FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

grand vítara gerð þórsmerkurfær

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › grand vítara gerð þórsmerkurfær

This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.02.2005 at 10:17 #195491
    Profile photo of
    Anonymous

    Alvöru jeppakarlar munu væntanlega brosa útí annað þegar þeir sjá þetta og aðrir munu væntanlega skella uppúr. Allavega þá á ég litla grand vítara „tík“ sem mig langar að gera vel Þórsmerkurfæra. Ekki það að hann fer í Mörkina óbreyttur en maður vill nú hafa vaðið fyrir neðan sig og komast kannski eitthvað aðeins meira.

    Mig langar að fá skoðanir á því hversu langt þarf að ganga en ég hafði hugsað mér 4cm hækkun og eitthvað aðeins stærri dekk en eru á honum orginal (hve stór?). Reynslusögur? Einnig væri gaman að fá ábendingar yfir aðila sem gætu tekið að sér að hækka hann (umboðið er mjög dýrt).

    kveðja, Jepp Junior

  • Creator
    Topic
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)
  • Author
    Replies
  • 15.02.2005 at 15:07 #516862
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Af því að ég fiktaði í svona bíl um daginn þá get ég sagt þér nokkrar staðreyndir um breytingu á svona tæki:

    Upphækkunarsett í umboðinu kostar uþb. 20þús
    Gormar að framan í bílnum eru mjög stífir og þarf öflugar gormaklemmur til að klemma saman amk. ef bíllinn er með diesel vél.
    Leiðbeiningar um hækkunina er hægt að fá í umboðinu. Þe. hvaða hlutur á að fara hvar.
    Það borgar sig að kaupa grunn og lakk á sprautubrúsa og tektílryðvörn til að ryðverja viðeigandi hluti úr upphækkunarsetti.
    Annars á þér að nægja nokkrir fastir lyklar og topplyklasett ásamt tjakk til að gera þetta.

    Með þessari hækkun kemur þú dekkjum sem eru 30 – 31" undir bílinn og getur þá farið út að keyra. Ef þú kaupir dekk og þokkalegar álfelgur þá kostar það ca 130þús.

    Ef þú ætlar í stærri breytingu þá þarftu brettakanta með viðeigandi úrklippingu og gangbretti. Það er að öllum líkindum soldið vandaverk að föndra svoleiðis ef vel á að vera ásamt suðuvinnu. Þá þarftu líklega að skipta um drifhlutföll. Ég þekki ekkki hvað fæst í þessa bíla en þú getur skoðað það í umboðinu.

    Og hvernig reynist svo farartækið eftir svona breytingu. Jú ef þú ætlar að keyra í snjó þá þarftu annan bíl til að draga þig og ekki gera ráð fyrir langferð því þú verður oft fastur. Önnur aðferð er að hafa nóg þrek til að moka. Ég er hins vegar viss um að svona bíll virkar vel í sumarakstri eða með 35" breytingu.

    Gangi þér vel
    Elvar





    15.02.2005 at 16:00 #516864
    Profile photo of Benedikt Þorgeirsson
    Benedikt Þorgeirsson
    Member
    • Umræður: 50
    • Svör: 805

    Í fyrsta lagi ertu ekki að finna upp hjólið með því að breyta svona bíl…

    "Og hvernig reynist svo farartækið eftir svona breytingu. Jú ef þú ætlar að keyra í snjó þá þarftu annan bíl til að draga þig og ekki gera ráð fyrir langferð því þú verður oft fastur. Önnur aðferð er að hafa nóg þrek til að moka. Ég er hins vegar viss um að svona bíll virkar vel í sumarakstri eða með 35" breytingu."

    BULL!!!!, þú þarft ekki hlurföll allaveganna ekki fyrir 33 góður félagi minn var á sidkick á 35" hlutfallalausum..
    Eins og allir bílar þá festist súkkan auðvitað líka, en allir heilvita menn ferðast með góðum félaga á öðrum bíl ef eitthvað kemur uppá!!! En þessir bílar eru ekkert verri en hver annar rétt yfir tonni á 33" dekkjum svínvirkar og þeir henta ekkert verr en aðrir í ferðir og í þar seinustu nýliðaferð kom sá og sigraði Dr Skítmix á sinni súkku og hana nú!!!!

    KV Benni R-3370





    15.02.2005 at 16:28 #516866
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Sæll Benni og aðrir,

    Ég persónulega tel ekki grand vitara á 31" vera færan í snjóakstur eftir að hafa prófað sjálfur slíkan bíltúr um síðustu helgi, 31" einfaldlega ekki nóg til að láta hann fljóta. Vel má vera að 33" komist af án hlutfalla en ég get ekki ýmindað mér að 35" sé að koma vel út án hlutfalla. Auðvitað er 35" bíll ökufær í snjó án hlutfalla en hann mun aldrei verða til afreka þannig í sæmilega erfiðu færi. Enda grunar mig að upphaflegur ritari þessar þráðar hafi ekki verið að spá í þannig breytingu.
    Það er vissulega rétt hjá þér að ekki er verið að finna upp hjólið við breytingar á þessum bíl, og ekki er mikið vit í því að ferðast einbíla. Sérstaklega ekki á þau svæði sem maður þekkir ekkert.

