FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

grill i mörkinni

by Davíð Karl Davíðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › grill i mörkinni

This topic contains 20 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of HELGI JÓNAS HELGASSON HELGI JÓNAS HELGASSON 19 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 28.06.2006 at 08:40 #198164
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant

    sælir félagar…

    nú eru nokkur ár liðin síðan ég fór inn í þórsmörk eru ekki alveg örugglega einhver tunnugrill eða eitthvað sem maður getur grillað steikurnar á er nefnilega að fara næstu helgi. En í öðru eru margir að fara næstu helgi í þórsmörk???

    Kv Davíð Karl

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 20 total)
  • Author
    Replies
  • 28.06.2006 at 17:29 #555378
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Það eru að minnsta kosti grillborð í Básum, sem eru auðvitað ekki í Þórsmörk heldur Goðalandi. Ef margmennt er á svæðinu borgar sig að vera tímalega í að kveikja upp til að komast að.

    kv.
    EE.





    29.06.2006 at 10:36 #555380
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Miklu betra að skella sér yfir í langadal- ekki þessi stappa sem er alltaf í básum.





    29.06.2006 at 12:41 #555382
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    málinu varð reddað tókum 200 lítra olíutunnu skárum hana settum hjarir og haldfang loftgat og alles og komnir með okkar eigin ferða tunnugrill en segiði mér ég er að fara með 11 – 13 manna hóp allt ungt fólk svo það verður eitthvað um drykkju gítarspil og hver veit jafnvel bílakaup ef maður verður jafn harður og benni:D hvort er þá betra að vera í básum eða langadal nú erum við 3 á 38" og einn á 35" ættum við ekki alveg að komast klakklaust yfir krossá??? nú þekki ég ekki krossá nógu vel keyrði sjálfur síðast yfir hana þegar ég var 11 ára endilega öll comment vel þegin

    Kv Davíð Karl





    29.06.2006 at 14:07 #555384
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það á ekki að vera nokkur vandi að komast klakklaust yfir krossá nema þegar hún er í sérlega miklum vexti. Fer mjög oft þarna inneftir og þá alltaf í langadalinn. Hef aldrei lent í nokkrum vanda, bara velja gott vað. Með ofureinfölduðum hætti mætti segja að ef þú velur vað þar sem áin er breið, bakkarnir ekki mjög háir, ekur skáhalt undan straumi og ert í 1. í láa þá þarftu að vera óheppin til að eitthvað klikki.

    Freyr





    29.06.2006 at 14:11 #555386
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Síðan ef menn eru smeykir þá eru skálaverðirnir alltaf reiðubúnir að leiðbeina mönnum yfir. Annaðhvort hægt að hringja í þá í síma 893-1191 eða flauta við ánna.

    Freyr





    29.06.2006 at 14:18 #555388
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Taktu vöðlurnar með og álkarlinn og vaddu ánna, ef þú kemst yfir þá kemstu 38“ yfir.
    .
    kv. vals.





    29.06.2006 at 17:28 #555390
    Profile photo of HELGI JÓNAS HELGASSON
    HELGI JÓNAS HELGASSON
    Participant
    • Umræður: 26
    • Svör: 518

    Er maður nú orðin þreyttur á þessum
    gamaldagsráðum um ár og akstur
    "ef þú getur ekki vaðið þá geturðu ekki
    keyrt yfir" Þvílík FÁSINNA þetta átti við
    í gamla daga þegar bílar voru nánast óbreyttir
    33" þóttu stór dekk.
    Ég VEÐ ekki yfir ár sem ég keyri yfir í dag
    myndi ekki reyna það ekki einu sinni í bandi
    Góða helgi





    29.06.2006 at 17:39 #555392
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það er alveg rétt að jeppar í dag komast miklu dýpra en menn geta vaðið en hinsvegar er áfram hægt að miða við að ef þú getur vaðið ánna þá kemst bíllinn yfir á nokkuð öruggan hátt.

    Freyr





    29.06.2006 at 19:35 #555394
    Profile photo of Róbert Benediktsson
    Róbert Benediktsson
    Member
    • Umræður: 138
    • Svör: 896

    Menn geta ekkert vaðið ef það er einhver sraumur, kanski svona rétt upp að tippi, en þú keyrir það á móti straum létilega 44" og bara gaman:o)





    29.06.2006 at 20:04 #555396
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég vona svo sannarlega að svona kokhreysti komi ykkur ekki um koll. Áður en júli 2005 var liðin voru á anna tug véla farnar, ónýtar, margir bílar stórskemmdir ásamt allskonar vitleysu sem því fylgir, bara í þeim mánuði. Í mínum hóp fór 8 sylindar Ford 250 vél í köku, 1.100.000 kr. láku niður Steinholtsánna og eflaust er enn verið að borga brusann. Þeir sem stunda Þórsmörk og fylgjast með vita að vatnsföll eru ekkert til að leika sér að og virðing þeim til handa bera allir gæfusamir ferðalangar. Þeir sem tala- svo tali nú ekki um sem haga sér eins og ofan kemur fram lenda fyrr en seinna í stór vandræðum
    .
    kv. vals.





    29.06.2006 at 21:22 #555398
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Tek undir með Vals. Ár eru ekki leikföng eða til að sýna hversu nálægt línunni bílinn þinn getur farið.
    Það er rétt að þú getur farið mikið meira á bíl í dag en þú getur vaðið. Enn það á við reynda menn. Bestu ráðleggingar fyrir óvana og nýjajeppamenn (og konur að sjálfsögðu)
    er að fara ekki yfir nema geta vaðið ána.
    Þá er nokkuð gulltryggt að viðkomandi lendi ekki í vandræðum.
    Krossáin er oft varasöm, sérstaklega sé ekki farið rétt yfir
    og vöðin ekki alltaf eins.
    Miljónir hafa streymt þar niður eins og áður hefur komið framm;) meira að segja reyndir kaldir karlar hafa mokað úr veskinu þar !





