FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Heimsmets tilraun á Suðurskautinu

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Heimsmets tilraun á Suðurskautinu

This topic contains 125 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bjarni Már Gauksson Bjarni Már Gauksson 19 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 22.11.2005 at 15:54 #196692
    Profile photo of
    Anonymous

    Nú ætti að fara að styttast í að sex hjóla Fordinn „Ice Challanger“ (IceCool) komi til Suðurskautsins. Ég rakst á þessa heimasíðu sem fjallar um þennan leiðangur.
    Veit einhver um hvernig gengið hefur hingað til hjá leiðangrinum? Spennandi ferðalag sem verður vonandi hægt að fylgjast með á vefnum.

    ÓE

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 125 total)
← 1 … 5 6 7 →
  • Author
    Replies
  • 23.12.2005 at 14:00 #533646
    Profile photo of Þengill Ólafsson
    Þengill Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 48
    • Svör: 611

    Hann getur bara sofið eftir hann deyr!!! (Vona nú samt að það gerist ekki í bráð) 😉

    En ég óska öllu jeppamönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

    Kveðja
    Þengill
    Selfossi





    23.12.2005 at 14:16 #533648
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Bara líka leyfa manninum að komast heim og hitta ástvini sína og slaka aðeins á,síðan rennum við bara í einni bunu með Lögreglufylgd á selfoss og hyllum manninn í sínum heimabæ með lúðrum og flugeldum.
    Kv,Jóhannes





    23.12.2005 at 14:26 #533650
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    …virðist nú eitthvað hafa leiðst þarna niðri frá.

    [i:1lct992z]““Til þess að drepa tímann hefur hann sökkt sér í viðgerðir og viðhald á snjóbílnum,“ segir Sæunn Lúðvíksdóttir, eiginkona Gunnars,“[/i:1lct992z]

    Stolið af sudurland.is.

    kv
    Rúnar.





    23.12.2005 at 14:33 #533652
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég var að spá í þessum manni sem vinnur í heilbrigðisgeiranum er hann skúringamaður eða eitthvað svoleiðis þar. Það hljóta flest allir íslendingar að vita það að menn sem þurfa að vinna td. á sjó eða á vetravertíðum í fiskiþorpi ofl. stöðum að menn hafa vakað oft meira en 3 daga (þó að það þykji kannski ekki eðlilegt) þá gera menn það ef þurfa þykir. Ég hugsa að Jóhannes viti allanvega hvað átt er við
    Til hamingju Gunnar

    Kveðja úr Grindavík
    Agnar S. Agnarsson





    23.12.2005 at 16:37 #533654
    Profile photo of Jónas Hafsteinsson
    Jónas Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 281

    Til hamingju Gunnar og félagar,

    kv. Jónas (frá Selfossi)





    23.12.2005 at 18:13 #533656
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Það er eins og Jóhannes segir það er ekkert mál að vaka 2-4 sólahringa fyrsti er erfiðastur svo kemst maður í eitthverskonar overdrive og orkan virðist endalaus,en í mínu tilviki þá ver lengsta vaka rúmir 4 sólahr en þá gat ég ekki sofnað og þurfti að svæfa mig með lyfjasprautu og eftir 20 tíma svefn var ég fínn en sifjaður og þreyttur í nokkrar vikur á eftir,en á netunum áður fyrr var algengt að vaka 2 sólahringa og sofa svo í 3-5 tíma og svo kom næsta törn, komst allt í vana og þar sem ég veit að Gunnar er gamall netahundur og var þekktur fyrir að vaka mikið þá fer ég fram á að menn séu ekki að láta liggja að því að hann noti lyf til að halda sé vakandi,þessar vökur könnumst við sem vorum á netum fyrir kvótann vel við og notuðum engin lyf
    Kv Klakinn





    23.12.2005 at 18:28 #533658
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Eins og fram hefur komið þá eiga sjómenn það til að vaka þó nokkra tíma og ég efast ekki um að Gunnar hefur farið létt með að vera á ferðinni í þennan tíma en hefur einhver haft einhverjar áreiðanlegar fregnir af þessu hjá honum? Eru þetta kanski bara ágiskanir og vangaveltur sem leiða af sér leiðinlegar getgátur og svona koment sem eiga ekki við rök að styðjast!? Með því að ná 1-2 tíma kríum er hægt að vera ansi lengi að en maður er frekar lengi að ná sér eftir svoleiðis törn en þetta er ekkert mál í þetta stuttan tíma. Til hamingju Gunnar glæsilega gert og ber hróður Íslenskra jeppamanna víða!!!! Jólakveðjur Stefán, Akureyri (20 ár á sjó og þekki vökur!)





