FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hættusvæði austan Grímsfjalls

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Hættusvæði austan Grímsfjalls

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Lúther Gestsson Lúther Gestsson 20 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 29.11.2004 at 12:30 #194976
    Profile photo of
    Anonymous

    Í Grímsvatnagosinu myndaðist nýr sigketill nokkurn vegin á leiðinni í Grímsvötn úr austri. Rétt að menn hafi það í huga ef þeir eru þarna á ferðinni. Skv. Magnúsi Tuma hefur kvika gengið þarna upp í gosinu, þar sem jarðhiti gæti ekki myndað svona sigketil á skömmum tíma. Það er líka athyglisvert að þetta er utan við Grímsvatnaöskjuna, en hingað til hefur ekki gosið sunnan við hana svo vitað sé.

    Ég hef ekki hnit ketilsins eða hættusvæðis þarna en staðsetning sést ágætlega á myndinni út frá skálunum sem eru þarna efst á fjallinu.

    Kv – Skúli

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 29.11.2004 at 13:26 #509928
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Er einhver möguleiki að einhver eigi hnit af þeesum katli??

    Enn er það ekki rétt hjá mér Skúli að þetta svæði austan við skálana er erfitt yfirferðar vegna annara katla og sprungna?
    Eða er þetta á svæði sem hefur verið keyrt um undanfarið?

    Allavega er ég með merkt inn á mínu tæki að hættusvæði sé norð austur af skálunum.

    Kveðja
    Lúther





    29.11.2004 at 13:38 #509916
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þessi ketill er suðaustan við skálana á Grímsfjalli. Líklega er hann rétt sunnan við leiðirnar sem mest hafa verið farnar til austurs frá skálunum. Þarna rétt fyrir norðan (í austur frá skálnunum) eru a.m.k tvö [url=http://www.raunvis.hi.is/~mtg/04gv/041107-857mtg.jpg:2qvisxjw]göt[/url:2qvisxjw] sem ná niður úr jöklinum, þar hafa verið sigkatlar síðan eftir gosið í desember 1998, en þeir stækkuðu í gosinu núna. Úr öðrum þeirra virðist reyndar hafa komið smá gos núna.

    -Einar





    29.11.2004 at 15:15 #509918
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    Á heimasíðu Jörfí – í dagbók sem þeir héldu meðan á gosinu stóð (http://www.jorfi.is/04ggos.htm), þar kemur þetta fram:

    "Þó sést að umbrot hafa orðið í Grímsvatnaskarði þar sem lítið gos hefur komið upp úr sigkatli (64°24,75’N, 17°13,85′). Gufumökk leggur upp úr katlinum sem er ílangur austur-vestur. Sprungur gætu leynst víða austan við vötnin en skyggni er lítið niður."

    Spurning hins vegar hversu nákvæm þessi hnit eru?
    Ég setti þetta inn á kort og sýnist þessi punktur nú vera heldur of norðarlega miðað við þessa mynd sem Skúli bendir á.

    Arnór





    29.11.2004 at 15:18 #509920
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    Þetta sést kannski betur á þessari mynd:
    http://www.raunvis.hi.is/~mtg/04gv/041105-129SG.JPG





    29.11.2004 at 15:48 #509922
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Myndin sem Arnór vísar á sýnir "gömlu" katlana, sá nýji sem Skúli var að vara við er alveg syðst (lengst til vinstri) á myndinni. Gróf hnit á honum gætu verið 6424.1 N, 01714.3 V, Þetta er rúmum km sunnan við hina katlana, hefðbundin akstursleið líklega þarna á milli. Magnús Tumi var búinn að teikna þetta inn á kort, hann gæti gefið nákvæmari hnit.

    Það er ekki ólíklegt að þess ketill hafi dýpkað og stækkað síðan myndirnar voru teknar. Samanburðr á mynd frá [url=http://www.raunvis.hi.is/~mtg/04gv/041107-857mtg.jpg:2l3dzhwy]7. nóvember[/url:2l3dzhwy] og [url=http://www.norvol.hi.is/~fredrik/grimsvotngos2004_3.htm:2l3dzhwy]myndum frá 4. nóvember[/url:2l3dzhwy], bendir til þess að katlarnir í suðausthorni Grímsvatnaöskjunnar hafa stækkað verulega á fáeinum dögum eftir að gosinu lauk.

    -Einar





    29.11.2004 at 16:08 #509924
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hér má sjá [url=http://www.raunvis.hi.is/~mtg/04gv/kort.gif:1gbxrl54]kort[/url:1gbxrl54] sem sýnir þetta ágætlega. Skálar JÖRFI eru á Eystri Svíahnúk og rauði hringurinn þar austur af er nýji ketillinn sem gaus í upphafi síðasta goss.

    ÓE





    29.11.2004 at 16:17 #509926
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Rétt sem eik segir, sigketillinn sem ég er að tala um er sunnan við þennan sem Arnór og Óskar eru að vísa á. Annars var ég að tala við Valda rakara og hann er búinn að skoða þetta og segir að hefðbundin leið þarna austurúr (s.s. þegar farið er austur af fjallinu í átt að t.d. Kverkfjöllum ) sé í lagi. Líklega er eins og eik segir leiðin á milli katlanna. Ég myndi þó ekki fara þarna nema í góðu skyggni. Hins vegar nefndi Valdi að maður fer ekki núna ofan í vötnin þarna austan megin þar sem við hlaupið hefur íshellan sigið og því sprungur á bökkunum.

    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.