Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Gm 6,2 dísel fær ekki olíu
This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 15 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
02.12.2009 at 15:11 #208816
Góðan daginn félagar,ég er í vandræðum með 6,2 dísel GM vél hún fær ekki olíu inná mótor en fær nóg að olíuverkinu svo bara rétt dropar inná mótorinn.
ég er að setja þessa vél í Ford 250 83modelið
er einhver leið til að athuga olíuverkið í bílnum og hvað gæti verið að eins er einhver hér sem að veit um einhvern sem þekkir þessar vélar vel?
kv Haffib
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.12.2009 at 15:31 #669688
er ádrepainn nokkuð á
02.12.2009 at 15:43 #669690eins og ég skil hvernig þetta virkar þá sínst mér að hann sé í lagi en ef einhver á myndir af hvernig þetta virkar alltsaman þá má allveg endilega setja þær hérna inn. kv Haffi
02.12.2009 at 16:12 #669692Sæll
Það er nú svo sem ekkert olíuflóð inn á svona vél. Ég geri ráð fyrir að þú sért búinn að lofttæma kerfið. Ef þú losar spíssarörin við spíssana þá átt þú að sjá olíu leka þar úr, Ekki endilaga mjög mikið. Fáðu olíu út úr a.m.k 4-5 rörum helst öllum.
Ef hann fer ekki í gang eftir þetta þá er mál að athuga glóðarkertin. Athugaðu hvort þau hitna, eða hvort kemur straumur að þeim.
Stýringin fyrir glóðarkertin getur verið biluð. Hann fer ekki í gang ef glóðarkertin hitna ekki. Það fer svo eftir því hvaða týpa af kertum er í vélinni hve lengi þarf að hita. Ef þú ert með standard kertin þá þarf að hita þau í 3-5 sek. Einnig er hægt að fá "hægari" kerti sem þarf að hita lengur. Ekki hita standard kertin umfram 5 sek, þau geta skemmst á því.Gangi þér vel.
hjalti
02.12.2009 at 16:21 #669694Kíktu inn á http://www.thedieselpage.com. Þessi síða er tileinkuð GM díselvélum. Þarna finnur þú allt sem varðar 6.2, 6.5 og duramax.
Kauptu þér áskrift að síðunni og þá hefur þú aðgang að endalausum upplýsingum um vélina þín.
hjalti
02.12.2009 at 16:24 #669696Er ekki mekanísk olíudæla á hliðinni á vélinni. Gætir verið biluð. Það er hægt að fá rándýrar olíudælur á ljónsstöðum en þær virka bærilega skilst mér
Kv Jónsi
02.12.2009 at 18:13 #669698Það er nóg flæði að olíverkinu, en það kemur sáralítið uppá spíssana, er ekki nóg að taka af einum spíss til að lofttæma, þarf að taka af öllum?
02.12.2009 at 18:14 #669700[quote="Hjalti":2s1srbrg]Sæll
Það er nú svo sem ekkert olíuflóð inn á svona vél. Ég geri ráð fyrir að þú sért búinn að lofttæma kerfið. Ef þú losar spíssarörin við spíssana þá átt þú að sjá olíu leka þar úr, Ekki endilaga mjög mikið. Fáðu olíu út úr a.m.k 4-5 rörum helst öllum.
Ef hann fer ekki í gang eftir þetta þá er mál að athuga glóðarkertin. Athugaðu hvort þau hitna, eða hvort kemur straumur að þeim.
Stýringin fyrir glóðarkertin getur verið biluð. Hann fer ekki í gang ef glóðarkertin hitna ekki. Það fer svo eftir því hvaða týpa af kertum er í vélinni hve lengi þarf að hita. Ef þú ert með standard kertin þá þarf að hita þau í 3-5 sek. Einnig er hægt að fá "hægari" kerti sem þarf að hita lengur. Ekki hita standard kertin umfram 5 sek, þau geta skemmst á því.Gangi þér vel.
hjalti[/quote:2s1srbrg]Er einhver leið til að vita hvort hann er að hita glóðarkertin?
Er kannski óhætt að tengja þaug beint á geimir til að prófa?
02.12.2009 at 19:24 #669702Sæll aftur
Það er mín reynsla að best er að losa á nokkrum spíssum, að minnsta kosti nógu mörgum til að bíllinn eigi að fara í gang, t.d 4-5.
Hann fer ekki í gang ef hann fær einungis olíu frá einum spíss.Varðandi glóðarkertin þá er ekki auðvelt að sjá hvort þau hitna. Hins vegar ættir þú að sjá lækkaða spennu á rafkerfinu á meðan að þau hitna. Í mínum bíl dofna ljós í mælaborði og inniljós á meðan hitun stendur.
Já það er í lagi að setja vír beint frá geymi og inn á einhvern vírinn að glóðarkertunum. Þá hitna þau. Passa bara að hita ekki of lengi svo þú skemmir ekki kertin. 3-5 sek ætti að nægja, og ef ekki að prófa aftur.
Ég notað þetta trikk þegar að tímastillirinn bilaði í mínum bíl.Til að prófa hvort það kemur straumur að þeim þá getur þú mælt spennuna, eða athugað þetta með prufulampa. Það koma 12v þarna í kertin. Ég er með tengt ljós inni í bíl inn á fæðinguna að kertunum og þá veit ég hvort það fer straumur að þeim.
hjalti
02.12.2009 at 19:37 #669704Takk fyrir þetta Hjalti, ég prófa þetta
02.12.2009 at 20:27 #669706bara fá sér cummins eða eins og þeir seigja í útlönum I WOULD RATHER BE CUMMING THAN STROKING!