    23.12.2005 at 23:00 #533660
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    Ég held að Gunni sé mest spældur yfir því að hafa sofið 1,5 tíma af þessum 70. því að honum hefði örugglega fundist hann vera meiri "heimsmeistari" ef hann hefði ekki sofið smá. en ég segi Gunni þú ert hetja í mínum augum svo til hamingju með árangurinn.
    Kv: Kalli langaraðverðaheimsmeistari.is





    23.12.2005 at 23:08 #533662
    Profile photo of Ingvi Þór Ragnarsson
    Ingvi Þór Ragnarsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 108

    farið á visir.is veljið fm 957.is zuuper simahrekkir og flettið á gunni trukkur, …eða finna [b:14itshp2][url=http://www.fm957.is/template5.asp?pageid=2084:14itshp2]hér[/url:14itshp2][/b:14itshp2] neðar á síðunni "Gunni trukkur" undir "Eldri Zúúber hrekkir"

    snild
    kveðja
    reykur Tacoma





    23.12.2005 at 23:18 #533664
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    er sá skrítni vaknaðu, mér er spurn kannt þú á lyklaborðið, nei nú missti ég mig aðeins en "smókur" ertu ekki bara hress?
    Kv: Kalli Reykkafari.





    23.12.2005 at 23:25 #533666
    Profile photo of Ingvi Þór Ragnarsson
    Ingvi Þór Ragnarsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 108

    var að klára að skreyta jóla og setja undir alla pakkana til TACOMA var þetta ekki góður hrekkur

    kveðja
    reykur





    24.12.2005 at 13:03 #533668
    Profile photo of Hallgrímur Sigurðsson
    Hallgrímur Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 32
    • Svör: 435

    Sælir félagar.
    það veit ég af eigin reynslu (þar sem við Gunni vorun saman á sjó í denn) að Gunni þarf ekki nein lyf til að vaka í nokkra sólahringa og fer létt með það, sefur bara þegar tími er til. Gunni er harður nagli og harðastur við sjálfan sig.
    Svona ferðalag hjá Gunna er svipað og róleg törn á reknetum.
    Ekkert lyfjakjaftæði hér.
    Til hamingju Gunni.
    Þetta er eins og allt sem Gunni tekur sér fyrir hendur, gert með STÆL.

    Kveðja Halli (Dittó)

    es. ef að Gunni er farin að nota lyf til að halda sér vakandi þá ….þá …. er ég hættur að skilja hlutina.





    24.12.2005 at 14:35 #533670
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég skil ekki hvaða feimni það er að athuga bara hvort maðurinn vilji ekki bara fara í lyfjapróf, mér er slétt sama hvað menn eru að rausa hér um að það sé ekkert mál að vaka í 3 sólahringa, það er rétt það er ekkert mál ef menn eru á lyfjum t.d amfetamíni eða cocaine það er hægt að komast í gegn um 3 daga með því að ná kríum af og til en allveg á hreinu þó að hann sé svona æðislegur hann Gunnar þá er hann örugglega ekki ofurmenni. þið sem eruð að tala um að þetta sé ekkert mál ég skora á ykkur að sýna fram á það á einhvern löglegan máta.
    Gleðilega hátið
    Hjörtur





    24.12.2005 at 14:44 #533672
    Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson
    Eiríkur Þór Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 354

    Það er stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 og forráðamönnum þessa vefs til mikils vansa, að hér skuli menn vaða uppi í skjóli nafnleyndar með þann rakalausa rógburð sem hér hefur komið fram. Rógburði í skjóli nafnleyndar á að sjálfsögðu að eyða jafnharðan út af vefnum. Frammistaða Gunnars í þessum leiðangri, undirbúningi hans og smíði bílsins er ekkert annað en afrek. Ég hvet öfundarmenn hans til að sætta sig við þá staðreynd.

