This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 19 years, 1 month ago.
-
Topic
-
Uppúr spjalli hér á vefnum var búinn til vefur til að safna og miðla GPS leiðum, ferlum og punktum. Flestir hér kannast eflaust við þetta.
Undanfarna mánuði hefur smám saman fjarað út notkunin á vefnum og þá aðallega á innsendu efni. Síðast var skrá send inn í ágúst.
Nú langar mig að hvetja ykkur til að senda inn nýtt og meira efni.
Ein vinsælasta skráin er gönguleið á Esju þannig að það eru ekki endilega merkilegustu leiðirnar sem hljóta vinsældir.
Sérstaklega vantar fleiri gönguleiðir því þær hafa fengið góðar viðtökur. Sleðamenn hafa einhverra hluta vegna ekki séð ástæðu til að setja inn efni.
Slóðin er http://that.is/gps/. Öll notkun vefsins er ókeypis og á eigin ábyrgð.Ekki villast.
Aðalsteinn.
You must be logged in to reply to this topic.