This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Skúli Haukur Skúlason 13 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
16.05.2011 at 19:27 #219039
Nú eru upp kröfur um það að enginn fari inn á miðhálendið nema vera búin að ganga í gegnum sérstakt miðhálendisnámskeið. Hvað finnst mönnum um það. PS þetta er ekki grín ef einhver skildi halda það, þetta er fúlasta alvara.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.05.2011 at 19:35 #730297
Hahahahahahaha….
Gæti reyndar véltrúað VG og Jóhönnu til þess…
16.05.2011 at 19:45 #730299Já, þetta kemur mér ekki á óvart. Svandís Svavarsdóttir er ekki upphafsmaður þessara hugmynda eftir því sem ég held. Man eftir að einn tiltekinn náungi hreyfði þessari hugmynd á fundi með fyrstu hálendisnefndinni. En hverjum sem datt þetta í hug fyrstum, þá er hugmyndafræðin sú að það megi koma í veg fyrir eða draga úr líkum á a) skaða á umhverfi og b) slysum á fólki með svona ráðstöfunum. Í mínum huga er þetta ein leið til að skattleggja ferðir um hálendið, skapa grunn fyrir sektargreiðslum og draga þar með úr því að aðrir fari um hálendið en tilteknir ferðaþjónustuaðilar, sem eru yfirvöldum þóknanlegir.
16.05.2011 at 19:46 #730301Þú hlærð dátt Atli, Held að þú verðir nú fölur í framan þegar þyrlan lendir hjá þér og þú ekki með hálendisskírteinið upp á vasann
16.05.2011 at 19:48 #730303Nú er þessi hugmynd kominn frá Ferðamálaráði. Því segi ég aftur, þetta er ekki grín
16.05.2011 at 20:08 #730305[quote="Ofsi":36bslv8x]Nú er þessi hugmynd kominn frá Ferðamálaráði. Því segi ég aftur, þetta er ekki grín[/quote:36bslv8x]
Það er nú ágætt að það sé vilji til þess fræða, en nær væri að eyða $$ í fræðslu um hálendið frekar heldur en þennan endalausa lögguleik (við borgum þetta hvort sem er á einn vegin eða annan.)
Þetta hljómar eins og peningaplokk.
Afhverju er ég ekki frekar skyldaður á námskeið um umgengi á vatnsverndarsvæðum, svo ég hafi leyfi til að aka yfir Hellisheiðina, þar væri auðvelt fyrir stóra bróður að rukka mig um vegtollinn og sekta mig fyrir að hafa ekki farið á námskeiðið. ..Ekki verra ef sektin myndi samsvara svona eins og einum lágmarksmánaðarlaunum.
…p.s. var að greiða 160.000kr gíróinn fyrir Hörpuna.
16.05.2011 at 20:10 #730307Góðan daginn,
er ekki orðið tímabært að láta í sér heyra.
Gera eitthvað sem skiptir máli eitthvað sem hreyfir við þessu fólki.
Það verður að stoppa þetta lið annars koma bara nýjar hugmyndir daglega og engin góð.
Kveðja Hjörtur og [url=http://www.jakinn.is/skrar/02_JAKINN.JPG:2v9mrldb]JAKINN[/url:2v9mrldb]
16.05.2011 at 21:45 #730309Já svona skattur kemur sér vell fyrir þá sem vilja fá göngubrír yfir þá sem eru að ganga um hálendið á sumrinn , og þurfa ekki fara úr skónum til að vaða ár . Svo leiðis athafnir tefja fyrir fyrir og kjæla mann niður , og valda allskonar óþægindum . Mér finst að þeir sem vilja stunda hálendið , eige að fara í hjarta rangsókn og þolpróf svo aðrar líkamlegar rangsóknir svo þeim sé treistandi að fara á hálendið , og vera með vottor um heilsufarið síðustu 10 mánuði . Þá kannski sleppum við að sækja þetta lið um allt hálendið .
kv,,,, MHN
16.05.2011 at 22:08 #730311Daginn
Alvara eða ekki þá er þetta bráðfyndið. Ég velti fyrir mér hvar mörkin verða, hvort ég þurfi Hálendi 1 til að heimsækja Villa í Möðrudal og fara yfir Fjarðarheiðina eða hvort hálendið verði skilgreint sem holóttur vegur sem er hátt yfir sjávarmál og þ.a.l. gæti Breiðdalsheiðin, sem er á þjóðvegi 1, verið skilgreind sem Hálendi 1.
Þetta eru náttúrulega fáránlegar hugleiðingar, af hverju setja menn þessi fræði ekki í barnaskólana. Þar man ég eftir að hafa setið í allskyns fögum sem hafa aldrei nýst mér nokkurn skapaðann hlut en þar var mér ekki kennt að umgangast mitt eigið land nema að mjög takmörkuðu leyti.
Kv Jón Garðar
16.05.2011 at 23:21 #730313Smalamenn standa þá væntanlega í hópum við "hálendislínuna" í haust og kalla; gibbagibbagibb….?
16.05.2011 at 23:50 #730315
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hahaha !
Ófyndin sem þessi hugmynd er….
þá er ég að reyna að sjá Tungnamenn fyrir mér fara á námskeið til að smala Þjófadalina!!!!
