Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Gíróseðlar
This topic contains 29 replies, has 1 voice, and was last updated by Jóhann Kristján Kristjáns 15 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
10.02.2009 at 21:48 #203787
Hvernig er það hjá þessari stjórn sem nú sitir verða ekki sendir út gíróseðlar fyrir árgjaldinu 09? Gott væri að fá svar við því. Kv.Sissi.Gjaldkeri Hornafjarðardeild.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
10.02.2009 at 22:27 #640498
Jæja Sissi, við erum þó búin að fá greiðsluseðlana í Suðurnesjadeildinni. Nú bíður maður bara spenntur eftir 09 miðanum á skírteinið. Spurning hvort við fáum ekki bara saman 09 og 10 miðann um næstu áramót, það væri sparnaður í því.
Kv.
Barbara Ósk
10.02.2009 at 22:40 #640500Sæl Barbara. Eru þið búin að fá seðlana fyrir löngu síðan? Ég greiddi í heimabankanum fyrir áramót en hef ekki séð neina 09 miða.
10.02.2009 at 23:02 #640502Sama hér enginn gíróseðill, ekket janúar Setur og enginn 09 miði. Greitt í heimabanka fyrir áramót.
Hef spurst fyrir hjá Stjórn RVK en ekki fengið neina viðhlítandi skýringu, ennþá, en það kemur vafalaust innan tíðar.
Kveðja
Óli Hall ritari Austurlandsdeild
10.02.2009 at 23:09 #640504ég fékk gíróseðil með setrinu um daginn….
.
.
.
.
hmmmm…..
10.02.2009 at 23:22 #640506Gíróseðlarnir komu með janúarsetrinu. Þá var ég reyndar búin að borga árgjaldið.
Ég bíð hins vegar eftir 09 miðanum mínum þar sem fyrirtæki sem veita afslátt af vörum eru (eðlilega) farin að ganga eftir því að miðinn sé á kortinu.
Kv.
Barbara Ósk
10.02.2009 at 23:24 #640508Var að koma út Setur ?
ég fékk rukkun í heimabankann og greiddi hann fyrir jól en hef ekki ennþá fengið 09 miðann. Er í Rvk.
kv
AB
10.02.2009 at 23:26 #640510Ég er búinn að borga, en hef ekki fengið neinn miða enn. Maður bíður bara, en eins og Barbara segir þá eru sum fyrirtæki farin að rukka um 09 miðann
11.02.2009 at 14:55 #640512Ég er búinn að fá janúarsetrið og borga í heimabankanum.
Hef engan miða fengið enda spurðist ég fyrir um þá á mánudagsfundinum og var tjáð að ný kort væru í bígerð. Vona að einhver í stjórn geti upplýst meira um það….
11.02.2009 at 19:14 #640514Sæl
Eins og staðan er í dag þá er verið að útbúa ný kort fyrir félagið. Reiknað er með að nýju kortin fari í póst í þessum mánuði. Einhver breyting verður á afslætti frá Skeljungi en það verður kynnt síðar (mikil hagsbót).´Stjórn Ferðaklúbbsins ákvað því að setja ekki út 09 miða til að spara póstkostnað, en ég vona að nýju kortin verði tilbúin í þessum mánuði. (ath. 09 miðar eru til ef einhver vill sendið þá póst á stjorn@f4x4.is með nafni, félagsnúmeri og símanúmeri, eða komið upp á Höfða á fimmtudagskvöldið)
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður f4x4
11.02.2009 at 21:21 #640516þegar lítið er um svör (eða þeim seinkar) þá er yfirleitt mest verið að aðhafast í málum sem menn vija fá svör við.
Haffi
11.02.2009 at 22:55 #640518Já en Sveinbjörn ég var að spurja um seðlana, hvort ætti ekki að senda þá út núna til að herða á mönnum að greiða félagsgjaldið svo við fáum nú einhverjar tekjur á þessu ári. Kv. Sissi.
11.02.2009 at 23:28 #640520Var að koma af félagsfundi í minni deild. Það hafa næstum allir fengið senda gíróseðla vegna 09. Þeir sem höfðu greitt í einkabanka fyrir áramót fengu ekki gíróseðla inn um lúguna í janúar. Reyndar ekki Setrið heldur. Þar sem Setrið og gíróseðlarnir virðast hafa fylgst að. Söknuðu sumir blaðsins, en þeir fá blaðið bara lánað hjá félögum sínum.
