FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hásing að framan

by Gylfi Þór Rögnvaldsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hásing að framan

This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 17 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.02.2008 at 19:45 #201844
    Profile photo of Gylfi Þór Rögnvaldsson
    Gylfi Þór Rögnvaldsson
    Participant

    getur einhver sagt mér kostnað við að setja hásingu að framan á 4runner. hvað þarf að kaupa og hvernig hásing væri heppilegust

    ps einn sem er kominn með leið á þessu Klafa rusli

  • Creator
    Topic
Viewing 1 replies (of 1 total)
  • Author
    Replies
  • 11.02.2008 at 20:07 #613820
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sæll, ég einmitt eyðilagði spindilkúlu í haust og fékk nóg.
    (Það var allt annað hvort eð er ónýtt, ótrúlegt eiginlega að bíllinn skyldi fá skoðun út á þetta svona)
    .
    Allavegana, svona var þetta nokkurnveginn hjá mér:
    .
    Hásing undan LC70: Mismunandi verð en ég fékk mína á 15þús ef mig minnir rétt. Í henni var tiltörulega óslitið 1:4,56 opið drif. Notaði það bara, en ég er á Grútabrennara svo það hentar illa fyrir Bensínhákana. Mæli með 1:5,29 ef þú ert með V6 bílinn bsk.
    .
    Slitfletir hásingar:
    Spindillegur, legubakkar, naffóðringar og pakkdósir í rörið: c.a. 45þús í heildina í Toyota (mæli ekki með að kaupa þetta annarsstaðar.
    .
    Stýrisendana fékk ég frá Stál og stönsum, en ef þú færð þá frá Toyota eru þeir mun dýrari en þú færð tvær millibilsstangir og tvær togstangir með… Kostuðu um 12-15þús allir saman ef mig misminnir ekki.
    .
    Hjóllegur fékk ég frá Fálkanum, en þær fást líka hjá Stál og stönsum. C.a. 12þús.
    .
    Notaði öxlana sem voru í rörinu, enda voru þeir í lagi, tók bara hjöruliðina og þreif þá vel og setti svo vel af feiti í þá.
    .
    Lengja drifskaft: Það var einhverstaðar í kringum 20þúsund, hjá stál og stönsum. Notaði skaftið úr IFS draslinu með 2falda liðnum. Það er mjög gott og tryggir lítinn víbring.
    .
    Stífufóðringar fékk ég hjá stál og stönsum og kostuðu um 10þús kr ef mig misminnir ekki.
    .
    Ég notaði stýrissnekkju úr LC70 og færði rörið framar um c.a. 70mm
    Gormarnir sem urðu fyrir valinu voru svo LC80 gormar.
    Stífuturna og gormaskálar smíðaði ég svo úr 4-8mm stáli, eftir því hvað var til þá stundina. Sennilega er 4-6mm stál alveg nóg í flest af þessu.
    En það þarf einhvern hólk utanum stífufóðringarnar upp við grind. Þarft sennilega að láta renna það fyrir þig.
    .
    Í heildina með öllum tilfæringum, pústfærslum og fleira endaði þetta í einhverjum rúmum 130þús.
    En þá er framlás og drif sem enn á eftir að bætast við ef þú ert í slíkum pælingum.
    Mæli ekki með að fara útí svona æfingar ef maður er blankur eða nískur. 😀
    .
    Þér er svo velkomið að hafa samband og skoða ýmislegt misgáfulegt undir bílnum hjá mér ef þú hefur áhuga. (það var eitt og annað sem ég hefði kannski átt að hugsa aðeins betur útí…)
    .
    Næst í síma 848-2317.
    kkv, Úlfr á Undanfara II
    E-1851





  • Author
    Replies
Viewing 1 replies (of 1 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.