This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 21 years, 2 months ago.
-
Topic
-
Getur einhver frætt mig aðeins um verð og slíkt.
Þannig er mál með vexti að ég á nú Wrangler þessa stundina, en stefni á háskólanám í haust og mun þá ekki hafa efni á því að reka hann með skólanum. Svo ég hef verið að gæla við þá hugmynd að kaupa mér þá bara einhvern gamlan Willys, hvort sem það er fimma eða hvað. Bara að það sé bíll sem hægt er að bruna á upp á Skjaldbreið tvisvar, þrisvar á vetri.
Þá datt mér í hug að leita til manna um verð á svona bílum svo ég geti haldið áfram að reikna og pæla.
Að sjálfsögðu fer verð eftir breytingum og slíku, en ég er þá að pæla einna mest í bíl sem getur allavega eitthvað og er búið að gera svona lágmarksbreytingar að minnsta kosti. En ég hef þá einna helst bíla í huga undir 250 kalli og alls ekki meir. Hversu raunhæft er þetta svona miðað við að kaupa ekki einhvern ryðhaug bara.
Og eitt enn, er eitthvað framboð af „flat fender“ bílum á landinu, því lengi hefur mig langað í svoleiðis græju.Kveðja, Andri.
You must be logged in to reply to this topic.