FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Garmin ráðgjöf – tegundir

by Magnús Steinþór Pálmarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Garmin ráðgjöf – tegundir

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason Bergur Kristinn Guðnason 15 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 03.04.2010 at 16:01 #211857
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member

    Er að leita mér ráðgjafar með hvaða GPS tæki ég á að kaupa. Ég hef verið að lesa þræði um þetta hér á spjallinu en mér finnst ekki koma fram hvað er best í þessu.

    Geta öll Garmin tæki tengst við fartölvu og þannig fengið stærri mynd?

    Er hægt að plotta og lesa ferla í Nuvi tæki og eru þau nógu góð til að ferðast um vegslóða?

    Ég sé oft nefnd 182 tækin…eru þau rjóminn? Hvað geta þau umfram önnur?

    Maxi

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 04.04.2010 at 10:38 #689140
    Profile photo of Ríkarður Sigmundsson
    Ríkarður Sigmundsson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 38

    Sæll Maxi,

    Gott er ef einhver óháður getur leiðbeint þér en skoðanir manna eru nú misjafnar og það sem einum þykir best þykir öðrum ómögulegt. Ég hef það að markmiði að stýra mönnum sem ég er að selja tæki að tækjum sem henta því sem þeir ætla að nota og eftir situr smá val viðskiptavinar á milli tækja.

    Í jeppamennsku eru eftirfarandi tæki best; GPSmap 421, 521, 526, 620 og 276C. Oregon eru líka skemmtileg tæki. Ekki geta öll tæki tengst tölvu til að stýra hvaða forriti sem er en ekkert tæki býður uppá að tengjast skjá til að stækka skjáinn, slíkur vélbúnaður er ekki í tækjunum. Öll fyrrgreind tæki geta tengst tölvu og sent staðsetningu inná forrit eins og Ozi, Fugawi og Nobeltec en til að tengjast Garmin nRoute geta 276C og Oregon það eingöngu.

    Nuvi tækin eru ekki hentug til að nota í jeppamensku því ferilritinn er mjög einfaldur og ekki er hægt að vista ferla, einnig geta bara sum nuvi tæki unnið með leiðir. Hægt er að bjarga sér á fjöllum ef staðarþekking er til staðar með nuvi tæki en ég mæli alls ekki með að menn kaupi það tæki til að nota í jeppamennsku.

    182C er rjóminn sem tækin hafa byggt á síðan það kom út. Í dag er rjóminn að mínu mati 526 en það er dýrasta tækið. Það sem 526 hefur er mjög mikið minni fyrir ferla, leiðir og vegpunkta (meira en nokkurt annað eldra tæki) og hreint sagt frábæran skjá. Stýrikerfið í því tæki hefur verið gagnrýnt af gömlum hundum, en eins og er með gamla hunda þá er erfitt að kenna þeim upp á nýtt. Nýja stýrikerfið er ekki gallalaust en það var það gamla ekki heldur, það sem er aðall þessa nýja stýrikerfis er að það er mun auðveldara að læra á það og muna hvernig á að gera hlutina eftir mis langar pásur.

    Oregon tækin eru með þeim flottustu tækjum sem hægt er að fá, bæði í grafík og tækni, en það sem þau skortir er skjástærð.

    Ég vona að þetta hjálpi þér aðeins og vertu velkomin í Garmin Búðina í Ögurhvarfi.

    Kveðja,

    Rikki – http://www.garmin.is





    04.04.2010 at 11:32 #689142
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Sæll

    Ég hef reynslu af nokkrum tækjum og yfir nokkra ára tímabil. Það sem að mér persónulega finnst skipta miklu máli er skjárinn og aðhann geti virkað við mismunandi birtustig. Ég byrjaði að nota Garmin 128 minnir mig og það virkaði t.d. ekkert rosalega vel í mikilli sól. Ég hef svo einnig reynslu af Garmin 192C [img:1a4e9hdu]https://static.garmincdn.com/en/products/010-00431-00/g/cf-lg.jpg[/img:1a4e9hdu]. Þetta tæki fannst mér mjög gott. Góður skjár, gott stýrikerfi, stórt minni fyrir ferla, leiðir og punkta.

    Ég mæli með því að þú kíkir einfaldlega á Rikka og skoðir hvað er í boði í dag. Ég held að það sé hætt að framleiða þessi 192C tæki þannig að það er kannski ekki í boði í dag.

    kv
    Einar





    04.04.2010 at 13:03 #689144
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Þakka ykkur fyrir báðir tveir.

    Munurinn á 620 og 526 er tölvvert mismunandi framsetning upplýsinga eða hvað? Er 620 með 3D (terrain) en ekki 526?

    Ég sé að 620 er snertiskjáatæki á meðan 526 er með hefðbundnum tökkum…kostur eða galli? Ég ætla líka að nota tækið á vélsleða……..ætti það að breyta einhverju í valinu?

    M





    04.04.2010 at 14:22 #689146
    Profile photo of Sigurður Már Olafsson
    Sigurður Már Olafsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 160

    Er með 620 í jeppanum hjá mér, ekkert nema tóm hamingja.
    Mæli með því tæki.

    Kv Siggi





    04.04.2010 at 16:20 #689148
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Takk fyrir afgerandi svar Danfox. Er dálítið spenntur fyrir þessu tæki.

    M





    04.04.2010 at 16:26 #689150
    Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason
    Bergur Kristinn Guðnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 371

    Smá spurning til Rikka af því að ég sé að hann hefur svarað hérna. Ég er með garmin gpsmap 130 í bílnum, gamalt tæki en dugar fínt fyrir mig. Nú er baklýsingin biluð, það skeði í síðustu jeppaferð. Er eitthvað hægt að laga þetta, eða er einhver sem gerir við þessi tæki.
    Kv Beggi





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.