    Eiríkur Þór Eiríksson
    Akranesi





    24.12.2005 at 14:48 #533674
    Profile photo of Þorbjörn
    Þorbjörn
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 545

    Frábær árángur hjá Gunnari :)





    24.12.2005 at 14:52 #533676
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég veit ekki til þess að verið sé að skrifa undir nafnleynd, nafn mitt er skráð inn svo og kennitala og ekkert mál að ná í mig, ég er aðeins að benda á það ímestu vinsemd að það sé sjálfssagt að setja Gunnar í lyfjapróf eins og aðra sem gera heimsmet það ætti að mínu viti setja alla akstursíþróttamenn í lyfjapróf þar sem það er allveg vitað að menn geta náð betri árangri á lyfjum.
    Það þarf enga feimni

    Kveðja Hjörtur





    24.12.2005 at 15:09 #533678
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sælir

    Til hamingju Gunnar með þennan frábæra árangur!

    Hjörtur, hefur þú séð mann á amfetamini eða kókaíni? Það hefði ekki nokkur maður getað framkvæmt þennan akstur undir áhrifum slíkra lyfja. Ef að maður tekur örvandi lyf, sama hvað þau heita, þá endast áhrifin ekki næstum allan þennan tíma og þá hefði þurft að innbyrða meira og þá verða menn kolruglaðir í hausnum. Svo hefði líka verið svolítið erfitt að fela svona neyslu frá áhöfninni um borð.

    Miðað við hversu ótrúlega ólíklegt það er að hann hefði getað neytt ólöglegra lyfja í þessari ferð þá koma þessar ábendingar þínar út sem ásakanir, að mínu mati.
    Það er ekki létt að vaka í 3 sólahringa, en ég hef gert það sem og margir aðrir. Fékk mér engin örvandi lyf ekki einu sinni koffein, sem er nú samt löglegt. Ef að mikið liggur við og margt að gera þá helst maður bara einfaldlega vakandi.

    Niðurstaða: Gunnar hefði ekki með nokkru móti getað verið á ólöglegum lyfjum og Hjörtur þú hefðir gott af því að kynnast krefjandi vinnu.

    Kveðja
    Izeman





    24.12.2005 at 15:42 #533680
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt frétt á síðu 2 í mogganum í dag, þá kemur Gunnar til landsins klukkan hálf tólf að kvöldi jóladags. Samkvæmt sömu frétt, þá ók hann sjálfur 60-70% af leiðinni, þannig að hann hefur varla þurft að vaka alveg samfellt í marga sólarhringa.

    -Einar





    24.12.2005 at 15:53 #533682
    Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson
    Eiríkur Þór Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 354

    Hjörtur, vinsamlegast vertu þá maður og settu kennitöluna þína undir póstana þína. Einu póstarnir þínir hér á þessum vef, eru á þessum þræði, og snúa að því að bera róg á ákveðinn mann. Maður spyr hver tilgangurinn sé.





    24.12.2005 at 16:02 #533684
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hjörtur

    Það er ekkert mál að finna sér hvaða kennitölu sem er og skrá sig inn á þennan vef. Eins og hér sést.

    Svona framganga eins og þín hér á þessum þræði er til skammar og ég vona að vefnefnd taki til skítinn eftir þig og eyði þér og þínum skrifum héðan.

    Þetta afrek Gunnars er mikið og merkilegt fyrir flestra hluta sakir annara en þeirra að hann hafi vakað í 3 sólarhringa – slíkt hafa fjölmargir gert og ég er einn þeirra sem hef vakað og ekið jeppa á hálendinu án þess að sofa í slíkan tíma.

    Það eru bara vesalingar sem aldrei hafa gert handtak og þurfa orkudrykki eða eiturlyf til að vaka eina nótt sem láta svona bull frá sér.

    Þú ert þessum vef til Skammar.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 125 total)
← 1 … 5 6 7 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.