FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hátt bensínverð er að kyrkja þjóðfélagið

by Benedikt Hans Rúnarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Hátt bensínverð er að kyrkja þjóðfélagið

This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 13 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.03.2012 at 22:21 #222839
    Profile photo of Benedikt Hans Rúnarsson
    Benedikt Hans Rúnarsson
    Participant

    Hátt bensínverð er að kyrkja þjóðfélagið

    FÍB og fulltrúar frá bílaklúbbunum BMWkrafti, Íslandrover, Krúser, Live2cruize og MBKÍ komu nýlega saman til fundar til að ræða þróun orkuverðs. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt.

    • Félögin skora á ríkið að lækka álögur sínar á eldsneyti
    • Venjuleg launafjölskylda þarf 260 þúsund krónur í aukalegar tekjur til að mæta auknum eldsneytiskostnaði miðað við óbreytta notkun.
    • Neikvæðustu áhrifin eru á atvinnulífið á landsbyggðinni

    Félögin vara stjórnvöld alvarlega við þeim kyrkingaráhrifum sem sífelld hækkun eldsneytisverðs hefur á allt þjóðfélagið. Með hækkun eldsneytis á heimsmarkaði og stöðugt hærri álögum ríkisins stefnir bensínlítrinn hraðbyri í 300 kr.

    Miklar eldsneytishækkanir frá 2009 hafa dregið úr umferð um allt land. Afleiðingin er samdráttur í viðskiptum, fækkun innlendra ferðamanna og lægra þjónustustig. Fyrir marga er það orðið lúxus að bregða sér bæjarleið.

    Á árunum frá 1997 til 2009 var samanlögð álagning olíufélaga ásamt skattheimtu ríkisins um 140 kr. á lítra að jafnaði, uppreiknað til verðlags í dag. Nú er þessi tala nálægt 160 kr. og aukningin felst alfarið í aukinni skattheimtu. Við bætist gríðarleg hækkun á heimsmarkaði, sem hækkar heildarverð eldsneytis. Fyrir 10 árum kostaði bensínlítrinn tæpar 30 kr. á heimsmarkaði, en nú kostar hann 94 kr. Á árunum 1997 til 2009 kostaði lítrinn af bensíni að jafnaði 178 kr. uppreiknað til verðlags í dag, en nú kostar hann um 255 kr. Um fjórðungur af þessari hækkun er aukin skattheimta ríkisins.

    Venjuleg launafjölskylda þarf að hafa 260 þúsund krónur í aukalegar tekjur á ári til að mæta auknum eldsneytisútgjöldum miðað við óbreytta notkun. Fyrir langflesta er eina ráðið að draga verulega úr samgöngum og nota heimilisbílinn aðeins í það nauðsynlegasta.

    Ljóst er að samdráttur í samgöngum hefur afar neikvæð marföldunaráhrif, fyrst og fremst utan höfuðborgarsvæðisins. Ávinningur ríkisins af bensíntekjum fer minnkandi með minni umferð, þrátt fyrir aukna skattheimtu, en fyrst og fremst tapar ríkissjóður á minnkandi umsvifum í atvinnulífinu.

    Bílafélögin skora á ríkisvaldið að draga úr álögum sínum á eldsneyti til að mæta þessari ógnvænlegu þróun. Lágmark er að ríkið taki ekki til sín meiri tekjur en það hefur að jafnaði fengið í gegnum árin.

  • Creator
    Topic
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)
  • Author
    Replies
  • 07.03.2012 at 23:01 #751529
    Profile photo of Sigurbjörn Vopni Björnsson
    Sigurbjörn Vopni Björnsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 104

    Skemmtilegt (samt ekki) að sjá þetta sett upp í köku. Maður verður bara sár þegar maður les þetta.





    08.03.2012 at 00:25 #751531
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Svo má alveg nefna það, að margir voru sparsamir á akstur áður en þessi alda reið yfir. Fyrir þá sem reiða sig á einkabílinn til dæmis til að koma sér til og frá vinnu eru fáir kostir í stöðunni.
    Sparneytnari bílar(sem jafnan eru nýrri) eru dýrir í afskriftum, þannig að það er ekki hægt að leggja það fram sem töfralausn að fá sér eyðslugrennri bíl, allavega til skammtíma, það tekur töluverðan tíma að fá þannig fjárfestingu til að borga sig.
    Almenningssamgöngur eru ekki heldur upp á marga fiska, sérstaklega þegar litið er á landsbyggðina og jaðarbyggðir höfuðborgarsvæðisins. Það er líka ekki beinlínis ókeypis að taka rútuna + strætó fyrir utan allan tímann sem fer í að möndla sér á áfangastað og aftur heim.
    Ég kaus til dæmis að búa í Vogum á Vatnsleysuströnd fyrir nærri 9 árum síðan. Það er farið að taka verulega í veskið að starfa í Höfðahverfinu í Reykjavík. Fyrir ekki meiri vegalengd en þetta, sem þykir alls ekki mikil víðast hvar annars staðar í okkar heimshluta, er eldsneytiskostnaður orðinn ansi drjúgur hluti tekna.
    Þar komum við að kjarna málsins. Það er ekki hægt að bera saman lítraverð á eldsneyti hér og t.d. í mið-Evrópu þar sem launakjör eru á allt öðrum skala. Fyrir sambærilegt starf í þeim löndum sem okkar ráðamenn helst vilja miða sig við værum við með 50 til 100% hærri laun.

    kv

    Grímur





  • Author
    Replies
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.