FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Haustferð Eyjafjarðardeildar

by Björn Pálsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Haustferð Eyjafjarðardeildar

This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Valgeir Stefán Sverrisson Valgeir Stefán Sverrisson 16 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.09.2008 at 21:31 #202924
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant

    Haustferð Eyjafjarðardeildar verður farin laugardaginn 27. September. Farið verður um Heljardalsheiði til Skagafjarðar og litið við í Laufskálarétt. Ekið um Skagafjörð og upp í Skiptabakkaskála þar sem gist verður. Á Sunnudegi verður ekið inn á Eyfirðingaleið og stefnan tekin á Laugarfell, eftir stopp þar verður haldið heim á leið.
    Ætlunin er að leggja af stað kl. 10 frá eldsneytisverslun Skeljungs við Hörgárbraut. Áhugasamir vinsamlegast skrái sig á spjallþræðinum eða hringi í:
    Baldur 8620469
    Björn 8626634
    Gísla 8942667

  • Creator
    Topic
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)
  • Author
    Replies
  • 17.09.2008 at 20:09 #629482
    Profile photo of Valgeir Stefán Sverrisson
    Valgeir Stefán Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 278

    ‘Eg er klár . Valli Sverris.





    18.09.2008 at 19:07 #629484
    Profile photo of Jón Albert Oliversson
    Jón Albert Oliversson
    Member
    • Umræður: 2
    • Svör: 20

    ég ætlaði að fara upp úr svarvaðadal fyrir rúmum mánuði síðan.en komst ekki á 38" patrol það er mjög sleipt þarna út af stórum grjótum og stórum lækja sprænu.





    18.09.2008 at 19:07 #629486
    Profile photo of Jón Albert Oliversson
    Jón Albert Oliversson
    Member
    • Umræður: 2
    • Svör: 20

    ég ætlaði að fara upp úr svarvaðadal fyrir rúmum mánuði síðan.en komst ekki á 38" patrol það er mjög sleipt þarna út af stórum grjótum og stórum lækja sprænu.





    19.09.2008 at 22:39 #629488
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Valli
    Bjössi

    og enn er pláss fyrir fleiri

    kv

    Bjössi





    20.09.2008 at 09:08 #629490
    Profile photo of Hilmar Ingimundarson
    Hilmar Ingimundarson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 227

    Ég hef áhuga á að skella mér með er ekki í lagi að taka auka mann með?
    kv Hilmar





    20.09.2008 at 09:15 #629492
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Þetta er alveg snilldar ferða plan hjá ykkur. Mig langar alveg rosalega að koma með en ég veit ekki hvort ég næ mér lausum úr vinnunni. En ég læt vita þegar nær dregur.

    Kv. Pétur





    21.09.2008 at 20:31 #629494
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    3 bílar nú þegar skráðir
    Valli er að rannsaka hversu íllfært er upp Svarfaðardalsmegin

    og enn er pláss fyrir fleiri í ferðina

    kv

    Bjössi





    21.09.2008 at 23:42 #629496
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Haustferðin, ef ég ætti fjallafærann bíl kæmi ég með. Ég væri meira að segja til í að vera farþegi, en ég verð því miður fyrir sunnan þessa helgi.
    Mér finnast undirtektir þó undarlega litlar þar sem þarna er um nokkuð skemmtilega ferð að ræða. Hér er tilvalið tækifæri fyrir alla þá sem langar til að ferðast á jeppunum sínum, nóg er af þeim. Ég vona að ég sé að fara með rétt mál þegar ég segi að það eru allir velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Haustferðin hefur fram til þessa verið vettvangur fyrir nýliða og áhugasama til að kynnast starfsemi klúbbsins. Þið leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér en það hef ég aldrei gert nema einu sinni þegar ég hélt að ég hefði haft rangt fyrir mér!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar

    PS: Vonast til að koma STERKUR inn í nóvember…





    22.09.2008 at 01:35 #629498
    Profile photo of Halldór Helgi Ingvason
    Halldór Helgi Ingvason
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 61

    Já þetta er alveg rosalega spennandi ferð sem þið eruð að skipuleggja þarna. Verst að maður skuli vera á sjó langt norður í höfum og komast ekki með. Það hlýtur að koma að því einhverntíma að maður verði heima þegar að klúbburinn er með ferð.





