég heyri eitthvað nýtt.
    Kv – Skúli
    P.s. Strákar verið ekkert að hafa áhyggjur af þessum efasemdum Hjartar. Hafi hann efasemdir má hann það og hefur rétt á að tjá sig þar um, en við vitum og það liggur nokkuð ljóst að hann er einangraður í þessum málflutningi og hann endurspeglar hvorki sjónarmið klúbbsins, vefsins né félagsmanna 4×4.





    25.12.2005 at 14:06 #533690
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Góðan daginn félagar og gleðilega hátíð.

    Í mínum huga er Gunnar einn af þeim mönnum sem lætur ekki duga að tala um hlutina, heldur framkvæmir að auki. Gunnar er líka sú týpa sem nær sínum takmörkum. Hver man ekki eftir kalli í torfærunni ? Hver man síðan ekki eftir málaferlum sem hann ákvað sjálfur að fara út í, málaferli sem hann náði sínu fram gegn LÍA. Og svo þessir gæsilegu bílar sem hann hefur smíðað og brunar síðan á Suðurpólinn okkur öllum til sóma.

    Þetta gera bara alvöru menn !

    Skrif Hjartar hér á síðunni er honum einum til minnkunar og fróðlegt væri að sjá þennan sama mann standa upp á fundi td hjá 4×4 og leggja til það sama og hann skrifar hér. Guð hjálpi þeim manni við slíkar aðstæður.

    Honum til fróðleiks, þá er það rétt eins og kemur hér fram ofar á þræði, að fyrsti sólarhringurinn er erfiðastur, svo getur maður staðið "vaktina" auðveldlega í tvo – þrjá í viðbót. Þetta þekki ég af eigin raun, er ég starfaði við akstur á flutningabílum hér í denn á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Og ég er ekki einu sinni kaffimaður, hvað þá prófað tópak :o)

    Og ég hvet alla jeppamenn að mæta í kvöld / nótt / fyrramálið til þess að hilla "skipstjórann" er hann mætir á klakann. Okkur munar ekki um það að vaka eina nótt til þess að bíða eftir honum. Þurfum að finna góðan stað til þess, vera með öll ljós kveikt, allar flautur á fullu og fána uppi. Ég mæti og skiptir þá ekki máli, hvar staðsetning er….

    Geri passlega ráð fyrir að sjónvarpstöðvar, blöð og þess háttar apparöt verði á staðnum, þetta er þannig árangur… (Skúli, við jeppamenn treystum á þig í þessu..)

    kv
    Palli





    25.12.2005 at 16:47 #533692
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Sælir
    Ef ekkert fer úrskeiðis lendir kappinn kl. 23.30 í kvöld með flugi frá London. Hugmyndin er að stilla upp jepparöð ofan við Rauðavatn um kl. 1 í nótt en það má búast við að það taki hann allavega einn og hálfan til tvo tíma að komast í gegnum flugstöðina og keyra að Rauðavatni. Við skulum samt gera ráð fyrir að hann verði snöggur í gegn og þau keyra örugglega ekki á neinum hægagangi heim þannig að ég held að við ættum ekki að vera seinni en kl. 1, það er ekkert mál að bíða þar í rólegheitum einhvern tíma. Þegar þau nálgast hringtorgið við Rauðavatn ætlar Sæunn eiginkona Gunna að hringja og láta vita.
    Væri fínt ef þeir sem ætla að mæta sendi mér tölvupóst á skulihs@islandia með bílnúmeri þannig að ég viti eitthvað um það hvað margir koma. Verðum svo með VHF í gangi á rás 51.
    Kv – Skúli
    Smá viðbót, þeir sem eiga fána klúbbsins endilega takið þá. Ég verð með nokkra auka með mér sem er hægt að fá á "sérstöku jólatilboði" ;o)





    27.12.2005 at 20:11 #533694
    Profile photo of Bjarni Már Gauksson
    Bjarni Már Gauksson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 324

    Var að horfa á kastljósið þar var sagt að bíllinn var 7,5 tonn!!!

    ég er bara að spá í hvernig bíl þyrfti til þess að komast þangað á styttri tíma td. 4runner/hilux 44" eða eitthvað sambærilegt að þyngd.

    Gunni var nátturulega með 5 farþega með sér og þurfti þar af leiðandi mikla olíu með sér, 2-3 tonna bíll með tveim mönnum þarf auðvitað mikið minni olíu birgðir og drífur kannski ekkert minna

    smá pæling

    Bjarni





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 121 through 125 (of 125 total)
← 1 … 6 7

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.