    En eins og ég benti á þá eru þetta eflaust fínir sumarbílar (en ég átti að bæta við að ég miðaði við 31" breytinguna).

    Af því að ég man ekki hvar loftinntakið er á þessum bílum þá getur þú kannski komið með uppástungu um breytingu á slíku ef þess er þörf til að gera bíl "Þórmerkurfæran"

    Góðar stundir
    Elvar





    15.02.2005 at 16:47 #516868
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég þakka kærlega fyrir ábendingarnar! Ég hef ekki í huga að keyra í snjó heldur er ég aðallega að hugsa um sumarfærur og því ætti meiri breyting að vera óþörf…- þó maður viti ekki hvort jeppa-áhuginn ágerist og verði að jeppa-dellu.

    Ég hef heyrt að þessir bílar fari allt þegar þeir eru komnir á 33-35" vegna þess að þeir séu svo léttir. Hvort nauðsynlegt sé að breyta hlutföllum og setja læsingar veit ég ekki. Ég sá einn á 35" auglýstan til sölu í einhverju dagblaði um daginn og var sá kallaður "Patrol svekkir". Ég veit ekki hvort það sé innistæða fyrir því en gaman væri að heyra reynslusögur af því!





    15.02.2005 at 16:51 #516870
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Loftinntakið er staðsett í brettinu (opnast ekki beint útí það). Ég fór á bílnum óbreyttum í Þórsmörk í sumar og gekk það vel en ég hugsa að hann sé tæpur ef mikið er í ánum.





    15.02.2005 at 17:13 #516872
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Patrolsvekkir, það má vel vera að það sé innistæða fyrir því, það fer þannig orð af súkkunni, ef rétta færið er til staðar þá fer súkkan allt þegar aðrir fara ekkert :)
    Held reyndar að þetta átti nú aðalega við fox og svo hefðbundnu vitöruna.

    Hvað er grand vitaran annars í kg talið?
    31" breyting þyngir ekki mikið.

    Ef þú ert að spá í að færa loftinntakið þá eru að ég held þrjár lausnir í stöðunni.
    1. Setja barka uppað hvalbak
    2. gera gat á hvalbak og taka loft innanúr bíl, tengir svo barkann þegar á þarf að halda. (t.d áður en þú keyrir yfir "þórsmerkurár")
    3. Setja snorkel utaná bílinn sem liggur með gluggapósti.

    Kveðja
    Elvar





    16.02.2005 at 08:58 #516874
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Grand Vitara er undir 1400kg. Hvað áttu við með hvalbak?





    16.02.2005 at 09:10 #516876
    Profile photo of Benedikt Þorgeirsson
    Benedikt Þorgeirsson
    Member
    • Umræður: 50
    • Svör: 805

    Ok verið að tala um Grand Vitöru, sammála Elvararna með 31" hélt það væri verið að tala um 33" ég auglýsti mína súkku undir Patrolsvekkjir aðalega uppá húmorinn fyrir þetta félag sem maður er í, alltaf rígur á milli manna og bíla 😉
    Held að Grand viataran mín á 35 með öllu hafi verið 1460 kgs og ég var mep hlutföll úr sjálfskipta bílnum…





    16.02.2005 at 09:22 #516878
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Hvalbak, þá er ég að meina skilrúmið sem er á milli farþegarýmis og vélarsals.

    Kveðja
    Elvar





    16.02.2005 at 09:26 #516880
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    og fer hann allt?





    16.02.2005 at 09:27 #516882
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þá er væntanlega einfaldasta aðgerðin að setja rör upp að hvalbak. Getur maður ekki líka bara mixað eitthvað rör/barka sem maður getur smellt á þegar á hólminn er komið?





    16.02.2005 at 13:24 #516884
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Þú talar um að hafa barka uppað hvalbak til að skutla á þegar á hólminn er komið. Ég mæli með því að ganga þokkalega frá slíkum barka og hafa hann stöðugt tengdann þannig að þegar á hólminn er komið skiptir ekki máli hvort það gleymist að setja barkann á eða ekki. Nú svo getur litla sprænan sem þú ætlar að keyra yfir líka verið dýpri en þig hefði getað grunað, annað eins hefur gerst :)

    Elvar





    16.02.2005 at 15:13 #516886
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég átti eiginlega við að taka hann út annarsstaðar..þeas ekki upp að hvalbak. hugsanlega bara festur með sogskálum á framrúðuna hægra megin…. hef svo sem ekki skoðað þetta með það að leiðarljósi…





    16.02.2005 at 15:13 #516888
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég átti eiginlega við að taka hann út annarsstaðar..þeas ekki upp að hvalbak. hugsanlega bara festur með sogskálum á framrúðuna hægra megin…. hef svo sem ekki skoðað þetta með það að leiðarljósi…





  • Author
    Replies
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.