    22.09.2008 at 13:08 #629500
    Profile photo of Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 446

    Ég lenti þarna í því að skrippla á kúlugrjótinu í þessari brekku, hleipti þá úr niður í 5 pund á 38" sumardekkjunum og þá komumst við ágætlega upp, ég með kamper á pallinum og félagi minn með tjaldvagn aftaní.
    kv, Freyr





    23.09.2008 at 14:53 #629502
    Profile photo of Haukur Stefánsson
    Haukur Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 5

    Haukur St. ætlar að koma með í þessa
    haustferð.





    23.09.2008 at 21:51 #629504
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir félagar.

    Kem með. við verðum tveir eins og málin standa í dag.

    kveðja.
    Elli.





    26.09.2008 at 10:41 #629506
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    ER aðalega að uppfæra þráðinn, eru einhverjir fleiri sem eru á ferðabuxum? Er ekki með bílinn alveg kláran, eða segjum það allavega, en er samt að hugsa um að koma með sem farþegi og við förum heim eftir að Skagafirði nær. Er ekki útlit fyrir smá snjó á leiðinni? Kv Stefán





    26.09.2008 at 12:35 #629508
    Profile photo of Valgeir Stefán Sverrisson
    Valgeir Stefán Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 278

    Sælir .
    Það er einhver smá snjór kominn á Heljuna núna og þá væntanlega eitthvað á Skiptabakkaleið .
    Það er einmitt óvissuþátturinn sem er sem freistar .
    Skömm frá að seigja að vera Svarfdælingur og aldrei farið Helju nema á vélsleða nokkrum sinnum .
    Þetta er grodda leið og gæti orðið eitthvert bras .
    Hvet þá sem fara að vera að sjálfsögðu vel búna eins og alltaf .
    Veit einhver hvort er grillaðstaða í Skiptabakkaskála? Kol eða gas .
    Kv Valli .





    26.09.2008 at 15:43 #629510
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    það er customiserað tunnugrill á staðnum, taka með kol og olíu

    stefnt að brottför frá Shell Hörgárbraut kl 10

    kv
    Bjössi





    26.09.2008 at 18:20 #629512
    Profile photo of Hilmar Ingimundarson
    Hilmar Ingimundarson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 227

    vitiði hvað þetta er langt í kílometrum svona ca?
    kv Hilmar





    26.09.2008 at 21:15 #629514
    Profile photo of Haukur Stefánsson
    Haukur Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 5

    Sælir Piltar. Leið:Atlastaðir í Svarfaðardal-Heljardalsheiði-Kolbeinsdalur-Hálsgróf-Hólar Hjaltadal: 27 km. Þessar upplýsingar hef ég úr korti sem nefnt er "Gönguleiðir í Dalvíkurbyggð"
    Kveðja Há Ess.





    29.09.2008 at 00:13 #629516
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Ég vil þakka ferðafélugum flotta ferð og ekki síður Hóla-Palla og fjölskyldu fyrir frábærar móttökur þegar við komum niður af Heljardalsheiði.

    Bestu kveður,
    Elli.





    29.09.2008 at 01:13 #629518
    Profile photo of Valgeir Stefán Sverrisson
    Valgeir Stefán Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 278

    Já , vil taka undir með síðasta ræðumanni . Þetta var fín ferð og gott að skoða þennan rúnt í vetur , allavega hluta . Veit ekki hvursu Heljan er vænlegur kostur til vetrarferða á jeppa . Helst þá á harða hjarni .
    Skiftabakkaskáli er flott hús sem er í loka frágangi eftir miklar endurbætur . Frábært framtak hjá Skagafjarðardeild .
    Bara takk fyrir mig og sjáumst kát og hress sem fyrst á fjöllum .
    Kv Valli .





  • Author
    Replies
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.