FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Heiðarvatn – Þakgil

by Eygló Sesselja Aradóttir

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Heiðarvatn – Þakgil

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Agnar Benónýsson Agnar Benónýsson 13 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.06.2012 at 01:00 #223687
    Profile photo of Eygló Sesselja Aradóttir
    Eygló Sesselja Aradóttir
    Member

    Á einhver track af leiðinni frá Heiðarvatni (norðan Víkur) í Þakgil?

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 11.06.2012 at 07:44 #755019
    Profile photo of Eygló Sesselja Aradóttir
    Eygló Sesselja Aradóttir
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 76

    fann reyndar upplýsingar í Ekið um óbyggðir. Er þar á bls. 176.





    11.06.2012 at 11:09 #755021
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 509

    Á ekki track og þessi leið er auðveldari í hina átti (uppá að rata)

    Hinsvegar er tvennt sem ég vil bend á til að auðvelda þetta.
    Í upphafi ferðu í gegnum bæjarstæði (keyrir milli vélahús og íbúðarhús og bakvið vélarhúsið) við bóndabæ sem heitir held ég Litla-Heiði.
    Þaðan er þetta nokkuð auðvelt fram að Kerlingardalnum. Þar keyrir þú yfir aurana og sést ekkert til vegar í smá stund og hann er væntanlega nokkur hundruð metrum ofar en þar sem þú ferð útá aurana.
    Þegar þú ert búin að finna vegspottann eftir þetta ertu í góðum málum aftur.

    Er nú ekki með tölvuna mína fyrir framan mig en er þetta ekki á garmin kortinu?
    Er nokkuð viss um það.

    Ívar





    12.06.2012 at 14:43 #755023
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Það eru nú orðin alveg 8 ár frá því ég fór þetta, þe frá Þakgili niður að Heiðarvatni. Þá þurftum við nokkrum sinnum að fara yfir nokkuð djúpa ála og aka niður með straumi og ég man ekki betur en að á einum stað hafi verið ómögulegt að komast yfir nema á móti straumi þegar farið er upp á móti og þar var nokkuð djúpt.

    Ég spyr nú bara eins og kjáni, er þetta almennilega fært fyrir venjulegan fjallajeppa í öfuga átt, þe frá Heiðarvatni og upp í Þakgil ?

    ps. ég á track af leiðinni
    agnarben@gmail.com





    12.06.2012 at 17:45 #755025
    Profile photo of Eygló Sesselja Aradóttir
    Eygló Sesselja Aradóttir
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 76

    Sælir, jú þetta ku vera fært Heiðarvatn – Þakgil. Ég var þarna á ferð um síðustu helgi, en sum sé fann ekki nein för eftir að út á Flárnar var komið, nema sem lágu nánast beint norður, og ég dröslaðist það, nánast alveg inn að Heiðargilsfossi ;), sum sé einu gili vestar en rétta leiðin liggur um. Það er lítið í ánum núna þarna (amk. enn sem komið var). Var búin að hafa samband við hann Grétar í Þórisholti sem þekkir þetta landslag eins og hendina á sér og hann telur þetta fært í þessa átt, reyndar svo farið sé rétt með þá sagði hann að þetta væri fært mínum bíl (sem er Landcruiser 70 á 35 " dekkjum) og geri þá ráð fyrir að flestir jeppar kæmust þetta. Það væri fínt að fá track af þessu, það eru nk. punktar í Ekið um óbyggðir reyndar.





    12.06.2012 at 17:46 #755027
    Profile photo of Eygló Sesselja Aradóttir
    Eygló Sesselja Aradóttir
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 76

    til að hnykkja á: Grétar gerði sum sé fyrirvara með vatnsmagn í ánum þarna.





    12.06.2012 at 22:01 #755029
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Ferilinn/ trakki er til í gagnagrunni f4x4 í svæði M. Leiðina er auðveldara að aka frá Þakgili upp á að rata rétta leið, þ.e frá austri. kv JGS





    14.06.2012 at 12:54 #755031
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    [quote="Eygló Aradóttir":1ri9qajg] Það væri fínt að fá track af þessu, það eru nk. punktar í Ekið um óbyggðir reyndar.[/quote:1ri9qajg]

    Sendu email á agnarben@gmail.com og ég sendi þér track-ið um hæl.

    kveðja
    Agnar





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.