Það eru kannski einhverjir sem geta kennt Lofti í Myrkholti hvernig skal stikla yfir læk… (bráðfyndin pæling finnst mér)Úr hvaða þarmi eru þessar hugmyndir annars dregnar? Það þarf nú að fara að stöðva þetta rugl…
17.05.2011 at 07:16 #730317Þessi hugmynd er reyndar ekki ný af nálinni. Við heyrðum af henni fyrst fyrir nokkrum árum. Hugmyndin hefur t,d dúkkað upp hjá Umhverfisstofnun og fleirum. En veltum frekar fyrir okkur hvernig hún gæti nýst okkur á jákvæðan hátt. Þar að segja ef farið vær mestu öfgaleiðina. Þá tækjum við að sjálfsögðu að okkur að halda þessi námskeið. Og svo myndi draga verulega úr umferð á hálendinu af 101 lopapeisuliði og pakki sem væri eingöngu á breyttum jeppa vegna flottræfilsháttar. Ja hérna hér, nú er maður kominn heilann hring. F4x4 myndir græða heilann helling á námskeiðahaldi
Annars þegar maður veltir fyrir sér þessum málum almennt. Þá er mikil forræðishyggja í gangi víða. Það á ekki eingöngu við hjá ríkisstofnunum þar sem starfsfólkið er að reyna að finna sér eitthvað að gera til þess að drepa tímann. Forræðishyggja sprettur upp út um allt í þjóðfélaginu. Það er t,d ástæðan fyrir því að ekki verður leift að aka yfir gömlu vöðin á Skjálfanda við Gæsavötn í Vatnajökulsgarði.
17.05.2011 at 09:21 #730319Þetta er eiginlega bara drepfyndið, það verður ekki meira um það sagt.
Er þá ekki líka rökrétt að senda alla sem ætla á pöbbarölt eða á skemmtistað á sérstakt "skemmtasér og drykkjunámskeið"?
Það hefur jú reynst mörgum hættulegt að fara niður í bæ á kvöldin um helgar.kv
Rúnar.
17.05.2011 at 09:40 #730321[quote="Ofsi":1nuwcc6e] Forræðishyggja sprettur upp út um allt í þjóðfélaginu. Það er t,d ástæðan fyrir því að ekki verður leift að aka yfir gömlu vöðin á Skjálfanda við Gæsavötn í Vatnajökulsgarði.[/quote:1nuwcc6e]
Ha? Verður það í alvöru bannað útaf því að það gæti verið hættulegt?
17.05.2011 at 10:40 #730323
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
það möppulykt af þessu….. sveimér þá ef það er ekki smá pappakassafnykur líka….
Finnst einhverjum í alvöru ekki nógu mikið traðkað á okkur nú þegar…
17.05.2011 at 11:45 #730325Heyrst hefur að byrgja eigi allar svalir sem ná 2m hæð yfir jarðhæð og þar fyrir ofan. Það er vegna þessa að íþróttamaður sem tók þátt í Olympíu mótinu 2008, stökk yfir handriðið á svölum þar sem hann var eitthvað fúll út í sjálfan sig, fallið var það hátt að hann er ekki meir. það má taka það fram að hann var (er) svartur sem hefur ekkert með málið að gera en gefur til kynna líkur á að hann sé af erlendu bergi brotinn.
Ég var að endurnýja loftloka fyrir loftpúðana, mér finnst að banna ætti loftloka til að koma í veg fyrir að við endum með bilaða loftloka.
kv. vals
17.05.2011 at 21:42 #730327Úr því að umræðan er farin að róast hérna og Ofsi búinn að fá sitt út úr þessu þá er kannski í lagi að blanda sér í umræðuna. Það er rétt hjá Ólsaranum að þetta er ekki ný hugmynd. Hér fyrir allnokkrum árum þegar ég sat í stjórn 4×4 heyrði ég fyrst þessa hugmynd, þá var einn stjórnarmeðlimur með yfirvaraskegg og rottuhúfu sem viðraði það að eitthvað í þessa veru gæti verið sniðugt. Jón einhver … já þekktur fyrir að flækjast allar slóðir hálendisins. Mér fannst hugmyndin býsna róttæk en hann færði nú ýmis rök fyrir henni. Held að hann hafi reyndar heyrt hana einhvers staðar frá þannig að sjálfsagt er ekki rétt að eigna honum höfundarréttinn.
Hins vegar þessi hugmynd sem Ofsi er að vísa í núna gengur að ekki eins langt og það sem þessi mottumeistari var að velta fyrir sér þarna á sínum tíma. Þ.e. hún gengur út á að 4×4 og fleiri félög standi fyrir námskeiðum til að kenna nýliðum grundvallaratriðin í ferðamennsku, m.a. varðandi öryggismál og umhverfismál og Ferðamálastofa er tilbúin til að styrkja slíkt námskeiðahald en að öðru leiti verði þau í höndum félaga. Það er hins vegar ekki í pípunum að bannað verði að fara á hálendið ef menn hafi ekki farið á slíkt námskeið. Þetta námskeiðahald hefur verið í umræðu milli formanns 4×4, undirritaðs, framkv. stj. FÍ og starfsmanns Ferðamálastofu. Í þeim hópi er allavega á hreinu að þetta er til þess að auka þekkingu þeirra sem ferðast um hálendið en ekki einhver óraunhæf hugmynd um bönn og reglur. Held að svona námskeiðahald sé nú kannski bara ágætis hugmynd.
Kv – Skúli
17.05.2011 at 22:17 #730329Námskeiðahald fyrir nýliða og byrjendur í ferðamennsku er nú ekkert róttæk hugmynd. Litlanefndin hefur staðið fyrir líkum námskeiðum í nokkur ár í tengslum við ferðir nefndarinnar
Kv. Óli
18.05.2011 at 10:27 #730331Nákvæmlega, ekkert nýtt við það og þar er góður grunnur að byggja á.
Kv – Skúli
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.