FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hættusvæði

by Benedikt Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Hættusvæði

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Höskuldur Ólafsson Höskuldur Ólafsson 19 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.02.2006 at 22:54 #197422
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant

    Í ljósi síðustu atburða, slysið á Hofsjökli og velturnar tvær þá held ég að virkilega sé þörf á að koma upp hnitasafni á hættusvæðum.

    Það hefur nokkrum sinnum verið minnst á þetta áður, meira að segja fyrir nokkrum árum en ekkert gerst.

    Ég vona því að stjórn og vefnefnd hafi tök á að koma slíku safni á vefinn og hafa það þannig að félagsmenn geti sett inn sína punkta.

    Benni

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 27.02.2006 at 07:25 #544928
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    svo getur vefnefd sett þetta annasstaðar, muna bara að setja nákvæma lýsingu af svæðinu ef menn geta, tala nú ekki um myndir.





    27.02.2006 at 08:30 #544930
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Sælir félagar. Þetta eru hvorutveggja góðar hugmyndir, en mér var að detta eitt í hug. Nú eru örugglega einhverjir félagar í klúbbnum flugmenn og hafa aðgang að flugvélum. Hvernig væri að þeir leggðu nú öllum lið og tækju myndir af jöklunum og sendu vefnefnd í fullri stærð?
    Þannig væri hægt að koma þeim á netið í fullri upplausn og þannig auðveldara að sjá sprungur og hættusvæði.

    Kv, Keli.





    27.02.2006 at 08:39 #544932
    Profile photo of Arnaldur Sigurðsson
    Arnaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 86

    Í ljósi hörmulegra atburða liðinnar helgar er ljóst að nauðsynlegt er að koma upp samhæfðu safni gps punkta sem ALLIR hafa ókeypis aðgang að. Rétt er að minna á að það er góður siður að deila reynslu sinni með öðrum og söfnun GPS punkta er ekkert annað en reynslusöfnun. Ef menn gætu nálgast safn GPS punkta á einum stað geta menn lagt betur undirbúnir af stað í ferð.

    Kveðja DFNDR





    27.02.2006 at 09:31 #544934
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég tek heilshugar undir þetta með Benna. Ég hef talað fyrir því að settir verði upp linkar fyrir hin ýmsu málefni t.d. tæknisíður fyrir mismunandi bílategundir og annað sem er sérstakt í þessu sporti. Atburðir helgarinnar og vandræði Gísla Þórs vekja þessa umræðu aftur þar sem sýnt þykkir að nauðsynlegt er að koma upp link eða einhvers konar svæði á vefnum, þar sem safnað verði upplýsingum um svæði sem þykja varasöm og/eða beinlínis hættuleg. Ég vil að félagsmenn geri þá kröfu til stjórnar og vefnefndar að setja upp þennan möguleika en hann verður að vera aðgengilegur fyrir menn/konur með lágmarks kunnáttu á tölvum en ekki hugsað út frá tölvunördum. Til að sýna viljann í verki skal ég bjóða mig fram til setu í vefnefnd þar sem ég tel að þetta tæki sem vefurinn er sé mjög mikilvægur til að miðla upplýsingum til félagsmanna.

    kv. vals.





    27.02.2006 at 10:11 #544936
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í [url=http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1187562;gid=2407:loeza340]þessum pistli[/url:loeza340] eru mjög gagnlegar ábendingar frá Oddi Sigurðsyni.

    -Einar





    27.02.2006 at 14:29 #544938
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    ÉG held það væri ekki vitlaust að tala við Háloftakónginn
    hann ÓMAR RAGNARSSON tel að þekki landið okkar
    best úr lofti,og landi þar sína þeir þættir sem hann hefur gert svo var hann með króníska bíladellu og jeppadellu
    landsmenn hafa vanmetð þá þekkingu sem hann hefur.
    Ég tel að hann á meira skilið að 4×4 ætti að gera hann
    að HEIÐURSFÉLAGA….
    p.s. Vona eftir betri tíð
    kv,,, mhn





    27.02.2006 at 16:06 #544940
    Profile photo of Höskuldur Ólafsson
    Höskuldur Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 78

    Það er ekki spurning að það er löngu tímabært að koma upp svona gagnagrunni. Ég get aðstoðað með að útvega flugvél og myndatöku. Annars góð hugmynd með Ómar Ragnarsson ef hann fengist í verkið, það væri náttúrlega ekki hægt að fá betri mann í það.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.