FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

gangtruflanir

by Eggert Ólason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › gangtruflanir

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Eggert Ólason Eggert Ólason 16 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 03.04.2009 at 22:21 #204168
    Profile photo of Eggert Ólason
    Eggert Ólason
    Participant

    sælir félagar! Ég er með litla nissan tík (ekki jeppi, sorry) 91″ 4×4 sem missir mátt í langferðum, stundum einu sinni í ferð, stundum oftar og stundum aldrei. það skiftir ekki máli hvort það er rakt eða þurrt´á vegi. kerti, þræðir, lok og hamar í góðu standi og ný sía. ég er alveg ráðþrota og sárvantar ráð.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 03.04.2009 at 22:53 #645116
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Átti einu sinni Subarutík sem lét svona, í því tilfelli var það bensínsía sem var að angra hann, var sagt að þetta væri sían en trúði því ekki eftir að hann lét alveg eins eftir að ég var búinn að skifta um hana. En þá var lítil sía inni í inntakinu á blöndungnum sem hafði verið að smástíflast og var orsökin að vandræðunum, tékkaðu á þessu. Kveðjur, L.





    03.04.2009 at 22:56 #645118
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    Ég myndi ath. hvort bensínlokið sé of þétt nú eða ath. bensínsíuna, það kostar ekkert að skoða þetta og vel tilraunarinnar virði.
    kv:Kalli





    03.04.2009 at 23:04 #645120
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Er hann með innspítingu eða blöndung? Þetta minnir nefnilega svolítið á blöndungsísingu.
    .
    Það er yfirleitt barki frá pústgrein í lofthreinsara til að koma í veg fyrir hana en ég lenti í því með Súkku að þennan barka vantaði og þá lét hún akkúrat svona (hef samt aldrei lent í þessu með amerískar V8 blöndungsvélar).
    .
    Ef hún er með innspítingu þá á þetta náttúrulega ekki við.
    .
    JHG





    03.04.2009 at 23:14 #645122
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Það verður með tímanum vax myndun í leðslum og sígu, þetta geris bæði í bensinibíl og díselbíl, það mætti bjóða honum upp á ísvara og Redex sinhvurn brúsan saman. Ísvarin eiðir vatninu sem hefur myndast og Redexi vaxinu og sóti sem myndast við spíssa , REdex er til í bæði bensín og olíu . Þetta mætti reina

    kv,,, MHN





    04.04.2009 at 01:02 #645124
    Profile photo of Eggert Ólason
    Eggert Ólason
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 145

    Hmm! Bensínsíurnar eru báðar nýjar, sem og lagnir og hitabarkinn í blöndunginn. Aftari hluti pústsins er líka nýr en hvarfakúturinn er gamall, gæti það verið vandamálið?





    04.04.2009 at 15:41 #645126
    Profile photo of Eggert Ólason
    Eggert Ólason
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 145

    þegar þetta kraftleysi gerir vart við sig þá hef ég farið út í kant og drepið á honum og sett hann í gang eftir cirka 1 mín og þá verið góður í mismunandi langan tíma, stundum 10 mín eða góður það sem eftir er ferðar. HJÁLP!!!





    04.04.2009 at 16:25 #645128
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Það er ekki alveg óhugsandi að bensínblandan sé of feit. Finndu blöndustillingarnálina/loftskrúfuna og þegar bifreiðin er heit skaltu skrúfa nálina út, með bílinn í gangi. Skrúfaðu varlega þar til þú heyrir að dregur niður í bílnum og þá skrúfarðu agnarögn inn aftur.





    04.04.2009 at 18:00 #645130
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    Truflanir eins og þú lýsir eru vafalaust annað hvort kveikjuvandamál eða bensínkerfisvandamál.
    Fyrst þú ert búinn að skipta um allt í kveikjunni nema háspennukeflið þá myndi ég veðja á það.
    Það er þó nokkuð algengt að keflin séu OK köld, en hætti að virka þegar þau hitna og lagist svo aftur við að kólna.
    Einhver var búinn að nefna að athuga hvort bensínlokið hleypi ekki örugglega lofti inn. Ef það sogast glás af lofti inn þegar þú opnar lokið eftir að bíllinn missir kraft þá er það merki um stíflaðan loftventil. Eins ef hann byrjar að missa kraft og þú nærð að stoppa og opna lokið þá ætti hann að hressast strax.
    Er blöndungurinn nokkuð með glerglugga þar sem er hægt að sjá hvort sé eðlileg bensínhæð í flotholtshólfinu ?

    GL.

    Ágúst





    05.04.2009 at 13:00 #645132
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þetta hljómar alveg eins og háspennukeflið sé ónýtt, ég hef átt fullt af bílum á þessu aldursskeiði sem hafa lent í þessu. Fínn þegar hann er kaldur og svo þegar hann fer að hitna þá er þetta algjört lottó hvað gerist. Suma daga gerir þetta ekki einusinni vart við sig en alltaf þegar síst þarf á því að halda.





    05.04.2009 at 13:17 #645134
    Profile photo of Eggert Ólason
    Eggert Ólason
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 145

    loftventillinn fyrir tankinn er í lagi, en háspennukeflið?! Það gæti verið hið stóra vandamál, fer í það. Ég þakka fyrir allar ábendingar. Takk.
    eggert
    X-761.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.