FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Gormar og demparar

by Vilhjálmur Arnórson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Gormar og demparar

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Rúnar Ingi Árdal Rúnar Ingi Árdal 16 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.09.2008 at 23:24 #202887
    Profile photo of Vilhjálmur Arnórson
    Vilhjálmur Arnórson
    Member

    Ég er að velta því fyrir mér að koma einhverri nothæfri fjöðrun undir bílinn hjá mér að aftan, hilux dc 2000 módel.

    Hvar er best og ódýrast að versla gorma og dempara í málið, minnir að ég hafi heyrt að BSA hafi verið að selja RR gorma, eða allavega einhverja frekar ódýra gorma.

    Svo eru það dempararnir, sleppur maður með eitthvað ódýrara en Rancho 9000 eða Koni?

    Og að lokum, hefur einhver hugmynd um hvað það kostar að fá tilskorna þá platta og stýfur sem þarf í fourlink, það var eitthvað fátt um svör í Héðni í dag.

    Slapprafjaðrakveðja af vestfirskum vegum holóttum!

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 09.09.2008 at 00:02 #629102
    Profile photo of Kristófer Helgi Sigurðsson
    Kristófer Helgi Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 506

    Sæll, ég keypti tolbúið sett útskorið í héðni, kostaði mig undir 10.000. Talaðu við hann Ingimar í plötusmiðjunni að mig minnir, hann er alfarið með þetta.

    Kristó





    09.09.2008 at 02:30 #629104
    Profile photo of Gylfi Þór Rögnvaldsson
    Gylfi Þór Rögnvaldsson
    Participant
    • Umræður: 39
    • Svör: 116

    á gorma undan 38" runner sem búið er að keyra á í 10.000 km s: 6933278





    09.09.2008 at 09:31 #629106
    Profile photo of Vilhjálmur Arnórson
    Vilhjálmur Arnórson
    Member
    • Umræður: 23
    • Svör: 316

    Það er gott að heyra að járnið er ekki dýrara en þetta. Voru þetta bara plattarnir sem þú fékkst? Er hægt að fá brakketin fyrir þverstífuna líka?

    Hvað borgar sig að nota svera og þykka prófíla í stífur, 50x50x4???

    Veit að fóðringarnar kosta um 15.000 í fourlink settið.





    09.09.2008 at 09:38 #629108
    Profile photo of Kristófer Helgi Sigurðsson
    Kristófer Helgi Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 506

    Sæll aftur, það fylgir allt minni mig nema turninn á hásingu, það fylgir turninn uppí grind, og ég held að 50x50x4mm sé bara í fínu lagi, nógu sterkt allaveganna.





    09.09.2008 at 10:02 #629110
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    ég er með svona kitt frá héðni, kemur vel út.

    ég smíðaði mér stýfur úr 38×4 vökvarörum sem ég fékk í Landvélum og sauð á þær hólka og fóðringar sem fást í ET-verslun í klettagörðum.
    [url=http://farm4.static.flickr.com/3250/2690803556_7157603921_b.jpg:1bh5njo4][b:1bh5njo4]þverstýfur úr vökvaröri[/b:1bh5njo4][/url:1bh5njo4]

    bara ein hugmynd :)





    09.09.2008 at 14:05 #629112
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Vilhjálmur

    Ég keypti Range Rover gorma undir Hiluxinn minn í BSA, reyndar að framan. Þegar ég fór að ræða við höfðingjann þar um dempara, sagði hann mér að menn væru oft í vandræðum með að finna dempara sem hentuðu með gormunum. Hann benti mér á að Range Rover dempararnir væru hannaðir til að vinna með þessum gormum, þannig að ég keypti þá líka. Þetta kostaði í fyrra um 25þús. allt settið.
    Ég hef ekki keyrt á þessu enn, en hef fulla trú á því að það virki vel.
    Ekki veit ég nú hvað hann heitir í BSA, en hann veit hvað hann syngur og veitir frábæra þjónustu. Þú getur t.d. skipt gormunum ef þú ert ekki sáttur við þá

    Emil Borg





    09.09.2008 at 14:08 #629114
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Svo er Bílabúð Benna með þetta í settum OME, fínar vörur og verð. Veit ekki hvað þetta kostar í lúxa en ég var að versla í LC80 gorma og dempara 10cm lengri en orginal og það endaði í 115þ ef ég man rétt undir öll 4 hjólin. Ekki vera að spar í fjöðrun það marg borgar sig að gera þetta aðminnilega og vera með alvöru dót í þetta jepparnir verða bara betri við það!





    09.09.2008 at 17:32 #629116
    Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson
    Hafþór Atli Hallmundsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 810

    Villi minn. Af hverju að setja ekki bara loftpúða undir tröllið? Svo færðu þér camper á pallinn og kemst þá fjölskyldan með þér á fjöll og þá fyrst fer að reyna á öll hestöflin í eðal lúxanum hjá þér.
    Haffi





    09.09.2008 at 20:15 #629118
    Profile photo of Vilhjálmur Arnórson
    Vilhjálmur Arnórson
    Member
    • Umræður: 23
    • Svör: 316

    Sko, ég hringdi í Part í gær og get svarið að það var svarað "BSA góðann dag", en sá sem ég talaði við sagðist ekki eiga neina gorma. En það væri sjálfsagt ekki vitlaust að notast við RR fjöðrunarhluti.

    Benni, eru ekki original LC80 demparar frekar ódýrir, mér var bent á að kaupa þannig dempara, það var reyndar talað um lengstu gerðina, en það hefur verið mjög vel af þeim látið. Og ekki myndi skemma fyrir að nota líka samsláttarpúða úr LC80.

    Haffi ég hélt að þú værir hættur í bransanum. En málið er að kaupa sér ekki camper, svo maður geti verið í friði einhvers staðar!





    09.09.2008 at 20:41 #629120
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Ja ég veit ekki hvað orginal kostar né hversu legri dempara er hækt að fá hjá Toyota. OME er fínnt dót og gott að fá þetta í pari þ.e gorma og dempara fyrir akkúrat LC80 það virkar allavega fínnt finnst mér HT gormar frá Artic og Koni virka líka vel en er talsvert stífara dæmi þ.e gormarnir, allavega í LC80, græni LC hjá mér er með HT og koni og hann er hastur á þeim en mjög skemtilegur í akstri, þetta er mjög dýrt við hliðina á OME og er ekki endilega viss um að það sé þess virði…





    10.09.2008 at 21:50 #629122
    Profile photo of Rúnar Ingi Árdal
    Rúnar Ingi Árdal
    Participant
    • Umræður: 39
    • Svör: 421

    ég setti einusinni svona sett frá héðni undir hilux, þá voru bara öll járn sem mann vantaði, maður þurfti ekkert að smíða, bara beygja 2 járn úr settinu og bora götinn. Svo notaði ég rör frá landvélum í stífurnar, mér finnst persónulega frekar ljótt að vera með prófíla í stífunum.
    Varðandi samansláttarpúða er ekki spurning að vera með púða úr 80 cruiser að aftan, ef þú ætlar að fá eitthvað betra þarftu að fara í svona glussa samansláttardempara eins og K2 eru að selja og það er frekar dýrt.
    Kv. Dúddi





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.