12.02.2009 at 09:54 #640522Manni hefnist fyrir að borga í heimabankanum,og að greiða strax og rukkunin kom inná heimabankann, því þá fær maður ekki Setrið vegna þess að seðlarnir eru ekki sendir á þá sem eru greiddir um áramót.
Setrið og seðillinn eru heft saman til að spara póstgjöld.Svona er þetta einfalt.
12.02.2009 at 10:41 #640524Sæll Sigurjón
Ég veit ekki alveg hvert þú ert að fara, það væri nú gaman að heyra í þér þannig að þú gætir útskýrt þetta fyrir mér áður enn þessi þráður fer í einhverja vitleysu.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður f4x4
12.02.2009 at 10:49 #640526Ég borgaði í heimabankanum og hef ekki fengið Setrið. Veit ekki hvort þetta hjálpar.
kv. vals.
12.02.2009 at 11:33 #640528Sælir
Setrið var sent út till allra skráðra félagsmanna, hvort sem þeir voru greiddir eða ógreiddir. Farið var eftir félagatali klúbbsins og notaðar þær upplýsingar sem þar eru geymdar. Eftir útgáfu Setursins fáum við mikið magn endursent með skilaboðum um að viðkomandi sé fluttur eða finnist ekki. Með tilkomu nýja vefsins (Þegar hann kemur) verður hægt að uppfæra heimilisföng strax, en þetta hefur verið vandamál því menn hafa gleymt að tilkynna breytingar til félagsins. En miðað við hve félagsskýrteinin berast illa til félagsmanna þá hef ég pesónulega misst mikla trú á póstinum.
En ef þið hafið ekki fengið Setrið þá vinsamlega setjið ykkur í samband við skrifstofuna okkar í kvöld, frá kl. 20 -21 og kannið hvernig þið eruð skráðir.
Kveðja
Sveinbjörn
12.02.2009 at 12:00 #640530Finnst það einkennilegt ef þeir sem voru búnir að borga fyrir áramót hafi ekki fengið Setrið. Myndi vilja sjá einhvern sem ekki var búnin að borga sem ekki fékk Setrið. Annars var þetta ekkert merkilegt Setur
Kv Lella sem fékk Setrið og er ekki búin að borga
12.02.2009 at 12:09 #640532Ég er einn af þeim sem borgaði fyrir jól og hef ekki fengið Setrið. Ég er búinn að búa á sama stað hátt í 10 svo að heimilisfangalisti hjá 4X4 er ekki skýringin því að hingað til hef ég fengið setrið. Ég held því að það ekki góð aðferð að láta alla hringja í kvöld því að í mínu tilfelli er heimilisfangið örugglega rétt en vandamálið enn til staðar þ.e. að ég hafi ekki fengið Setrið.
Það þyrfti kannski að athuga hjá póstinum hvort þessi blöð liggja þar.
Kveðja,
SHM
12.02.2009 at 12:19 #640534Ég er búinn að búa á sama stað í fjögur ár og oft fengið Setrið á þetta heimilisfang þannig að einhver önnur ástæða er rangt heimilisfang er fyrir því að ég hef ekki fengið janúar Setrið. En eins og fyrr segir þá greiddi ég fyrir áramót.Kv.Sissi
12.02.2009 at 13:07 #640536vesenið virðist ætla að loða við alla tíð, varðandi þetta blessaða Setur
Hversvegna spörum við ekki peningana og póstútgjöldin og birtum bara Setrið á netinu í rafrænu formi.
Nýjir vefurinn hlýtur að verða það flottur að hægt væri að búa til flipa á aðalsíðunni sem heitir Setrið og þar inni væri hægt að hafa öll tölublöðin. Allir fengu þá Setrið.
Held að 98% félagsmanna séu tölvuvæddir og þeir sem eru það ekki verða bara að smella sér á námskeið og komast inn í nútímann.
Þetta yrði mikill peningasparnaður fyrir klúbbinn að þurfa ekki að kosta til prentun og útburðargjöld svo ég tali nú ekki um allt rausið í kringum eitt tölublað.Meira að segja væri jafnvel hægt að gefa það oftar út og hægt væri að nota það sem fréttaannál líðandi stundar.Menn væru sennilega viljugari við að komast í ritnefnd því það væri þá ekki þörf á að suða og væla út styrki og eða auglýsingar vegna útgáfu þess.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.