    29.06.2006 at 22:04 #555400
    Profile photo of Róbert Benediktsson
    Róbert Benediktsson
    Member
    • Umræður: 138
    • Svör: 896

    Mér finnst það kaldir gæjar sem skella sér á orginal bíl út í steinholtsánna eins og hún var þessa helgina 2005. Ég held að allar þessar ónítu vélar í mörkinni séu oft útaf gáfuleisi ökumanna hvað varðar loftintakið, þarf nú oft ekki að vera djúpt til að kála vél. Ætla alls ekki að gera lítið úr krossánni, en mér finnst hún alls ekki sú versta, held stundum að fólk sé hrætt við hana af nafninu til, td hér áður fyrr þegar við vorum að fara í mörkina með stelpur með okkur, þær voru farnar að drekka vodkan af stút út af hræðslu við krossá:o) svo fóru þær með yfir Túná, Emstrur, Blöndu og árnar norðan Hofsjökul og allt í sanbleitu og á floti og maður með hnútinn í maganum, þá drukku þær bara kókomjólk haha… Ég var að þvælast upp í lóni í vikuni fyrir ofan Hornafjörð og þar er varasöm jökulá, fór yfir einn álinn af henni og þá pompaði hægri hliðin nyður í sandbleitu og dó á 2,8 sleggjuni og þarf nú mikið til:o) vorum að þvælast á þessum slóðum páskana 2003, þá kaffarði hún 44" bíl gjörsamlega hún er mjög varasöm





    29.06.2006 at 22:41 #555402
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Það er góð regla að bera fulla virðingu fyrir sérstaklega jökulám . Það kemur skrítinn svipur á töffara sem keyra eins og vitleysingar yfir Námskvíslina ,……….Laugalækinn eða álíka smákvísl og taka inná vélina vatn og rústa henni og svo kemur fólksbíll og fer rétt yfir við hliðina . Þetta hef ég séð .Er ekki vandamál með hvað loftinntakið er neðarlega á sumum bílum. Fyrir nokkrum árum heyrði ég af manni sem fékk nýjan Econoline og tók ekki strax eftir að loftinntakið var neðar en á eldri samskonar bíl. Kveðjur. Olgeir





    29.06.2006 at 23:53 #555404
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst þetta með að "ef þú getur ekki vaðið ána áttu ekki að fara á bílnum" og spekin var sú að ef bíllinn stoppar útí miðri á með vatn á vélinni eða bara út af einhverju, hvernig ætlarðu til baka????

    Kv Izan

    ég kann ágætlega við að vera lifandi gunga.





    29.06.2006 at 23:59 #555406
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Davíð ef þú ert einbíla við krossá eða hópurinn þekkir ekki ána,er þá ekki málið að fá Landverðina til að lóðsa þig og hópinn yfir ána á Traktorinum.
    Nú eða einfaldlega að bíða uns vanur bílstjóri sem kann að fara yfir krossá lóðsa þig/ykkur.
    Ég fer allavega ekki yfir fyrr en ég hef séð bíla fara yfir á góðu vaði.
    Kveðja JÞJ
    Sem er einnig Gunga.





    30.06.2006 at 00:43 #555408
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Krosá er sú á sem hefur tekið flesta bíla og rútur í gegnum tíðina + önnur mann tjón aðrar ár komast ekki í hálfkvist við hanna. ( HNOÐ )
    Krosá hún bíður eftir þér
    þú æðir út í og hún undan sker
    Hún bilin velti og bílin mer
    Krosá skilur eftir sár minni þér
    kv,,,MHN





    30.06.2006 at 00:43 #555410
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Ég er sammála þessari gömlu speki ef þú getur ekki vaðið vertu kyrr,ég viðurkenni vel að ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir ánnum og er því i gunguhópnum og slétt sáttur við það.
    hef ekki efni á rándýrum viðgerðum vegna fíflaskapar.
    Klakinn





    30.06.2006 at 11:07 #555412
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    ..En nafni, ef þú ert að fara í Mörkina til að skemta þér og öðrum mæli ég með Básum. Þar er úrvalsstemning og gott að vera enda svæðið stórt. Þannig er bæði er hægt að fynna næði fyrir börnin og fjör fyrir stóru börnin. Sjáumst í Básum… :)
    Kv. Davíð





    30.06.2006 at 14:36 #555414
    Profile photo of Róbert Benediktsson
    Róbert Benediktsson
    Member
    • Umræður: 138
    • Svör: 896

    Já líklega er það rétt að flestir hafa fest sig í henni af öllum ám, lika láng mesta umferðin yfir hana, en hún er ekkert verri en margar aðrar jökulár:o)





    30.06.2006 at 14:47 #555416
    Profile photo of HELGI JÓNAS HELGASSON
    HELGI JÓNAS HELGASSON
    Participant
    • Umræður: 26
    • Svör: 518

    VALS OG MMC
    Þetta er ekki kokhreysti eða fíflagangur
    þetta er spurningin að "lesa" ánna það er dýpt,
    straum, hvort hún er grýtt eður ei.
    Ég er heldur ekki að saka neinn um
    gunguskap þó hann þori ekki yfir ár
    og ég ber fulla virðingu fyrir ám alveg eins
    sjónum þegar ég var á sjónum.
    Ég er kanski nokkuð djarfur í ám
    en ég er ekki FÍFLDJARFUR og þar er munur á
    góða helgi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 20 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.