Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hásing undir Hilux
This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Eiður Jónsson 15 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.03.2009 at 18:21 #204076
Sælir félagar.
Er með 96 módel af bensín Hilux sem ég er að spá í að setja hásingu undir að framan.
Og þá kemur spurningin, er ekki sama breidd á hásingu undan disel 92 Hilux, ef ekki veit einhver hvað munar miklu.Takk. Jonni
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.03.2009 at 19:31 #644100
Það sárvantar wiki dálk á vefinn. Þessi spurning kemur svo oft upp…
.
Allavegana, svarið er einfalt, Nei. IFS bílarnir eru með sporvídd uppá 58,5" en hásingabílarnir eru 55".
Til þess að ná sömu sporvídd með hásingu, þarftu að gera eftirfarandi:
Nota bremsudiska, bremsudælur og "hubbana" eða nafið eins og það kallast (dótið sem legurnar sitja inní)
Til að dælurnar og diskarnir passi saman þarftu að renna spacer, sem kæmi á milli hubbsins og disksins. Þessi spacer er að mig minnir 16mm.
.
Annað, ef þú ætlar að nota hilux hásingu, þá þarftu að verða þér út um togstöng úr LC70 (kaupir bara stýrisenda uppí toyota og færð stöngina með) og spes arm á hægra liðhúsið sem þú færð hjá honum Árna brynjólfs í Hafnarfirði.
Þessi armur kostar fúlgur fjár en svona er lífið. :/ Einhverjir hafa notað einhverjar grunsamlegar togstangir og sett stýrisenda með auga hægra megin og sett svo stýrisenda í það auga og stöng uppí snekkju.
.
Snekkjan, þú getur notað orginal snekkjuna sem þú ert með, en verður að færa hana eitthvað framar og fá þér arm frá K2 eða [url=http://www.marlincrawler.com/:3akfvzfd]Marlin Crawler[/url:3akfvzfd] því að stýrisendinn er í arminum sjálfum hjá þér, en þarf að vera með gati fyrir stýrisenda.
.
Sjálfsagt þarftu stýrislengingu á snekkjuna, ef þú ætlar ekki að færa framhásinguna meira en 70mm fram. 50 virðist vera standardinn fyrir 38".
.
Vona að þetta hjálpi eitthvað.
kkv, Úlfr (þjáningabróðir)
E-1851
22.03.2009 at 19:51 #644102Ég er í nákvæmlega sama brasi, hvað kallaru snekkju? , og þarf maður að verða sér úti um annan arm á stýrisdæluna til að togstöngin úr LC70 passi?
Er búinn að færa hásinguna um 50mm og lengdin á arminum úr stýrisdælunni virðist sleppa , er það rangt hjá mér?
Kv
Jón Hrafn
22.03.2009 at 20:27 #644104Snekkja: stytting á stýrissnekkja, sama og stýrisvél eða stearing box, stundum kallað stýrismaskína, sem er eiginlega fáránlegt orð, sem og stýrivél finnst mér… heh
.
Svo ætla ég að vona að þú sért ekki með stöng í stýrisdæluna hjá þér… 😀
En nóg af háði og leiðindum.
.
Ef að snekkjan sleppur við þverstífuna þá er það allt í lagi.
Þú þarft enda sem er ekki með stýrisendanum í pitman-arminum, þeas arminum á snekkjunni.
Getur líka látið bora út og setja skrúfaðan kón í arminn, en ég mæli ekki með því.
K2/MC armarnir eru mikið sterkari en hitt draslið.
Armur af snekkju úr LC70 ætti að ganga, en ég mæli frekar með að kaupa bara arm frá K2/MC, þeir passa uppá lengd og eru sterkari og svona…
.
kkv, Úlfr
23.03.2009 at 09:45 #644106Koma úr ennþá grunsamlegri bílum sem heita Toyota Land-Cruiser og báru tegundarheitið 60. Hægt er að kaupa svoleiðis stangir í umboðinu (veit ekki hvort þær passa beint í, breiddarlega séð). Einnig er hægt að kaupa svoleiðis stýrisenda hjá Fjallabílum. Ef menn láta snitta í þetta togstöng þá bendi ég á að veggjarþykktin í orginal togstöng á hilux er 5 eða 6 mm !!!!
Rúnar.
11.05.2009 at 15:34 #644108Erum að setja hásingu að framan á hilux og erum búin að láta gera spacera og bremsudælan komin á, en klossarnir standa uppfyrir diskinn.
Þetta er hásing undan hilux, diskar, klossar og dælur úr 4runner.
Hvernig hafið þið verið að græja svona ?
12.05.2009 at 12:01 #644110Eitthverjar hugmyndir að þessu vandamáli með klossana
12.05.2009 at 12:25 #644112Ég átta mig ekki alveg á vandamálinu.
Ertu að meina að klossarnir hitti ekki á diskinn? eða…
Væri ágætt að fá mynd af þessu ef maður á að átta sig á hvert vandamálið er.
