FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Haustferð Eyjafjarðardeildar

by Erlingur Harðarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Haustferð Eyjafjarðardeildar

This topic contains 35 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Erlingur Harðarson Erlingur Harðarson 15 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.09.2009 at 20:21 #206356
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant

    Jæja þá er komið að haustferðinni þetta árið en hún verður farin helgina 25-27 september.
    Ákveðið hefur verið að fara Bárðargötu að mestu leiti. Í stuttu máli er áætlað að fara á föstudag í Gæsavötn og gista þar. Á laugardag verður ekið í Jökulheima og síðan í Veiðivötn þar sem verður gist. Sunnudagurinn fer í að koma okkur heim hefðbundna leið yfir Sprengisand. Nánari lýsing er hér, endilega skoðið þetta vel og lesið hvað er í boði. Þetta er spennandi ferð og flokkast klárlega undir „gæðaferðir“.
    Það er nauðsynlegt að skrá sig í ferðina sem fyrst en gjald er 5.000,- á mann, það er gisting fyrir báðar næturnar og matur og meðlæti á laugardagskvöldinu.
    Nú er bara að skrá sig með tölvupósti á netfangið erlingur@unak.is

    Kveðja:
    Erlingur Harðar
    PS: Já og myndirnar úr dagsferðinni eru hér. en ég er ekki búinn að henda gölluðum myndum né skrifa texta við allar myndirnar.

  • Creator
    Topic
Viewing 15 replies - 21 through 35 (of 35 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 18.09.2009 at 16:56 #656658
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Já Stebbi þú ert að missa af góðri ferð,þú verður að vera duglegur að
    klára GMC þegar þú kemur í land svo þú missir ekki af næstu ferð.
    Mér líst vel á að sleppa hvítvíninu fyrir
    bjórinn Erlingur ,þetta er ekki gott hvítvín.

    Hvernig er með fjölda þáttakanda hefur hann breyst ?

    Kv
    Jói Hauks





    18.09.2009 at 18:40 #656660
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Það er e.t.v. óþarfi en það er ætlast til að menn og konur verði mjög vel og snyrtilega búin á laugardagskvöldið, þetta er jú GALA Dinner Það má gjarnan taka Jessicu litlu Simpson sér til fyrirmyndar.
    [img:23mms7gl]http://www.rtvchannel.tv/wp-content/uploads/2009/05/jessica-simpson.jpg[/img:23mms7gl]

    Það er að segja fyrir þá sem þora!!!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    18.09.2009 at 23:13 #656662
    Profile photo of Hjálmar Sigurjón Gunnarsson
    Hjálmar Sigurjón Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 143
    • Svör: 526

    Hei á svona outfit. Hvenar er síðasti skráningaséns? Og hvað þarf maður öflugan bíl í þetta?

    Hilsen Hjalli





    18.09.2009 at 23:49 #656664
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Ef þú hefur þetta allt þarftu ekkert, kemur bara með mér!!!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    20.09.2009 at 11:05 #656666
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Til minnis…





    21.09.2009 at 15:25 #656668
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Já Erlingur það er ekki vanþörfá að minna menn á
    haustferðina.
    Hvernig er það hefur ekkert fjölgað í hópnum
    eða eru allir í sultugerð þessa helgi eða hvað ?

    Kv
    Jói Hauks

    ps.Ætlar engin af Framfirðingum að fara með ?





    21.09.2009 at 17:08 #656670
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Nei enginn skráður af Framfirðingum sem er eðlilegt þar sem þessi ferð er eiginlega bara fyrir "Alvöru jeppa- og menn" Þeir eru allir á þessum Toy jepplingum sem eðlilega er ekki treystandi á fjöll.
    Nei við erum ennþá 12 eða samkvæmt listanum hér að framan.
    Ertu annars búinn að pakka sparifötunum Jói. Ég fór í JMJ og verslaði Tox til að verða sæmilegur til fara, keypti sokka á konuna í leiðinni ([color=#BF0000:n4rh430q]fékk prik fyrir það[/color:n4rh430q]).

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    22.09.2009 at 17:02 #656672
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Jæja, nú lýkur skráningu í haustferðina á morgun miðvikudaginn 23 september klukkan 22:00
    Ef eitthvað hefur breyst hjá þeim sem þegar hafa skráð sig þá er gott að fá upplýsingar um það. Einnig vil ég minna á það að gjaldið er 5.000,- á mann sem þarf að greiða fyrir brottför. Best er að greiða gjaldið þegar við hittumst á föstudaginn á Leirunesti en þaðan verður farið klukkan 17:00 á föstudaginn 25 september.

