FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Gamli skát

by Karl Hermann Karlsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Gamli skát

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Karl Hermann Karlsson Karl Hermann Karlsson 17 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.05.2007 at 15:36 #200337
    Profile photo of Karl Hermann Karlsson
    Karl Hermann Karlsson
    Participant

    Sælir. Ég ákvað að ganni að sýna ykkur skátinn minn.

    Ekki margir svona orðnir eftir.

    Hér er linkur á kvikindið

    http://www.live2cruize.com/phpbb2/viewtopic.php?t=55990

    PS: Endilega látið mig vita ef linkurinn virkar ekki.

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 19.05.2007 at 22:33 #591328
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Scout er einn af þeim bílum sem ég hef alltaf sterkar taugar til. Ég átti þennan [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/3712/24468:vt1i2tja][b:vt1i2tja]hérna[/b:vt1i2tja][/url:vt1i2tja] og hann var hrein snilld. Þessir bílar voru einhverskonar uppfyllingar framleiðsla hjá International en engu að síður voru þeir mjög vel heppnaðir, sterkir og góðir bílar en ryðguðu því miður talsvert hratt eins og fleiri bílar frá þessum tíma. Gömlu Scout 80/800 voru án nokkurs vafa fyrirmyndinn þegar Ford setti Bronco á markaðinn. Þegar framleiðslu var hætt 1980 var á teikniborðinu framúrstefnulegur jeppi sem hefði verið gaman að sjá komast á götuna.





    20.05.2007 at 15:15 #591330
    Profile photo of Karl Hermann Karlsson
    Karl Hermann Karlsson
    Participant
    • Umræður: 140
    • Svör: 1159

    Jább. Skemmtilegar græjur og sterkt í þessu.
    Merkilegt með þennan bíl hvað það er gott að keyra hann. Hann er nátturulega frekar hastur vegna þess að hann er enn á fjöðrum en það er svo skrytið með það að það er ekkert til í honum sem heitir rás eða leiðinlegur í stýri. Hann er t.d alveg draumur á 100 utanbæjar. Eg hefði aldrei trúað því, og ég næ að láta hann hanga í 13L/100km á 90km hraða sem mér finnst alveg ásættanlegt :)

    Svo er bara spurning hvernig þetta endar.
    Hvort að maður heldur áfram að bæta og breyta eða hvort maður selur hann.

    Það sem ég hef mest verið í er fyrirbyggjandi viðhald og betrumbætur eins og t.d þessi sjálfskiftikælir sem kemur original með hitanema og viftu ( B&M ) og þessi sjálfskiftipanna. Nú held ég að ég sé búinn að tryggja að ég steikji skiftinguna amk ekki útaf hita , þá er bara að snúa sér að næsta sem verður líklega einhver breyting á framskafti ..

    Það er hellsti ókosturinn við þessa bíla hvað framskaftið er ROSALEGA Grannt og ekki með 2földum lið. Veit ekki alveg hvernig ég á að massa það til þar sem að sverara skaft með 2földum kemst enganvegin fyrir útaf því hvað það liggur nálægt sjálfskiftingunni. Spurning hvort þetta mundi funkera betur með öðruvísi kassa en dana 20.





    20.05.2007 at 20:39 #591332
    Profile photo of Andri Guðmundsson
    Andri Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 60

    Notalegt að sjá að þessir gripir eru ekki öllum gleymdir.
    Það eru engin takmörk fyrir skemmtanagildinu :o)
    Og svo verður enginn sár þó eitthvað gefi sig, kostar ekki milljónir að laga þetta…Þennan á ég í sveitinni: old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx … 3449/30366





    20.05.2007 at 21:48 #591334
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Átti einmitt 1972 árgerðina af Scout II, hann var reyndar með "hálf átta" sleggjunni, 192 cid minnir mig – ekkert sérstaklega snarpur en déskoti mikið torque og sennilega ódrepandi mótor þannig lagað séð. Þetta var fyrir daga alvöru dekkja og ég var bara með L78-15" undir honum, sem þótt nú bara þokkalegt þá! En bodyið var óskaplega ryðsækið, enda var held ég ryðvörnin í þá daga ekki neitt sérstök og allra sístir voru bílar frá ameríkuhreppi. Verksmiðjur gerðu yfirleitt ekki neitt til að verja stálið í þá daga. En drifrásin var nokkuð sterk, mig minnir að það væri dana 44 að framan, man bara ekki afturásinn. Getur verið að original hlutföllin með þessari 4ra cyl sleggju hafi verið 4,86:1 ? Er bara búinn að gleyma þessu enda 30 ár síðan ég seldi gripinn!





    20.05.2007 at 23:23 #591336
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Þessi hálf-átta var stórundarlegur mótor, var V8 blokk sem var búið að fjarlægja 4 cílendra af. Þeir 4 sem eftir voru hölluðu eins og í áttu og ef ég man rétt var lok á blokkinni þar sem hinir fjórir hefðu annars verið.





