Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Gps
This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 17 years, 7 months ago.
-
CreatorTopic
-
09.03.2008 at 18:10 #202065
Sælir félagar.
Ég var að spá í að kaupa mér GPS tæki að utan, og fann mér Garmin GPS MAP 276C. En það er sagt að það sé fyrir Marine.
Er ekki hægt að nota það í jeppa eða er þetta bara ætlað fyrir skip?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
09.03.2008 at 19:01 #617144
Alls ekki bara fyrir marine. Þetta tæki er nefnilega eitt það fjölhæfasta. Það er með hleðslubatterí og er þar af leiðandi "portable" þó það sé ekki það nettasta. Það er með navigation möguleika, þ.e. að elta götur. Það eina sem hægt er að finna að þessu tæki er skjárinn, en hann er ekki sá stærsti. En s.s. margt gott við það og mjög hagstætt verð á því í usa.
-haffi
09.03.2008 at 19:26 #617146Okey takk fyrir þetta, en hvaða gps-i mælið þið samt með?
09.03.2008 at 19:45 #617148Hvað kostar svona græja úti, hvað kostar svona græja hingað komin?? Langar að benda á að nýtt svona tæki í R. Sigmunds kostar fullu verði 59.900. Þá vantar svo Íslandskortið.
Annars er ég með Garmin 292C og mjög sáttur. Það er margfalt flottari skjár í tækinu sem þú ert að pæla í en hann er töluvert minni líka. Og mér finnst skjárinn á tækinu mínu ekki meiga vera minni. En það er náttúrulega misjafnt hvað mönnum finnst um það.
Kv, Kristján
09.03.2008 at 21:05 #617150Það kostar um 36 þús hingað komið
09.03.2008 at 21:43 #617152er það eitthvað lítið, gerði nú enga leit en kíkti á 3 staði á netinu og lægsta verð sá ég þar 470 dollara. Hvar fannstu þetta verð sem þú miðar við?
kv, Kristján
09.03.2008 at 23:32 #617154http://cgi.ebay.com/Garmin-GPSMAP-276C- … dZViewItem
Þetta t.d. kostar 470 dollara, og sendingarkostnaðurinn er 50 dollarar sem gerir 520 dollara. 520×67= 34840
10.03.2008 at 00:07 #617156þekki þetta nú ekkert sérlega vel, en hvað með tolla, skatta og allt þetta drasl sem getur lagst á þetta við heimkomu. Þetta er varla undanskilið því eða hvað?
Ætli það sé ekki hægt að bæta við 10-15 þúsund kalli við þetta verð, komið í hendurnar á þér??
Spyr sá sem ekki veit.
Kv, Kristján
10.03.2008 at 16:27 #617158Það kemur síðan bara 24,5% vsk ofan á þetta. Það eru engin vörugjöld af GPS (öryggistæki/áttaviti).
10.03.2008 at 16:48 #617160Sælir
Ég keypti fyri stuttu Garmin GPSMAP 276C af [url=http://gpsdiscount.com/:vknsgitk][b:vknsgitk]Þessum hér[/b:vknsgitk][/url:vknsgitk]. Tækið ásamt aukahlutapakka kom heim á rúmlega 40þús. Mér skils að sami pakki hjá RS kosti rúmlega 100þús.
Tækið kom heim á 5 dögum og var borið heim að dyrum. Ég get fyllilega mælt með þessum söluaðila, og á örugglega eftir að kaupa af honum aftur.Tækið er einnig mjög flott og skemmtilegt. Ég hef ekki séð annað flottara, þó mér þyki skjárinn heldur lítill. Það er þó ekki auðvelt að finna tæki með stærri skjám.
kv.
Emil Borg
10.03.2008 at 20:05 #617162Daginn
Ég keypti GPS tæki í Ameríkuhrepp, rölti um götur Nýju Jórvíkur og keypti tæki í sumar sem átti að kosta 59.000kr í Bílanausti en ég keypti mitt á 406 dollara (ca 26.500kr þá) og fannst vel sloppið.
Ég reyndar vildi handtæki þar sem það gefur meira færi á göngu ferðum og eins er auðvelt að smella því á vélsleðann eða fjórhjól. GPSMAP 60CSx er að mínu mati albesta GPS tæki sem finnst í dag. Það getur verið leiðsögutæki, rafeindaáttaviti og er með loftvog sem hjálpar hæðarákvörðun. Sjárinn er litaskjár en er frekar lítill fyrir jeppann en þó gerir það minna til þegar nýja 3.5 kortið kom út. Þar standa fjallvegir mun lengur á skjánum þegar maður Zoomar út.
Ég keypti í það stórt 4 gig minnir mig minniskort sem er bara venjulegt mikrosd kort og það tekur allt íslandskortið og man allar mínar ferðir næstu 20 áranna og geymir. Þarna er reyndar smá galli en það er að ég verð að nota tölvu til að koma ferlunum af minniskortinu og í nothæft ástand á skjáinn. Svolítið asnalegt.
Ég á í náinni framtíð eftir að nota fartölvu við tækið en er bara að bíða eftir fartölvustatífi en þá er skjástærðarvandamálið úr sögunni. Tækið tengi ég svo við rafmagn og útiloftnet og þá er skekkjan komin niður í 3-5 metra á hálendi sem er alveg ásættanlegt.
Kv Izan
14.03.2008 at 17:52 #617164
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Er að spá svona með öðru auganu í svona tæki , hvaða aukahluta pakka tókstu með þessu ? , er svona að velta fyrir mer hvað se sniðugt að taka
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
