FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Græðum-græðum

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Græðum-græðum

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bergþór Júlíusson Bergþór Júlíusson 19 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.01.2006 at 17:40 #197198
    Profile photo of
    Anonymous

    Uppbyggður Sprengisandur.

    Ég hef tekið þá ákvörðun að byggja upp hálendisveginn sem gengur daglega undir nafninu Sprengisandsleið F 26, sumir kalla fyrsta hluta þessara leiðar Kvíslaveituveg inn að Versölum. Þann leiðarhluta munu ég ekki gera neitt við enda að mestu orðinn uppbyggður. Nema ég ætla að setja viðvörunar skilti við brúnna á Köldukvísl, sem vegagerðin hefur ekki dratthalast til þess að gera þrátt fyrir að um lífshættulegt gil sé um að ræða. Norðan við Versali mun ég nota efni í veginn sem til tiltækt er og síðan mun ég notast við tilbúinn ræsi í ársprænurnar sem eru á leiðinni. Reikna ég með að ég þurfi nokkrar gamlar vinnuvélar í ævintýrið og leita því eftir fjárstuðning félagsmanna sem verður greitt með hlutabréfum í félaginu sem ég mun stofna, sem mun að öllum líkindum heita ( Græðum á tá og fingri og höfum alla að fíflum ) Vonast ég eftir því einnig að fá Norðurveg ehf sem stofnfjáreiganda og stuðning þingmanna af Suðurlandi enda verður gróðinn óstjórnlegur þrátt fyrir það að byggja verði eitt vegatollskýli og ráða verði tvo ódýra útlendinga til innheimtustarfa. Einu má þó ekki gleyma í útgjaldaliðunum en girða þarf vandlega út frá vegatollskýlinu svo þið helvítis jeppakarlarnir komist ekki frítt framhjá á veturna. Maður ætti kannski ekki að uppljóstra öllum mínum áætlunum en ef þið þegið þá mætti segja frá þeim draumum mínum að kaupa Nýadal ( Klakahöllina ) eða fá sveitarfélag til þess að hrifsa skúrana þarna af Ferðafélagi Íslands ( enda fordæmi fyrir því ) og byggja þar upp risa þjónustumiðstöð með neonljósum og alles og síðan mætti byggja stórann varnargarð og veita helvítis Nýadalskvíslinni frá. Það mætti svo setja upp skíðalyftu í Tungnafelljökul og værum við þá búnir að lálendisvæða allt draslið.
    Þeir sem vilja vera með í ævintýrinu geta sent mér meil eða hitt mig upp í Öskjuhlíð.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 30.01.2006 at 17:50 #540816
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    Verður hægt að kaupa svona sjálvirka áskrift… svo maður þurfi ekki að stoppa og skrúfa niður rúðuna við þessi skýli??

    og árskort í skíðalyfturnar??





    30.01.2006 at 18:26 #540818
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    mætti grafa jarðgöng norður við Fjórðungsvatn og láta þau koma út innst í Eyjafjarðardölum. Líklega enn betri hugmynd en þeir voru með upphaflega á Akureyri um að fara norður Kjöl.





    30.01.2006 at 18:29 #540820
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    af þessum skrifum mínum er sá að Hálendisuppbyggingjarmennir eru ekki af baki dottnir og er með kynningarfund bráðlega á Suðurlandi





    30.01.2006 at 20:10 #540822
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þegar verið var að ræða þetta mál fyrir nokkrum mánuðum, var einhver sem sendi samgönguráðherra bréf og óskaði eftir að fá að gera tilboð í Kjalveg, enda hafði hann heyrt að hann væri til sölu. Líklega hefur hann ekki fengið svar frá ráðherra, en það má benda á það að það eru upplýsingalög í þessu landi og ráðamönnum ber skylda til að svara brefum frá almennum borgurum innan 2 vikna. Annars má kæra viðkomandi stofnun. Líklega verður maður að grafa þráðinn upp.

    Góðar stundir





    30.01.2006 at 23:32 #540824
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Á maður að láta dósasafnið í bílskúrnum upp í hlutafé?
    Held reyndar ekki. Skilst af mér sérfróðari mönnum að vegir sem búnir eru til úr jarðvegsruddanum sem þeir liggja ofaná (eins og íslenska veglagninga aðferðin hefur verið undanfarna áratugi), þoli þungaflutninga frekar illa og séu því frekkar slöpp fjárfesting. Sorrý Ofsi minn :)

    kv
    Rúnar.





    30.01.2006 at 23:56 #540826
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég legg til malarhrífu, gamla kínakvísl og kantskera þegar konan er ekki að nota hann.

    Svo er ekkert að því að nota íslenskan rudda, alltaf staðið fyrir sínu frá því ég man eftir mér (sem er yfirleitt í hádeginu á sunnudögum).





    31.01.2006 at 07:17 #540828
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    það er þannig sem þú ætlar að fara að því að komast á huindæinum upp í illugarver og láta okkur hina borga, væri nú ekki skinsamlegra að fá sér nýjan jeppa sem þú getur treyst að komist alla leið uppeftir.Þetta með skiltið og brúnna er nú að ráðnum hug gert eingöngu til að reyna fækka í rottum á landinu. Hvernig er með það voru þið svona ölvaðir bölvaðir að það náðist engin mynd af ykkur í vandræðum





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.