FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Gangtruflanir í 4Runner 3,0 TD

by Gísli Rúnar Kristinsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Gangtruflanir í 4Runner 3,0 TD

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 16 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.11.2008 at 23:54 #203233
    Profile photo of Gísli Rúnar Kristinsson
    Gísli Rúnar Kristinsson
    Participant

    Sælir Drengir. Ég er að glíma við bilun í hlauparanum mínum sem lýsir sér svo að í lausagangi þá gengur bíllinn eðlilega en við inngjöf þá byrjar hann að banka og kafreykja díselreyk á snúningsbilinu 1500-2000 Rpm það er eins og hann sé að fá allt of mikla olíu á þessu bili. Hann hefur fullan kraft á botngjöf en verð var við smá hik og bank í akstri á þessu snúningssviði. Mótorinn virðist vera réttur á tíma samkvæmt merkjum og er allur hin besti að öðru leyti enda ekki keyrður nema rúm 40 þús frá allsherjarupptekt. Það er búið að setja við mótorinn intercooler. Er kannski búið að skrúfa olíuverkið svona mikið upp í honum að hann er að pumpa of mikilli olíu miðað við loftmagnið eða er einhver sensor þarna sem gæti verið sökudólgur.
    Hvað segja reynsluboltarnir. Kannast enginn við svona bilun

    Kv einn orðinn pirraður

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 20.11.2008 at 00:03 #633096
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Í 4runner með orginal dísel, eru engir helvítans rafmagnsskynjarar. Það útilokar annsi margt.
    Ég verð nú að viðurkenna að ég þekki ekki alveg nógu vel þessa vél (þó ég sé með eina oní húddinu hjá mér) eða dísel yfir höfuð. En fyrst hann er réttur á tíma, gæti verið að ventlarnir séu eitthvað vanstilltir? Of mikið skrúfað í olíuverki gæti svosem verið málið, en finnst eins og það ætti ekki að lýsa sér svona. En ég hef svosem aldrei skrúfað uppí mínum. (enda svo kraftmikill á 4,56:1 á 44" h0h0h0h0h….)
    .
    Getur verið að túrbínan sé ekki að blása almennilega hjá þér? Ef hann sveltur af lofti þá reykir hann þar til túrbínan kemst á snúning, en í þessum bílum á hún nú reyndar að gera það fyrir 2000rpm …
    Svosem bara ágiskun.
    .
    Grútarbrennarakveðjur, Úlfr
    E-1851





    20.11.2008 at 00:16 #633098
    Profile photo of Róbert Örn Albertsson
    Róbert Örn Albertsson
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 39

    Getur verið að túrbínan sé að soga vélarolíu?? Bara hugmynd… Getur líka verið að olíuverkið sé vanstillt.





    20.11.2008 at 08:14 #633100
    Profile photo of Helgi V. Viðarsson Bierin
    Helgi V. Viðarsson Bierin
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 155

    Slitnir spíssar. það gæti útskýrt bankið. þ.e. að í stað þess að það komi úði úr spíssunum séu farið að koma dropar.
    Bara mín 2 cent
    kv.
    Helgi B





    20.11.2008 at 11:40 #633102
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Svona þegar þú minnist á það Helgi, þá lætur minn mótor líka svolítið leiðinlega ef hann er búinn að ganga svolítið hægagangi, þeas reykir svoldið á lægri snúning eftir það, mér var tjáð að þetta væru spíssarnir, það læki einmitt "dropar" í stað úða, eða að úðinn væri ekki nógu "hreinn". Ég hef alltaf ætlað að skipta um dísur í spíssunum og gera þá tiptopp en hef aldrei komið mér í það. Þetta gæti verið annsi líkleg orsök. 😉
    .
    Voru spíssarnir teknir upp við vélaupptekninguna?
    .
    kkv, Úlfr semveitekkertalltofmikiðumdíselvélar.
    E-1851





    20.11.2008 at 12:40 #633104
    Profile photo of Ástmar Sigurjónsson
    Ástmar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 226

    Hvernig er reykurinn á litinn sem kemur þarna á milli 1500-2000 snúninga?

    Ef reykurinn er blár, þá erum við að tala um spíssavandamál, þ.e. að dísurnar ýra olíunni ekki nógu vel. Eða að það er kominn smurolía með, sem gæti þá helst verið frá túrbínu, ég hef samt ekki mikla trú á því, en þú finnur á lyktinni hvort um er að ræða smurolíu eða dísil.

    Ef reykurinn er svartur, þá ertu klárlega að fá alltof mikla olíu miðað við loft. Ef þú ert búinn að skrúfa upp í olíuverkinu er alveg séns að olíuverkið byrji of snemma að hrúga olíu inná vélina, þ.e. að boostið sé ekki orðið nóg til að ráða við alla þessa olíu. En ég þekki ekki þessar tilteknu vélar nógu vel til að vita hvernig þessi verk eru stillt eða hvernig þau haga sér nákvæmlega.

    Ég lenti einusinni í með Nissan laurel sem ég átti að hann fór að mökkreykja ef ég fór yfir 3500 sn/min. Hann var túrbólaus en að öðru leiti sama vél og er í patrol uppúr ’90, það kom á endanum í ljós að tíminn á olíuverkinu hafði breyst um einhverjar gráður þegar heddið var tekið upp, ég tók bara groddan á það og merkti olíuverkið saman við festingarnar, losaði það og bankaði það svo aðeins til til að flýta olíutímanum og festi það aftur, það svínvirkaði. Reykurinn fór ekki að koma fyrr en í kring um 4500 sn/min, og vélin fór að vinna betur.





    24.11.2008 at 12:19 #633106
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Hvernig fór með bílinn Gísli? Komstu að því hvað var að?
    .
    kkv, Úlfr
    E-1851





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.