This topic contains 134 replies, has 1 voice, and was last updated by Atli Eggertsson 18 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.01.2007 at 11:40 #199283
Sælir félagar
Stórferð ársins. 44 tommur plús.
5. til 7. janúar
Ágúst Þór Keflavík x 2, LC 80-46″
Villi Grindavík x 2, Ford350-46,
Gundur Garðabæ x 2, LC 80-44″
Jói Gaukur Garðinum x 2, Patrol 44″
Heiðar Keflavík x 2, Scoutrol-44″
TNT Hafnarfirði x 2, LC 80-44,
Benni Akureyri x 2, LC 80-44,
Kristján, Óskar x 2, Suburban-49,
Alli Guðmunds Keflavík x 2, LC 80-44″
Ómar Keflavík x 2, 4Runner-46
Kalli Keflavík x 2, 4Runner-44 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
05.01.2007 at 18:04 #573468
af fjöllum, en tveir jeppana í ferðinni brotnuðu niður um ís og eru þeir vélavana og er verið að bjarga þeim til byggða. Hugurinn er með ykkur stráka
05.01.2007 at 18:21 #573470Er eitthvað að gerast hjá þeim? Eru eninhver slys eða hvað, veit einhver eitthvað meira?
Kveðja:
Erlingur Harðar
05.01.2007 at 18:29 #57347205.01.2007 at 18:31 #573474Annar bíllinn er kominn upp. En framhásingin rifnaði undan í látunum. Verið er að reyna að ná seinni bílnum upp.
05.01.2007 at 18:34 #573476er ekki þarna að gerast þam sem að menn voru hræddir um ? að jepparnir hjá okkur eru orðnir það þungir að erfitt reynist að hjálpa þegar eitthvað kemur uppá ? en vonandi bjargast þetta allt, einhverjar fréttir hvaða bílar þetta voru ?
05.01.2007 at 19:46 #573478Gott að enginn slasaðist,vonandi nást bílarnir sem minnst skemmdir eftir þetta óhapp.
Kveðja JÞJ
05.01.2007 at 19:56 #573480það er búið að ná bílunum upp við benni lúther og sæmi vorum lagðir af stað á 3 stórum fordum þegar við fengum þær fréttir að það væri búið að bjarga af landsbjörg
05.01.2007 at 20:42 #573482…. að 2 Patrolar hafi sokkið. Seinni bíllinn virðist minna skemmdur. Farið er að snjóa þannig að krapinn sést illa.
Benni er snúinn við en a.m.k. 3 aðrir hafa lagt af stað heim. Hef grun um að hann vilji heldur koma heim á heilum bíl en að standa frammi fyrir mörg hundruð þúsunda tjóni ef eitthvað fer úrskeiðis. Alla vegana er ég ekki tilbúin að borga það. Vatnajökull fer ekkert á næstunni og alltaf hægt að fara seinna.
Þegar ég talaði við hann fyrir nokkrum mínútum þá var hópurinn sem hélt áfram aftur kominn í einhvers konar vandræði.Ég bara spyr, er það þess virði að leggja bílinn sinn undir í svona kringumstæðum? Mörgum manninum finnst áræðanlega gaman að dytta að bílnum sínum en ætli þeim finnist jafngaman að horfa á toppinn á honum standa upp úr vatni? Hvað þá þegar hann kemur í henglum upp úr. Ef ég svara fyrir sjálfa mig þá finnst mér það ekki þess virði, en það er bara mín skoðun. Kannski finnst einhverjum spennandi að opna hurðina og sjá vatnsflauminn renna út úr djásninu, svona svipað eins og þegar við sem krakkar óðum upp fyrir brúnina á stígvélunum og horfðum hreykin á gusuna sem kom úr stíbbunum þegar við hvolfdum úr þeim.
Ég vona að þessi hópur sem hélt áfram komist á leiðarenda stórslysalaust og án stórtjóna.
Kv.