02.12.2009 at 20:31 #669708Prufaðu bara að gefa honum eter
hann fer í gang á því þótt kertin virki ekki,og gengur ef olíuflæðið er í lagi.
03.12.2009 at 01:56 #669710Hann er kominn í gang, virkaði að tengja glóðarkertin beint á geiminn.
Takk fyrir aðstoðina
03.12.2009 at 17:30 #669712[quote="Kjartan57":3kwq5195]Prufaðu bara að gefa honum eter
hann fer í gang á því þótt kertin virki ekki,og gengur ef olíuflæðið er í lagi.[/quote:3kwq5195]
Pabbi átti fyrir löngu síðan gamlan bát og við notuðum startgas til að koma vélinni í gang (diesel) en það gekk ekki með öðrum hætti (enda gömul og slitin vél). Svo rámar mig í að heyra að ef það væri byrjað að nota t.d. startgas þá yrði vélin háð því. Kannski bara tóm vitleysa? Það væri samt ágætt að heyra meiri reynslu af slíku ef einhver lumar á því. Kannski er þetta bara flökkusaga og kannski er munur á vélunum í dag og áður en samt hefði maður haldið að nýrri vélar væru viðkvæmar fyrir svona.
Auðvitað geri maður allan fjandann í neyð en samt ekki gott ef neyðarúrræði reynast svo bjarnargreiði með tómum leiðindum. Ekki gott afspurnar að eiga ökutæki sem er háð vímuefni.
Kv. SHM
03.12.2009 at 17:53 #669714start gas er algert eitur og sérstaklega fyrir nyrri turbo disel vélar… og ef madur þarf nauðsynlega að sprauta slikar velar þá er það bara eitt litið púst allsekki uða halfum brusanum inn og sprengja svo vélina.
Man eftir gömlum námu trukkum sem þurftu orðið 2-3 brúsa til að komast i gang i frostinu.
það eiginlega á ekki að nota þetta nema til að koma dekkjum á felgur.
03.12.2009 at 18:38 #669716[b:1eiky687]Hóflega[/b:1eiky687] notað startgas gerir ekkert slæmt nema í versta falli að þurrka upp ventlafóðrningar. Þetta hef ég eftir Leo M
03.12.2009 at 20:33 #669718Einmitt, notum við ekki allt í hófi strákar?
03.12.2009 at 22:01 #669720Þetta er reyndar ford sérfræðingur enn ef hann segir eitthvað þá er góð ástæða fyrir því ágætis afþreying að skoða siðuna hans hægt að læra margt.
http://www.powerstrokehelp.com/7.3liter … t/1of1.asp
03.12.2009 at 22:14 #669722Startsprey og glóðarkerti eru hinsvegar ekki góð blanda…….
04.12.2009 at 01:04 #669724Sæl öll
Ég á gamlan bens 250d sem er 2,5 lítra 5 cyl túrbólaus diesel. Forhitunin í honum var orðin það léleg að ég átti oft erfitt með að koma honum í gang í lok sumars. Þá setti ég granna slöngu gegnum hvalbakinn og inn í síuhúsið fyrir innan lofthreinsarann og festi hana þannig að hún væri þétt á stútnum á gasbrúsa. Þennan búnað notaði ég þar til fyrir nokkrum dögum síðan (samtals 4-5 brúsar). Ég lagaði forhitunina (skipti um kerti og lagaði sambandsleysi). Núna dettur bíllinn í gang vandræðalaust og það hefur ekki haft slæm áhrif á hann á neinn hátt að vera gangsettur nokkrum sinnum á dag með eter í u.þ.b. 3 mánuði. Málið er að sá eter sem seldur er í dag er með einhverjum smurbætiefnum sem voru ekki í gasinu í "gamla daga". Þau smurefni sjá um að vernda strokkveggina og ventlafóðringarnar.
Hinsvegar hefur mér sýnst þessi smurefni hafa neikvæð áhrif á brunahraðann í gasinu því þessar smurbættu gerðir brenna töluvert hægar heldur en eldri gerðir sem voru bara hreinn eter. Það fundum við út eftir að hafa lent í vandræðum með að sprengja dekk á felgu. Þá gerðum við tilraun sem var þannig að við sprautuðum mismunandi startgasi í ákv. langan tíma í svarta ruslapoka og lokuðum þeim svo þeir væru þéttir. Síðan hentum við logandi rokeldspýtu á pokana og það var ekki nema einn poki sem "sprakk" mðe hvelli, í honum var startgas sem heitir (minnir mig) HEAT og er í gulum/bláum brúsa selt hjá N1. Einhverntíman gerði ég svipaða tilraun með startgas sem var bara hreinn eter og í minningunni var sá hvellur enn hærri sem þýðir meiri brunahraði sem kemur sér vel til að koma dekki á felgu.
Freyr
04.12.2009 at 01:09 #669726Gleymdi einu
Þetta með að startspray og glóðakerti fari ekki vel saman, hefur einhver lent í því að sprengja soggrein eða hedd út af þessu??? Ég hef notað startgas á marga mismunandi bíla með glóðakertum og aldrei hefur komið KABÚMMM. Meðal þeirra eru 7,3 ford, 2,8 patrol, 2,5 bens, 2,4 hilux, renault traffic o.fl.
Freyr
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.