Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Glóðakerti
This topic contains 26 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 19 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
16.02.2006 at 10:16 #197328
AnonymousHvar er nú helst að bera niður varðandi að kaupa glóðakerti í gamlan 60 Cruiser, 6 cyl? Ef þau eru farin að slappast.. er þá nokkuð annað að gera en að fá sér ný? … greyið er svolítið farinn að slappast í startinu.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.02.2006 at 10:29 #542856
Sælir. Ég hef allltaf verslað kerti af þeim í Framtak-Blossi í Hafnarfirði S:565-2556
16.02.2006 at 14:10 #542858
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég tók mig til og hringdi í Bílanaust og þar reyndust þau vera næstum helming ódýrari… en gott að vita af hinum staðnum
16.02.2006 at 17:15 #542860Er það sama varan sem þú færði í Bílanaust?
Sumt þarna er óttalegt drasl…
16.02.2006 at 17:49 #542862athugaðu það. Verðið gæti kannski komið á óvart.
kv
Rúnar.
16.02.2006 at 18:11 #542864Það er óþarfi að skifta um öll ,annahvort eru þau í lagi eða ekki, þú getur prófað þau með að setja strum á eitt í enu, ef kemur blossi er það í lagi
kv.Gunni
16.02.2006 at 18:57 #542866ekki blossi heldur verður kertið bara rauðglóandi á skömmum tíma.
Persónulega mundi ég skifta um öll í einu.Bjarni
16.02.2006 at 19:10 #542868Ég átti 2 stk lc 60 árg 88 og er aðeins 1 stk kerti eða (hitari) soggreininni, þetta eru svo háþrýstar vélar að það eru ekki kerti við hvern silender eins og í nissan og fullt fullt af öðrum bílum. kv Robbi.
16.02.2006 at 22:00 #542870
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég myndi ekki mikið vera pæla neitt í verði á þessum kertum, spurning um að reyna spara einhvað og fá kerti sem þú þarft að skipta aftur um, eða kaupa þau af aðilum sem er hægt að treysta um gæði "Framtak/umboð" og þau endast vel og lengi.
17.02.2006 at 00:00 #542872Ójú víst eru kerti í hverjum cylender á LC60, hvort sem um er að ræða 4.0 eða 4.2 vélina, og svo er eftirhitunarkerti í soggreininni.
Taktu bara spöngina af fremsta kertinu og beygðu hana lítillega upp og skrúfaðu kertin í hana og láttu svissa á fyrir þig því þetta á að vera fljótt að gerast, annars ef eitt kertið er ónýtt ættu þau öll að vera það, þau eru væntanlega öll jafngömul og jafn mikið notuð.Hversu mörg volt eru kertin hjá þér?
17.02.2006 at 15:37 #542874ok, sorry sá það aldrei í mínum bílum, ég setti bara alltaf strax í gang og alltaf datt þetta strax í gang þótt það væri 25st frost, líka frábærir bílar:o)
17.02.2006 at 15:56 #542876er þetta turbinulaus bíll sem þú ert með???
17.02.2006 at 22:09 #542878Í mínum eru engin kerti, bara hitaelement í soggreininni. Ég er með turbovélina (12ht).
Í eldri turbolausu vélunum (held að þær heiti 2h) eru 6 kerti en ekkert element í sogrein.
Held að ég sé örugglega að fara með rétt mál.Ég myndi kaupa kerti á Nýbýlaveginum ef ég þyrfti að skipta út kertum í toyotu.
17.02.2006 at 22:57 #542880
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þetta er bara þetta gamla 24 volta kerfi og er með 23 volta kerti..
17.02.2006 at 22:58 #542882
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Jább.. túrbínulaus trukkur… hmmm maður ætti kannski að reyna að verða sér út um eitt stykki túrbo kitt
18.02.2006 at 12:54 #542884Toyota 2H túrbínulausa 4 l.vélin er með forsprengihólfum og glóðarkertum en org. túrbínuvélin
4.l. sem heitir 12 H er með beinni innspýtingu og
þar af leiðandi aðra stimpla og þarfnast ekki glóðarkerta.
Þar er hinsvegar hitaelement í sogreininni.
18.02.2006 at 15:07 #542886
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Jæja ekki voru það glóðakertin. Þau voru mæld og reyndust í fínu lagi… hmmm hver er þá þessi morgunstart kvilli? Gæti það verið dísurnar?
18.02.2006 at 15:16 #542888Ef að dýsurnar eru orðnar slitnar þá sést það á óhóflegum reykingum og óeðlilegri olíueyðslu. Þeir í Framtak/Blossi segja að eðlilegt sé að fara í spíssaupptekningu á 150þús kílómetra fresti og olíuverk á 250þús/km fresti. Svo ræðst það líka mikið af meðferð hvort að þetta dugi lengur á 100% nýtingu.
18.02.2006 at 19:05 #542890Hvað með olíusíuna, getur hún ekki valdið brokkgengni á morgnanna?
-haffi
18.02.2006 at 21:54 #542892
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hann reykir svolítið í morgunsárið, en ekki lengi… er duglegur að spúa í svona 30 sek .. tikkar svolítið í upphafi en er svo orðinn góður eftir smá stund
19.02.2006 at 01:04 #542894Er þetta ekki bara eðlilegt fyrir notaðan bíl?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