Alma
Bennafrú
05.01.2007 at 20:47 #573484Er þá ekki spurning að kyngja stoltinu og koma heilir heim, líka jeppana…
05.01.2007 at 20:52 #573486Hvað fóru margir í þessa ferð ? Ef maður kíkir á listann hans Gunds þá eru það 5 bílar sem hyggjast halda áfram …
Það kemur ekki á óvart að það hafi verið Patrol-ar sem fóru niður – enda örugglega fyrstu bílar 😮Lán í óláni að enginn er slasaður á líkama – þó eins og Bennafrú bendir á – að þá er sálartetrið ábyggilega ekki í góðu standi og vonandi að þetta séu ekki Mjög mörg kvöld í viðgerðir….
Siggi
05.01.2007 at 21:38 #573488Hver er að leggja bílin sinn undir hvaða aðstæður ???
05.01.2007 at 22:48 #573490Ef þú, Hlynur, værir í ferð þar sem væri búið t.d. að drekkja tveimur bílum og svæðið sem um væri farið ekki mjög bílvænt (vatn, krapi), værir þú tilbúinn að halda áfram út í óvissuna og leggja þar með bílinn þinn undir? Notabene, það er ekki verið að berjast fyrir því að komast heim fyrir mánudagsmorgun í þessu tilfelli, aðeins fyrsti dagur af þremur.
Ég er bara að velta þessu upp fyrir alla til að vega og meta, allir geta lent í svona aðstæðum.
Spurningin sem velt er upp gæti líka hljóðað svona: Hversu vænt þykir þér um jeppann þinn, ágæti jeppamaður?
Sumum finnst þetta allt í lagi og elska svona "bras" en persónulega finnst mér skemmtilegra þegar allir koma heilir heim og hafa átt góða ferð.
05.01.2007 at 22:50 #573492
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Var í veiðivötnum um áramótin og sökkti landrover sem ég á rétt hjá sandá. vatnið var 120cm á dýft miðað við hurðarhúna á robbanum og voru þeir á kafi. þvímiður þá sveik snorkelið og vatn komst inná mótor en sem betur fer skemmdist hann ekki. (þetta var á föstudaginn 29 des) á Gamlársdag ætluðum við inn í Jökulheima og allt gekk vel en þegar að við áttum tvo km eftir inn í skála þá sökktum við 44" willis held að það sé 150 upp á frambretti allanvega standa dekkin að ég held 110cm. ekkert skemmdist í willisnum. fyrsta myndin er af landrover en hinar eru af willis 2km frá Jökulheimum.
[img:37pzv89t]http://www.islandia.is/jeppar/ljosmyndakeppni/001.jpg[/img:37pzv89t]
[img:37pzv89t]http://www.islandia.is/jeppar/ljosmyndakeppni/002.jpg[/img:37pzv89t]
[img:37pzv89t]http://www.islandia.is/jeppar/ljosmyndakeppni/003.jpg[/img:37pzv89t]
06.01.2007 at 00:08 #573494jæja þá er maður kominn heim en ekki þessi blessaði patrol en é þakka fyrir alla þá hjálp sem ég er búin að fá í dag þetta er eitthvað sem engin vill lenda í en slysin gera ekki boð á undan sér kv jói sem á handónýtan patrol
06.01.2007 at 00:27 #573496Jói varstu með utanvegakaskó á honum??? hef aldrei viljað vera að kaupa þessa tryggingu á mína bíla fyrr en ég talaði við sölufulltrúa frá vís um daginn sem fullvissaði mig um að bíllinn væri tryggður allstaðar utanvega og jafnvel á leið yfir á … ef hann er utanvegakaskóaður hjá þér þá ættirðu að vera í betri málum… vonandi allavega.
06.01.2007 at 00:33 #573498tryggingafélaganna, nema þeir sýni skilmálana á prenti. Þeir borga EKKI vatnstjón nema jeppinn velti í á.
06.01.2007 at 00:36 #573500en að bíða með að taka hann upp þar til hann hefur rúllað hring.
06.01.2007 at 00:47 #573502nei ég var ekki með hann í utanvegarkaskó en sem betur fer sluppu bara allir ómeiddir. Þetta er bara mál sem þarf að skoða aðeins betur bíllinn er ónýtur. En það eru komnar inn myndir.
06.01.2007 at 00:59 #573504Hvernig er ástandið á Scoutinum eða er það ekki annars hann sem er á kafi fyrir framan?
06.01.2007 at 01:09 #573506Hann er komin uppúr ekki mjög mikið skemdur er verið að draga hann í bæinn
kveðja jói
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
