FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Gormar eða loftpúðar

by Ívar Örn Lárusson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Gormar eða loftpúðar

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Eiður Ragnarsson Eiður Ragnarsson 19 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 31.10.2005 at 11:03 #196553
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant

    Sælir. Loksins hef ég samfærst um það að fjaðrir séu ekki góðar. Stóð alltaf í þeirri meiningu sökum þess að þær þyldu allt.
    Núna, er ég á allt öðru máli og er búinn að fá svo mikið nóg af þeim að ég ætla að skipta þeim út.
    Þá vaknar spurningin hvort maður ætti að setja gorma eða loftpúða. Og það sem ég vildi gjarnan fá að vita eru kostir og gallar við hvort tveggja og hvort menn myndu setja í.

    Ívar

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 31.10.2005 at 11:09 #530446
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    loftpúðar hafa þann kost að auðvelt er að stilla fjöðrunina hvort sem þú hefur sett mikið af dóti í bíllinn eða ekki. Helsti gallinn er að meira viðhald getur verið við þennan búnað saman borið við gormana.





    31.10.2005 at 11:34 #530448
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég kysi gorma á draumabílinn minn, þar sem að sá bíll er Willys og maður hleður alldrei miklu í svoleiðis tæki

    en kostur gorma framyfir loftpúða fyrir utan viðhald er teygja, þú getur náð tegju úr gormum sem að þér getur aðeins dreymt um að fá með loftpúðum (nema þá veikja þá svakalega með lögnum hliðum) og ef að út í það er hugsað, þá er teygja það sem maður sækist eftir í leiktæki

    en þar sem þú ert á blazer og gætir jafnvel hlaðið slatta í hann, þá er spurning hvort að loftið sé ekki góður kostur fyrir þig…





    31.10.2005 at 11:48 #530450
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    ekki spurning. Kosturinn við loftpúða er að geta lyft belgnum á bílnum upp úr snjónum þegar færið er þungt. Það fylgir meiri búnaður með loftpúðunum og í sama hlutfalli meiri bilanatíðni. Ég er búinn að keyra ca. 70.000km. á púðunum og fyrir einskæran klaufaskap fór annar loftpúðinn það er allt of sumt. Ég var með gorma og eftir að hafa prófað loftpúða fer næsti bíll allur á loftpúða, ekki spurning.

    kv. vals.





    31.10.2005 at 13:42 #530452
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 509

    Takk kærlega, en svona ein spurning í við bót, stundum hef ég verið að sjá bíla með loft á annari hásingunni og gorma á hinni. Er það bara handahófskennt eða er einhver góð ástæða fyrir þessu. T.d. þá er maður ekkert að breyta lestun að framan og því gæti verið ágætt að hafa gorma þar en síðan loftpúða að aftan.
    Hvernig eru þeir síðan í samanburðið þegar t.d. er ekið er eftir þvottabretti og svo aftur þegar verið er að sprauta uppi á jökli. (ekki það að ég þurfi að hafa áhyggjur af hraðanum á blazernum :) )





    31.10.2005 at 16:57 #530454
    Profile photo of Þrándur Arnþórsson
    Þrándur Arnþórsson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 209

    Það er algengt að bílar komi á gormum að framan en fjöðrum að aftan. Þá er náttúrulega minni vinna að setja bara loftpúðana að aftan.

    Vinnslusvið loftpúða helst jafnara þrátt fyrir mismunandi hleðslu. Gormar tapa meiri eiginleikum ef of þungt eða of létt er ofan á þeim. Af þeirri ástæðu er því oft betra að hafa loftpúða að aftan þar sem hleðslan hefur meiri áhrif.

    Þrándur





    31.10.2005 at 18:25 #530456
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    Eru menn ekki búnir að liggja of mikið yfir Ammerísku jeppa blöðum, þegar menn eru farnir að sækjast sérstaklega mikið eftir teygju?

    Bæði í motocross hjólum(að aftan) og algengt í baja-dakar bílum, þá er sundurslagið c.a. 1/3 af slaglengd fjöðruninnar.

    Ég sé allaveganna ekki kostin við það að hafa nógu langa dempara, svo það slakni á gorminum, því þá er í rauninni lítill þrýstingur = lítið grip

    loftpúðar eru með c.a. frá 60/40 til 40/60 í samslag/sundurslag

    Svo þeir ættu að vera nóg, er það ekki?

    En hvernig eru samsl/sundursl hlutföllin í þróuðu Pæjunum?





    31.10.2005 at 18:53 #530458
    Profile photo of Hjalti Guðmundsson
    Hjalti Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 292

    Sælir, ein spurning, hvernig eru loftpúðar að gera sig undir tiltölulega stuttum bílum?
    Er með Bronco II 38" breyttan og er mikið búin að vera að velta fyrir mér að setja hann á loftpúða.

    Kv. Hjalti





    01.11.2005 at 00:13 #530460
    Profile photo of Eiður Ragnarsson
    Eiður Ragnarsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 315

    Er ekki í vafa um að púðar hafa marga kosti umfram gormana (og að ég tali nú ekki um fjaðrir)
    Við settum nýlega púða undir Breskaheimsveldið okkar hér á Reyðarfirði (Björgunarsveitin Ársól) og fyrstu prófanir gefa góða raun.. Reyndar fór hann í leiðinni á 44" en samt erum við með það á hreinu að fjö-runin er betri og hleðsla er ekki lengur vandamál.
    Og í sambandi við teygju þá teygir hann sig ekki minna en áður það er alveg á hreinu að hann teygir sig mun miklu meira en hann gerði.
    Hægt er að sjá myndir af breytingarferlinu á http://www.simnet.is/arsol

    Með púðakveðju
    Austmann





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.