.
kkv, Úlfr
12.05.2009 at 18:00 #644114Dælan/klossarnir þyrftu að færast um 1cm nær öxulmiðjunni til að klossarnir næðu 100% gripi í diskinn, en núna standa klossarnir sirka 1cm upp fyrir diskinn.
12.05.2009 at 23:18 #6441161 sm er kanski svoldið mikið… en er neðri brúnin á klossunum þá 1 sm frá miðjunni á disknum?
15.05.2009 at 02:30 #644118Jæja, hef ekki komist í það að taka mynd af þessu en ef ég á að útskýra þetta nánar.
Ef maður horfir ofaná bremsudæluna, s.s oná pinnana og kíkir á borðann á klossanum.
Borðinn sem á að vera aðeins niður fyrir efri brún á disknum stendur c.a 1cm uppfyrir efri brún á disknum.
Og þar af leiðandi eru stimplarnir ekki fyrir miðjum bremsudisk eins og þeir eiga að vera.
Heldur fyrir ofan miðju, spurningin er sú hvort að dælurnar gangi ekki á milli ?En maður hefur séð marga breyta bílnum hjá sér svona án vandræða.
15.05.2009 at 08:05 #644120Ertu alveg 100% viss um að þú sért með allt rétt?
Þetta hljómar eins og eitthvað sé hreinlega bara rangt í setupinu, ekki eins og það sé hægt að bolta dæluna vitlaust á… >.<
.
kkv, Úlfr
15.05.2009 at 08:42 #644122Getur ekki verið að þú verðir að nota dælurnar af hásingunni til að þetta passi saman.
Hef reyndar aldrei borið það saman hvort þar er munur á dælum á hásingu eða IFS þó ég sé með fullan skúr af þessu.
Bara svona hugdetta.Kv. Smári.
15.05.2009 at 10:02 #644124Kæmi hann dælunum af hásingunni nokkuð við kældu diskana af IFS bílnum? Finnst það hæpið allavega miðað við dótið sem ég er með því diskarnir af hásingunni eru ókældir og mun þynnri en hinir…
18.05.2009 at 22:20 #644126Hmm… Er einmitt í sömu æfingum að röra Hilux og var að tilla bremsudælunum á í dag eftir að hafa skellt speiserunum á diskana. Og viti menn, diskarnir þyrftu að standa um 6mm hærra (þyrftu 12mm stærri radíus). Greinilega sama vandamál.
Eru menn þá að fræsa götin til í dælunum til að síkka þær nær disknum eða?Kv. Sigurþór
18.05.2009 at 23:19 #644128In order to keep the larger 1986+ calipers when doing a solid axle swap on a Pickup/4Runner you need a set of FJ 60 Land Cruiser vented rotors. These rotors also fit 1981-85 Toyota Pickup/4Runner solid front axles when using 86 to 95 IFS style calipers. Simple bolt-on installation. Once rotors are installed, 1986-1995 IFS style front calipers bolt right onto the 1982-1985 solid axle knuckle.
The standard rotors found on 79 to 85 axles is a solid rotor known to warp when used with large tires due to their inability to dissapate heat. The vented
[url=http://www.marlincrawler.com/brake/disk-rotor/brake-rotor-standard:x9zsbw86][b:x9zsbw86]marlincrawler[/b:x9zsbw86][/url:x9zsbw86]
20.05.2009 at 00:19 #644130Og óþarfi að hafa um það fleiri orð! =)
20.05.2009 at 00:41 #644132hvernig spacer léstu smíða.???
kíktu á sky-manufacturing.com
þeir eru með spacera til að breikka hásinguna uppí sömu breidd og afturhásingin.
en þar notaru sömu diska. það er fj-60.getur skoðað þetta hjá þeim
[url=http://www.sky-manufacturing.com/new/detaproduct.php?id=127:23xvhxep][b:23xvhxep]kit[/b:23xvhxep][/url:23xvhxep]
20.05.2009 at 13:12 #644134Sæll, ég smíðaði speiserana bara sjálfur, renndi þá í 17mm þykkt sem staðsetti diskana akkúrat í miðja dælu. En það er svo málið að fá þessa 60 Cruiser diska til að klossarnir taki rétt á diskinum. Þar að auki fær maður aukinn bremsukraft með stærri diskum.
Kv. Sigurþór
20.05.2009 at 13:29 #644136Þessir 60-cruiser diskar, eru þetta ekki bara sömu diskar og komu svo orginal á síðari tíma hásingarhiluxum (sem aldrei komu til kanans)?
Rúnar.
20.05.2009 at 18:57 #644138ég hef aldrei borið 60 crúserinn við hiluxinn, en ég held þetta séu sömu diskarnir.
ég man ekki eftir því að hafa tekið eftir að klossarnir hitti eithvað illa á þetta, eða að þeir séu að skilja óeðlilega mikla brún eftir f. ofann diskinn…
kv.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.