Forsíða › Forums › Almennt › Myndskeið › 1900 og eitthvað › Gömul ferða og torfæruvideó
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristján K. Kolbeinsson 13 years ago.
-
CreatorTopic
-
14.10.2011 at 14:54 #220805
Ég hef undanfarið verið að koma gömlum videóum sem ég hef fengið héðan og þaðan á tölvutæktform.
Ég er búinn að vera klippa þetta til og setja á youtube svo fleiri geti notið þeirra.Hérna er slóðin inná þau, http://www.youtube.com/user/icejeep73?feature=mhsn
Vonandi kyndir þetta uppí ykkur fyrir komandi vetur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
14.10.2011 at 14:59 #739545
Flott framtak, takk fyrir þetta.
MBK Siggi M
14.10.2011 at 21:20 #739547Gaman að þessu Kristján, lífgar upp á vefinn að geta skoðað gömul videó…meira ef mögulegt er – Logi Ragnarsson
14.10.2011 at 21:33 #739549Takk fyrir þetta myndband
15.10.2011 at 17:50 #739551Meira, meira, meira…..
Rúnar.
16.10.2011 at 09:53 #739553Ég var að setja fleiri videó inn.
Þetta er tekið inn á Fjallabaki í maí ´88
16.10.2011 at 11:07 #739555Ætli Willys drífi betur ef maður er með allar hurðar opnar þegar það er verið að keyra?
Annars frábært framtak – mjög gaman að skoða.
Kv.
Atli E.
16.10.2011 at 12:53 #739557Það má til gaman geta að allir þessir Willysar sem sjást í þessu síðasta videói er ennþá til, þó í misgóðu ástandi 😉
[img:2gds4bmv]http://icejeep.com/album/albums/ymsar_myndir/Skuri_nytt/normal_IMG_0154.jpg[/img:2gds4bmv]
[img:2gds4bmv]http://icejeep.com/album/albums/ymsar_myndir/HalliogMummi/normal_IMG_9006.jpg[/img:2gds4bmv]
24.10.2011 at 17:15 #739559Hérna eru klippur frá 100 bílaferðinni ´87.
Ps. Ég veit ekki hver er eigandinn af þessum videóum er, en þessi videó eru búinn að ganga á milli manna í 24 ár, ef réttmætur eigandi af þessum videóum vill ekki að þau birtist þá skal ég fjarlæga þau.
Annars finnst mér persónulega að öllu þessi videó ættu að vera fyrir almanna augum þar sem þetta eru ómetanlegar heimildir.
24.10.2011 at 21:24 #739561Djössssssssss snilld, mikið gaman að horfa á þessi video, situm fyrir framan tölvuna feðgarnir og látum okkur dreyma um fjallaferðir
Kv Bjarki
26.10.2011 at 22:12 #739563Virkilega gaman að þessum myndböndum. Sé þarna gamla „Ljóta Græn“ sem ég keypti sumarið 1987 af Kristjáni Guðlaugssyni. Bíllinn gekk líka undir nöfnum eins og „Ugly Green“ og „Græna Skrímslið“ Þessi ofurgræni Willys (CJ-2A) ´47 módel var búinn auka millikassa. Var að mér skildist fyrsti jeppinn með slíkan búnað hérlendis eða lága-lága (skriðgír) eins og við kölluðum þetta. Man fyrst eftir þessum bíl og eiganda hans sem original flatheddara (þ.e.a.s. bílnum) föstum í Krossá. Drógum hann upp á löngum Land-Rover.
Kristján breytti honum úr saklausum Willys í Skrímslið og átti heiðurinn að öllum þeim merkilegu breytingum sem bíllinn gekk í gegnum. Eini gallinn var að hann var á 40“ diagonal dekkjum sem bældust ekki nógu skemmtilega. Á þessum tíma voru 38“ dekk stærstu radial dekk sem hægt var að fá.
