FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

„gps“ ha humm !

by

Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › „gps“ ha humm !

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Kjartansson Einar Kjartansson 20 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.09.2004 at 22:02 #194672
    Profile photo of
    Anonymous

    sælir kappar, nú þegar maður er kominn á svona sæmilegan slyddujeppa, þá er ég að velta fyrir mér hvernig gps græju á að versla ?? er búinn að flandra um á flest allar síður og skoða eiginlega flest allt, þetta er allt mjög framandi og er reyndar engu nær! má ekki nota handgræju sem labbiliðið notar í bílinn ? nú svo er að læra á þetta en það er seinni tíma vandamál. venlig hilsen mrbig

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 21.09.2004 at 22:52 #506222
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    Sæll,

    göngutæki er algjörlega nógu gott – sem slíkt, það eru mjög góð gæði á þeim – staðsetningarlega séð – gallin við þau er náttúrulega bara hvað það er vont að sjá á þau í bíl á ferð.

    Þannig að þetta snýst meira um notkunarmynstur, ef þú t.d. reiknar með að nota yfirleitt ferðatölvu til að keyra eftir, þá skipti skjárinn á GPS-inu litlu sem engu máli.

    Ég hef sjálfur notað Garmin GPS II+ handtæki á mælaborðinu, án aukaloftnets, með góðri reynslu í 5-6 ár og nota það nær eingöngu með ferðatölvu, en ef þörf hefur verið á, þá hef ég getað ‘reddað’ mér á GPS-skjánum, en það er ekki auðvelt þegar virkilega reynir á, en það fer náttúrulega eftir aðstæðum.

    Í þau skipti sem virkilega hefur reynt á, eins og t.d. að keyra í snjóblindu á Vatnajökli án þess að sjá fram fyrir bílinn (ég þurfti að horfa á hraðmælinn á GPS-inu til að sjá hvort ég stæði nokkuð kyrr spólandi – sem kom nokkrum sinnum fyrir) þá er mikilvægast að tækið uppfæri sig nógu hratt, því það er alveg ótrúlega erfitt að keyra í beina línu eftir GPS. Það fengu allir að reyna sem voru með í þeirri ferð og prófuðu að vera fremstir. Það er auðveldara að fara í hringi en maður heldur 😉

    Arnór





    22.09.2004 at 00:45 #506224
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Sælir

    Mæli eindregið með göngutæki til að nota bíl, sérstaklega fyrir þá sem eru að læra inn á þetta. Keyptu þér bara stand til að setja ofan á mælaborðið. Hef aldrei lent í því að missa merkið og það er líka fínt að geta kippt því úr bílnum annars vegar til að rölta með og hins vegar til að taka með sér inn í hús til að tengja við lappann. Þannig getur þú leikið þér með þær leiðir sem þú ert að trakka (eða sett inn nýjar) en þannig verður þú fljótur að læra á tækið og um leið á þau forrit sem eru til í dag.

    Sem sagt göngutæki, stand í mælaborð og snúru til að tengja í 12 volt og lappa (sama snúran). Þetta allt ætti ekki að kosta þig meira en 30 þús með 4×4 afslætti ef þú ert meðlimur. Svo er bara að byrja að fikta :-)

    Annars mælir Arnór af mikilli visku varðandi að lesa af skjánum, þeir eru litlir en þó vel nothæfir til að redda sér í styttri ferðum ef þú lendir í vondu skyggni. Fyrir lengri og tíðari vetrarferðir tel ég nauðsynlegt að bæta við laptop í bílinn eða að fá sér bíltæki.

    Vona að þetta hjálpi

    bestu kveðjur
    Agnar





    22.09.2004 at 22:17 #506226
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    kærar þakkir, veð í þetta, fann eitt skítbillegt á ebay, 25 dollars= Magellan GPS Sporttrak map það sleppur, venlig hilsen mrbig





    23.09.2004 at 16:14 #506228
    Profile photo of Þrándur Arnþórsson
    Þrándur Arnþórsson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 209

    Það borgar sig að hafa tölvutengi á GPS tækinu. Minnstu og ódýrustu handtækin eru stundum ekki með svona tengingu og nýtast því síður þó þú sért kominn með lappa.

    Mæli eindregið með tækjum með tölvutengingu.

    Þrándur





    23.09.2004 at 18:26 #506230
    Profile photo of Arnar Már Bergmann
    Arnar Már Bergmann
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 4

    Eru lapparnir ekki orðnir úreltir? Í dag geturðu fengið Garmin 182 litatæki á 120.000, ekkert vesen með tölvu sem kostar yfirleitt meira og er viðkvæm fyrir raka, hristing og fleiru. Ef geimsluplássið er það sem menn setja fyrir sig þá tekur tækið 50 leiðir og að mig minnir 3000 punkta.
    P.S Hef notað þetta tæki mikið, bæði á sleðanum og í bíl og finnst það í alla staði frábært.

    p.s. ég er ekki á prósentum hjá Rikka:)





    23.09.2004 at 19:22 #506232
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef ekið með tölvu í bílnum síðastliðin 12 ár, ég hef aldrei lent í því að raki eða hristingur truflaði tölvuna.

    Ég er með nokkur hundruð trök og ferla, samtals um 200,000 punkta í minni tölvunnar, þegar ég er á ferðinni. Mér gengur miklu betur að vinna með gögn á tölvu sem er með mús og skjá og lyklaborð í fullri stærð heldur en á tæki sem er með lítinn skjá og nokkra takka.

    Það er hægt að kaupa notaðar fartölvur, sem duga mjög vel til að tengja við GPS, fyrir minni pening en menn eru að tala um fyrir bíltæki.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.