This topic contains 134 replies, has 1 voice, and was last updated by Atli Eggertsson 17 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.01.2007 at 11:40 #199283
Sælir félagar
Stórferð ársins. 44 tommur plús.
5. til 7. janúar
Ágúst Þór Keflavík x 2, LC 80-46″
Villi Grindavík x 2, Ford350-46,
Gundur Garðabæ x 2, LC 80-44″
Jói Gaukur Garðinum x 2, Patrol 44″
Heiðar Keflavík x 2, Scoutrol-44″
TNT Hafnarfirði x 2, LC 80-44,
Benni Akureyri x 2, LC 80-44,
Kristján, Óskar x 2, Suburban-49,
Alli Guðmunds Keflavík x 2, LC 80-44″
Ómar Keflavík x 2, 4Runner-46
Kalli Keflavík x 2, 4Runner-44 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
06.01.2007 at 23:17 #573548
Hvað kom uppá með Ford,vonandi var það ekkert alvarlegt.
Kv
JÞJ
07.01.2007 at 00:56 #573550nei baddi það var engan bláma að sjá og ísinn var 20-40 cm þikkur.ég skal glaður skipta á fordinum aftur:) kv jói
07.01.2007 at 02:06 #573552Maðurinn í Björgunarsveitinni Á Dráttarbílnum á Skilið Thule Fórum með honum að ná í bílinn og að komast á þessum trukk þarna upp eftir hefðu ekki allir getað.
07.01.2007 at 02:41 #573554MMC sagði:
"En þetta hlýtur að vera líka spurning um dekkjastærð inn í formúluna. 3tonn á 31" brjóta væntanlega frekar ís heldur en 3 tonn á 49"."Það má held ég horfa á þetta á tvennan hátt. Annars vegar hvort ísinn þoli þrýstinginn undan hverju hjóli, og hinsvegar hvort hann þoli massan á öllum bílnum.
Þ.e. hvor það brotni undan hjólunum eða hvor það súkki undan öllum bílnum. En maður hefur vissulega séð hvoru tveggja gerast á fjöllum.
En vissulega er líklegra að 49" komist yfir heldur en 31" miðað við sama massa. En þó alltaf spuring hvort ísinn haldi öllum massanum.
Svona sé ég þetta alla vega fyrir mér, en það getur vel verið að þetta sé kolvitlaust hjá mér.
07.01.2007 at 04:20 #573556…heitir Stefán og er jeppamaður mikill og vanur.
Sunnlendingur í húð og hár. 😉
07.01.2007 at 14:49 #573558Af hópnum er þetta að frétta:
TNT er kominn niður í hrauneyjar með einn bilaðan í spotta á eftir sér, gistu í jökulheimum í nótt.
Grímsfjallahópurinn var fyrir ca 30 mínútum í 1600 metrum á niðurleið og gengur mjög vel hjá þeim.
07.01.2007 at 15:56 #573560
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sá hvita patrolinn koma i bæinn a vörubílspalli og mikið hrikalega litur hann illa út þetta er ekkert smá tjón a bilnum og þá veit eg ekkert með vatnstjonið vonandi fæst eikkað bætt….. eigandinn a alla mína samúð
kv Mikki.
07.01.2007 at 16:04 #573562tökum undir það þetta er hrikalega slæmt að sjá á þessum myndum og vonandi fá þær jeppana bætta.
Við vorum að leggja af stað til þeirra með Benna og Luther en svo vorum við látnir vita að það væri búið að ná þeim upp og hættum við því við að fara.Kveðja Sæmi og Hrönn
07.01.2007 at 18:44 #573564Scoutrolinn er kominn í gang, búið að skipta um allar olíur, en ekki var dropi af díesel í tonkunum, bara vatn. Bíllinn er allur vaðandi í dieselolíu að innan, þannig að það er sennilega best að ég fái boddíið frá gauknum, það passa allar festingar.
Kveðja Heiðar
07.01.2007 at 18:45 #573566Það er alltaf leiðnilegt að lenda í svona. Ég lendi í svona fyrir um 12 árum. Þá missti ég bíl niður á leið inní Þórsmörk. Það tók 5 tíma að ná honum upp með traktors gröfu og kostaði það marga mánuði að laga hann. En það er nú ekki það sem ég ætla að skrifa um. Það sem mig langar að vita er það hvort að menn séu með einhverjar töfra lausnir að ná bílum upp úr svona festu. Einu sinni var það að nota dekk til að lyfta honum upp á ísinn nú tala menn um að vera bara með keðjusög og saga bara ísinn. Gaman væri að menn kæmu nú með hinar ýmsu aðfarir við þetta þar sem það skemmir ekkert að skrifa um þær. Þegar ég lendi í þessu þá var maður alveg græn og vissi ekki alveg hvernig maður ætti að gera þetta. Ef maður hefði bara fatað að fá bóndann á næsta bæ strax þá hefði maður sloppið með litlar eða engar skemmtir en í stað var maður að reyna að finna upp hjólið með hinum ýmsum aðferðum sem kostuðu miklar skemmtir á bílnum.
