FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

GPS sem truflar

by Ólafur Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › GPS sem truflar

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 15 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.07.2009 at 12:57 #205267
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant

    Góðan dag

    Ég er með Garmin 525 sem virkar vel og er gott tæki. En ég er að lenda í því að í ákveðnum aðgerðum þá truflar tækið VHF stöðina, þeas hún stoppar á skanni og suðar bara á einhverri rásinni þar til viðkomandi aðgerð er lokið á GPS tækinu. Einnig virðist GPS tækið trufla útvarpið, það verða mun lélegri móttökuskilyrði á útvarpinu þegar tækið er í gangi, en þegar slökkt er á því þá detta inn útvarpsstöðvar. Er einhver sem kannast við þetta og hvað hægt væri að gera í þessu ?

    Kv. Óli M.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 17.07.2009 at 14:13 #651854
    Profile photo of Ragnar Þórðarson
    Ragnar Þórðarson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 202

    Hljómar eins og slæm rafmagnstenging einhvers staðar. Rafsegulbylgjur frá rafmagnstruflunum geta ruglað rosalega út frá sér. Er þetta svona sígarettukveikjara tengi eða ertu með þetta inn á kerfi?





    13.08.2009 at 23:00 #651856
    Profile photo of Hjálmar Sigurðsson
    Hjálmar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 56

    Það væri sniðugt prufa að setja truflanadeifir á gpsinn… sem sagt segul sem er smellt á loftnetsendann sem fer inní gpstækið.





    13.08.2009 at 23:05 #651858
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Ok, hvar fæ ég slíka græju ?

    Raggi, þetta er tengt beint á geyminn.

    Kv. Óli





    14.08.2009 at 00:39 #651860
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Prófaðu að kippa loftnetinu aftan úr stöðinni, og settu hana á scan, og prófaðu svo gps tækið. Ef það lagast við það, gæti verið léleg jörð á loftnetinu fyrir VHF stöðina, eða kapallinn liggur of nálægt einhverjum straumköplum, eða hreinlega GPS tækið nær að trufla svona svaðalega frá sér og þá er ekkert annað að gera en að skella einhverjum filter og dóti á…

    Svo mætti prófa að flétta straumkaplana að GPS tækinu og/eða VHF stöðinni.

    kkv, Úlfr





    14.08.2009 at 08:27 #651862
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Prófaðu að slökkva á öllum "marine" fídusum í tækinu sem þú ert ekki að nota. Bara skot út í loftið.

    -haffi





    14.08.2009 at 17:38 #651864
    Profile photo of Hjálmar Sigurðsson
    Hjálmar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 56

    Ég fékk þetta meðfylgjandi Gpsinum, eða ölluheldur loftnetssveppnum frá Garmin. Þar var einmitt minnst á að truflanir geti verið á milli talstöðvar og gps !! Talaðu við þá hjá garmin island.





    14.08.2009 at 21:33 #651866
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þessi segull sem nefndur er hér að ofan, er reyndar svokallað ferrít, sem er ekki það sama og segull þó að útlitið sé ekki frábrugðið.

    Ferríthulsur og -hringir eru oft notuð til að eyða truflunum í rafbúnaði. Það þarf ekki að vera að ferrít lagi truflanir af þessari stærðargráðu, en mögulega gæti dugað að vefja bæði loftnetskaplinum og straumkaplinum á GPS tækinu í sitthvorn ferríthringinn. Ég myndi samt veðja á að það væri bilun í tækinu (ónýtur þéttir eða sambærilegt) sem veldur truflununum. Svona tæki eru vanalega prófuð í þaula af framleiðanda með tilliti til þessa(EMC próf), en allt getur bilað. Bilanir af þessu tagi þurfa alls ekki endilega að hafa áhrif á virkni tækisins sem er bilað, heldur geta truflað nærliggjandi búnað eins og lýst er í þessu tilfelli.

    Besta prófunin í þessari stöðu væri að fá lánað nákvæmlega eins tæki og athuga hvort einkennin hverfa eða ekki.

    kkv
    Grímur





    18.08.2009 at 20:47 #651868
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Sammi, ég prófaði að taka loftnetið á VHF stöðinni úr sambandi og þá var talstöðin til friðs, sama hvað ég hamaðist á GPS tækinu. Hvað svo, líklega þarf ég að fá einhvern góðan snilling til að mæla loftnetið … eða ?

    Kv. Óli





    18.08.2009 at 21:18 #651870
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Óli, er loftnetskapallinn fyrir vhf stöðina "of langur", þ.e. slakki upprúllaður bak við stöðina/í mælaborðinu? Held að það sé ekki heppilegt.

    Ef þú gúgglar "gps vhf interference" koma upp ýmsar tilgátur, en svosem ekkert concrete. T.d. ekki láta kapla tækjanna liggja saman.

    Er ekki bara málið að láta fagmann eins og Sigga Harðar kíkja á þetta? :)

    -haffi

    ps. farðu varlega með vhf stöðina án loftnets, getur skemmst ef ovart er sent þannig.





    19.08.2009 at 17:54 #651872
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    [quote="olimag":2oo6ado6]Sammi, ég prófaði að taka loftnetið á VHF stöðinni úr sambandi og þá var talstöðin til friðs, sama hvað ég hamaðist á GPS tækinu. Hvað svo, líklega þarf ég að fá einhvern góðan snilling til að mæla loftnetið … eða ?

    Kv. Óli[/quote:2oo6ado6]

    Hmm, gæti verið lélegt groundplan á loftnetinu, eða ónýtur kapall eða tengi.
    Myndi prófa að setja prufulampa á +12V og nota loftnetstengið sem jörð á móti og sjá hvort það logi ljós… Ef það virkar fínt er loftnetið amk að ná jörð einhverstaðar og ætti líklegast að vera í lagi.

    Hugsanlegt að GPS netið og VHF netið séu of nálægt hvoru öðru?

    kkv, Úlfr





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.