    Fyrir þá sem ekki hafa skráð sig í ferðina er bara að drífa í því og gleyma Icesave, bankabulli og ríkisstjórninni og fá góða helgi í góðum hóp með góðan mat. Munið bara að hafa slökkt á fréttunum í útvarpinu.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    23.09.2009 at 20:59 #656674
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Kæru félagar

    Nú er hver að verða síðastur til að skrá sig
    í ferðina, Erlingur lokar fyrir skráningu kl.22.00
    í kvöld ef hann verður ekki sofnaður fyrir þann tíma.
    (hann þarf sinn svefn greyið enda orðinn gamall)

    Kv
    Jói Hauks





    23.09.2009 at 21:29 #656676
    Profile photo of Jón Skjöldur Karlsson
    Jón Skjöldur Karlsson
    Member
    • Umræður: 21
    • Svör: 261

    Því miður verð ég að afboða mig vegna óviðráðanlegra orsaka. Vona að þið fáið góða ferð.
    kveðja
    jsk





    23.09.2009 at 22:05 #656678
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Þátttökulisti:
    Erlingur Harðarson = 2
    Björn Pálsson = 2
    Hafþór Jörundsson = 2
    Ólafur Ágúst Pálsson = 2
    Jóhann Hauksson = 2
    Haukur Stefánsson = 1

    11 manns á 6 bílum og veðurspá með besta móti

    kveðja

    Bjössi





    23.09.2009 at 23:28 #656680
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Það er glæsilegt.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    23.09.2009 at 23:36 #656682
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    er hægt að koma með eihverjum í bíl?????? langar með en er að gera við bílinn minn





    28.09.2009 at 11:25 #656684
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Haustferð Eyjafjarðardeildar var farin helgina 25 – 27 september. Þátttaka var með minna móti og aðeins 10 manns á 5 bílum skráðir. Lagt var af stað frá Akureyri á þremur bílum klukkan 17:00, Björn á Landróver, Erlingur á Ford og Haukur á Toyotu en Jói Hauks tafðist og aðeins. Þegar komið var í Fosshól var tekið eldsneyti og síðan ekið inn Bárðardal. Ferðin gekk vel suður fyrir Fossgilsmosa í Bárðardal en þá fór að bera á slyddu. Stuttu síðar var komið vitlaust veður með vindhraða upp á 20 – 25 m/s og úrkomu. Ákveðið var að bíða eftir Jóa Hauks og Ásgeiri syni hans sem voru nokkuð fyrir aftan okkur. Ekki vildi betur til en að bíllinn þeirra bleytti sig í einum læknum og urðum við að snúa við og sækja þá. Jói gerðist farþegi í Ford og Ásgeir fékk far með Landrover. Ferðin gekk hægt enda veður með al versta móti og skyggni ekkert. Fimmti bíllin kom yfir sprengisand að sunnan og gekk ferðin hægt enda náðum við honum við Jónsvað. Svo fór þó að við komumst í Gæsavötn um klukkan 02:15 Var lítið annað gert en að fá sér að borða fyrir háttinn. Mannskapurinn vaknaði frekar seint og var að tínast á fætur um klukkan 10:00. Veðrið var mjög slæmt og ákveðið að breyta ferðaplaninu þar sem við fréttum af því að í Veiðivötnum væri vindhraði um 40 m/s. Við ákváðum því að fara í Réttartorfu og gista þar enda væri von á að veðrið lagaðist fljótlega þegar komið væri á Sprengisandsleið. Um klukkan 11:00 var veður aðeins að ganga niður svo að hörðustu menn ákváðu að fara í gönguferð áður en haldið yrði af stað í Réttartorfu. Eftir um 10 mín. göngu var sama óveðrið komið aftur.
    Lagt var af stað í Réttartorfu um klukkan 14:00 Á ferð okkar frá Gæsavötnum er að helst að segja að hún gekk hægt. Mjög mikill snjór var í slóðinni og skyggni ekkert. Bílar á 38“ áttu fullt í fangi með færið en mun betur gekk að ryðja skaflana á þungum Ford á 44“ dekkjum. Mikill snjór gerði það að verkum að loftinntök stífluðust á Landrover og viftureim á Ford fór út af sporinu. Öllu var þó bjargað og komum við brátt að bílnum sem skilinn var eftir daginn áður. Honum var komið í gang og ferðinni haldið áfram niður Bárðardal áleiðis að vaðinu yfir Skjálfandafljót. Það var svo ekki fyrr en við komum í um 600 m/ys að skyggnið batnaði. Gekk þá ferðin vel yfir fljótið og inn í Réttartorfu en þangað var komið um klukkan 23:00. Þar var síðan slegið upp veislu, grillað, drukkinn bjór, rauðvín og koníak enda veður með besta móti þó að kalt væri. Réttartorfa er eins og við vitum flest einn besti skálinn sem komið er í og fór vel um okkur þar um nóttina.
    Á sunnudagsmorgni var ekið heim á leið um fljótið og að Mýri þar sem veður var stórkostlegt, logn og sólskin. Eftir að hafa pumpað í dekkin, sem voru nánast full úrhleypt eftir ferðina úr Gæsavötnum var ekið niður Bárðardal og að Fosshól þar sem var tekið eldsneyti. Ferðalangar komu síðan til Akureyrir um klukkan 15:00 heldur fyrr en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir.
    Ég vil þakka öllum ferðalöngum fyrir þá frábæru samstöðu sem virðist vera einkenni í ferðum okkar Eyfirðinga. Félagskapurinn þrífst á þessu undarlega jákvæða andrúmslofti og er það ekki síst það sem við sækjumst eftir þegar við ferðumst saman. Það er ekki bara áfangastaðurinn sem ferðirnar snúast um heldur líka góður félagsskapur.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar og Arnfríður Arnardóttir

    PS: Myndir koma síðar.





    28.09.2009 at 21:32 #656686
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Setti inn nokkrar [url=http://myndir.network.is/main.php?g2_itemId=5859:hr63fswh]myndir úr ferðinni[/url:hr63fswh]

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





  • Author
    Replies
Viewing 15 replies - 21 through 35 (of 35 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.