Þessi myndbönd þyrftu að vera aðgengileg t.d. á vef klúbbsins sem hluti af sögu jeppamenningar hérlendis. Bara saga þessa eina bíls er nokkuð merkileg og þyrfti að varðveita (og auðvitað helst bílinn sjálfan). Sagan hverfur nefnilega furðu fljótt nema hún sé skráð.
Kv. Árni Alf.
P.S. Þessi langi Land-Rover var ´66 módel original hergrænn herbíll með stýrið hægra megin. Bar nafnið "Eyðimerkurottan" sem skrifað var stórum gulum stöfum aftan á bíllinn og "Desert" "Rat" framan á sitthvort "kælilokið" að framan. Man að pabbi keypti tékknesk Barum dekk undir bílum. Verri dekk hafa sennilega aldrei verið framleidd. Mynstrið eins og framdekk Fergusona og þau slitnuðu í samræmi við verðbólguna á þessum árum. (Sögurnar geta orðið endalausar byrji maður að hugsa til baka
26.10.2011 at 22:46 #739565Ég á nokkur gömul videó í viðbót sem ég á eftir að klippa niður , meðal annars videó af því þegar Sprengisandstúrinn var kláraður í apríl ´87 og einnig videó af því þegar farið var í fyrsta skipti "Laugarveginn" að vetrarlagi.
Það verður klárlega að halda utan um þessar heimildir, ég tel mig reyndar halda vel utan um þetta gamla dót meðal annars með heimasíðunni minni http://www.icejeep.com 😉
06.11.2011 at 20:44 #739567Jæja þá er komið að næstu klippum.
Þessi videó eru úr ferð sem var farin til að klára 100 bílaferð 4×4 yfir Sprengisand í apríl ´87.
Leiðangursstjóri var Birgir „Fjalli“ Brynjólfsson og kynnir Eiríkur „R66666“ Kolbeinsson
Þetta videó er í heildina nokkuð langt svo ég ætla að hafa þetta í nokkuð mörgum þáttum næstu daga.Hérna kemur fyrsta syrpan.
07.11.2011 at 10:53 #739569Jæja þá er það næsti skammtur.
Þessi syrpa er frá Gullfossi til Hveravalla. Ferðin þangað tók 20 tíma
08.11.2011 at 11:20 #739571Þá er það þriðji skammturinn.
Þessi leggur af ferðinni er frá Hveravöllum til Ingólfsskála.
09.11.2011 at 13:15 #739573Þá er það næst síðasti skammturinn af þessu ferðalagi.
Þarna eru búnir að bætast við 2 jeppar í hópinn.
09.11.2011 at 14:16 #739575þvílík gersemar þessi video hjá þér Skúri. Takk fyrir þetta
10.11.2011 at 13:27 #739577Þá er það síðasti hlutinn af þessu ferðalagi.
Það vantar í þessa syrpu eitt myndskeið en það er með ráðum gert til að styggja ekki ákveðna aðila 😉
Þessi ferð sem ég er búinn að vera pósta hérna inn er fyrir marga hluti merkileg. Í þessari ferð var rjóminn af jeppamönnum höfuðborgarsvæðisins fyrir utan kannski „Fúlagengið“ . Þarna sjáum við marga merka jeppamenn eins og t.d Birgir „Fjalla“ Brynjólfsson , Eirík Kolbeins, Steina Sím, Tóta Turbó, Suzuki Kidd, Óla Trukk, Óla Gröndal, Fúsa í Kistufelli, Bjössa á Álftanesinu, Ragga smið heitinn, Ægir rennismið, Bjössa og Gest í Vögnum og Þjónustu, Gunnar Jens heitinn, Bubba í Pólum, Freysa, Magga fv. Hveravallabónda og marga fleiri.
Þetta eru allt menn sem hafa komið á einn eða annan við sögu Ferðaklúbbsins 4×4, en það sorglega samt við þetta videó er að líklega 99% af mannskapnum þarna er hættur að ferðast um fjöll á jeppum
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.