    21.05.2007 at 14:34 #591338
    Profile photo of Karl Hermann Karlsson
    Karl Hermann Karlsson
    Participant
    • Umræður: 140
    • Svör: 1159

    Akkúrat.
    Það er einmitt komið svolítið ryð í þennan og veitir svosem ekkert af því að fara að taka hann aðeins í gegn.

    Það stendur til að gera hann sætan fyrir veturinn.

    En botn , grind og allt það er stráheilt og t.d er grindin svart lökkuð og mjög fín.

    Allt kram , legur , bremsurör , slöngur , stýrisendar og allt það er í 100% lagi enda flest allt nýtt eða nýlegt.

    Það væri nú gaman ef einhver lumar á 44" og felgum undir þennan grip handa mér.

    Frekar lítið framboð af felgum undir hann hér nema kanski sem þarf að breikka.

    Væri ágætt ef einhver gæti gramsað eftir felgum og ekki væri verra ef það væru 44" DC á
    ( þetta er að sjálfsögðu 5 Gata dana 44 )

    Endilega vera í bandi.

    e-mail – Kalliihofda@simnet.is
    msn – kalliihofda@yahoo.com
    gsm – 8492576
    heimas-4663021

    Kveðja: Kalli Kalla Geirs

    PS: Eg er staddur á kópaskeri þannig að ég get ekki sótt felgur og dekk en það er lítið mál að græja flutning til Húsavíkur þar sem bíllinn kemur til með að standa inni í sumar og verður vonandi græjaður á 44" og Gorma eða 4link fyrir veturinn.

    Einnig væri nú gaman ef einhver lumar á 2 Dana 20 samsettum eða Einhverju með lágalága sem passar á 727 Torqueflite





    21.05.2007 at 14:38 #591340
    Profile photo of Karl Hermann Karlsson
    Karl Hermann Karlsson
    Participant
    • Umræður: 140
    • Svör: 1159

    Haha Andri stórglæsileg mynd af eðalvagni :)

    Verra með framöxlana.

    Eg lennti reyndar í því að kubba framskaft um daginn enda kjánalega grannt miðað við sverleika á öllu öðru í bílnum. Gæti reyndar hugsast að það sé örlítið of langt þar sem að þessi bíll var með aðra vél og beinskiptur.
    Sýnist ekkert hafa verið gert við skaftið nema að brjóta það amk einusinin áður ( gömul suða sem fór ) Og annað skiptið sem það brotnar hjá mér :(

    Er að reyna að finna einhverja lausn á því þar sem að ekki er hægt að koma almennilegu skafti þarna undir með Dana 20 og 727 .. skaftið liggur svo nálægt skiptingunni.

    Var reyndar búinn að minnast a það hér fyrir ofan en ágætt að impra á því ef einhver er með lausn :)

    Kv. Kalli Kalla Geirs





    21.05.2007 at 23:27 #591342
    Profile photo of Garðar Tryggvason
    Garðar Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 4

    Sælir drengir.
    Verulega gaman að sjá að maður er ekki eini sérviskupúkinn á landinu sem heldur upp á Scout. Ég átti einn 72 þegar ég var ungur drengur (sem sagt fyrir löngu síðan) og ég hef aldrei losnað við löngunina til að eignast annan, ég lét þann draum rætast á síðasta ári og verslaði einn 74. Það er rétt sem einhver sagði hérna að þeir vildu ryðga talsvert og ég fékk einn ansi vel músétinn en það má leggja á sig mikla vinnu fyrir svona eðalvagna.





    22.05.2007 at 11:09 #591344
    Profile photo of Heiðar S. Engilbertsson
    Heiðar S. Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 414

    Ég á dekk og felgur ef þú hefur áhuga.

    Kv. Heiðar
    gsm 6606222





    22.05.2007 at 18:21 #591346
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Er ekki bara hægt að nota rör með meiri veggþykkt í skaftið?





    22.05.2007 at 22:35 #591348
    Profile photo of Andri Guðmundsson
    Andri Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 60

    Ég er með Dana 20 og 727. Skaftið hjá mér er eðlilega svert og með tvöföldum lið, en ég vildi ekki stinga puttanum á milli liðs og pönnu….. Það rekst ekki í nema við mjög extreme aðstæður, eins og til dæmis í lendingunni úr þessu stökki þarna. Leiðinlega lítið sem þyrfti að minnka liðinn til að sleppa alveg.





    23.05.2007 at 00:11 #591350
    Profile photo of Karl Hermann Karlsson
    Karl Hermann Karlsson
    Participant
    • Umræður: 140
    • Svör: 1159

    Hmmm skrytið..

    Ég veit ekki hvað þetta á að þýða. . ég er búinn að bera eðlilegt skaft þarna við með lið og það þarf ekki einusinni að reyna að koma því fyrir …

    Spurning um að fara samt aðra ferð undir kvikindið og skoða betur ..





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.