Kv Jón.
07.01.2007 at 18:58 #573568
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sögin gerir pottþétt gagn…. og vinnuvélar…. svo áttir björgunarsveitin Árborg, selfossi einhversskonar gálga til að spila bila beint upp ef eg man rétt……
07.01.2007 at 21:36 #573570bjuggu þeir ekki bara til gálga til að ná snjóbílnum sínum upp þegar hann fór niður um ís inn við jökulheima???
það eru myndir af þessu inná síðunni þeirra http://www.bfa.is
07.01.2007 at 21:37 #573572Sælir félagar
Þá erum við komnir í bæinn af Grímsfjall, þetta var stórferð.
Hugur minn er hjá ykkur Suðurnesjamenn ég fer með ykkur á fjöll hvenær sem er.Takk fyrir mig.
ykkar gundur
07.01.2007 at 22:26 #573574Það er eitt sem er búið að angra mig mikið síðan við drógum Scoutrolinn heim, en það er að á Selfossi stoppaði löggan okkur og hótaði að kæra okkur. Mig fyrir að vera á ljóslausum bíl og björgunarsveitarbílinn fyrir að vera með vinnuljósin á hliðunum og að aftan kveikt til að lýsa mér. Þetta var um 3leytið aðfaranótt laugardags og sáralítil umferð og við sáumst mjög vel með þessu móti og vinnuljósin blinduðu enga umferð. Mér tókst að semja um að ef bíll yrði fyrir aftan okkur þá fengum við að halda áfram, sem var miklu verra því þá hafði ég enga lýsingu nema afturljósin á björgunarsveitarbílnum. Það getur vel verið að við höfum verið eitthvað ólöglegir, en hvar er þetta mannlega. Ég spurði hvort við ættum að nota bláu ljósin, en það máttum við ekki. Það fóru 4 bílar framúr okkur á leið til Reykjavíkur, en við vorum á ca 50 til 60 kmh á leiðinni.
Kv. Heiðar
07.01.2007 at 23:28 #573576
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Jamm þetta er því miður lýsandi fyrir lögregluembættið a selfossi þú ert ekki sá fyrsti sem ekki fær mannlegan skilning…. þeir hugsa bara um að sekta sekta sekta og stór passa sig a að vera ekki liðlegir sama hvad gengur a hja fólki……. sjalfur ber eg mun meiri virðingu fyrir blöndós löggunni enn þessum spjatrungum a selfossi… enda er virðing áunnin!!!!
Kv Mikkjal Agnar
07.01.2007 at 23:30 #573578Þetta hljómar nákvæmlega eins og lögreglan á selfossi.
Þið hafið ekki verið kærðir fyrir utanvegaakstur líka?
.
Ég hef fulla samúð með ykkur. Það er hrikalegt að sjá þetta á myndunum.
.
Kv.
Óskar Andri
08.01.2007 at 09:47 #573580Lögreglan er hvorki betri né verri en önnur lögregla. Í mínum tilfellum þar sem ég hef þurft að notast við þjónustu hennar, þá hef ég fengið hana alveg óskerta og hafa þeir unnið mjög vel með mér.
Eiga þeir því mínar bestu þakkir fyrir það
–
Þeir taka bara utanbæjarmenn því hér á Selfossi er svo friðsælt og öll dýrin í skóginum vinir. Þeir verða að fá einhversstaðar tekjurnar inn og því ekki að ónáða og féflétta utanaðkomandi. Mér finnst það miklu betra því þá láta þeir heimamenn ffrekar í friði..
Enda verða greyjin að hafa eitthvað fyrir stafni !!
Nei nei ég bara mátti til með að commenta smá…
Veit að þeir geta verið ansi öflugir en það má kannski ekki kenna endilega þeim alfarið um það, áttum okkur á því að þeirra yfirmaður er ansi strangur og ákveðinn ….Kveðja
Íris Mjöll sem kemst bráðum á fjöll……
08.01.2007 at 10:53 #573582Það væri vel þegið ef einver er með punkt af þessum stað sem að þessi leiðindar atburður átti sér stað ??
Er á leiðinni í Jökulheima næstu helgi og ég væri alveg til í að sleppa við svona vesen.
kv atli
08.01.2007 at 11:09 #573584Það skiptir engu hvar þessi staður hvað öryggið varðar. Það er vatn í flestum lægðum núna. Hafa varann á, halda sér á hryggjum og fara hægt yfir lægðir. Annars eru örugglega einhverjir sem geta sett hnitin inn fyrir forvitna.
BO
08.01.2007 at 11:15 #573586Svona ábyrgðarlaust, þá er spáð hátt í 20 stiga frosti á hálendinu út vikuna, þannig að um næstu helgi ættu þessir pollar flestir að vera ornir vel bílheldir.
kv
Rúnar.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.