FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Galileo

by Guðbrandur Þorkell Guðbra

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Galileo

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Heimir Jóhannsson Heimir Jóhannsson 19 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 29.12.2005 at 09:00 #196947
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member

    Jæja, þá ætlar EU að fara að koma sér upp staðsetningarkerfi baseruðu á gerfihnöttum. Sjálfsagt er það hið besta mál, en ef marka má fréttir er íslenska ríkið aðili að málinu. Það hefur líka komið fram, að þetta kerfi verður ekki ókeypis, eins og GPS – kerfið hefur verið til þessa a.m.k., og mikið má vera ef það verður ekki með einhverjum ráðum komið í veg fyrir að við hér á landi getum nýtt okkur ókeypis aðgang að GPS – kerfinu eftir að þetta er komið til skjalanna, sem verður væntanlega innan fárra ára. Eru ekki einhverjir 4×4 félagar sem vita meira um þetta mál en til þessa hefur komið fram í fréttum? Það væri gaman ef þeir hinir sömu vildu miðla okkur hinum.
    Óska svo öllum félögum 4×4 velfarnaðar á nýja árinu.
    kv. Þorkell G.

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 29.12.2005 at 12:25 #537380
    Profile photo of Jón Tómas Erlendsson
    Jón Tómas Erlendsson
    Member
    • Umræður: 10
    • Svör: 98

    Hérna kemur hlekkur á heimasíðu Galileo verkefnisins. Þar kemur m.a. fram að ekki mun þurfa að greiða fyrir frum þjónustu kerfisins, þ.e. samsvarandi þjónustu og GPS veitir.

    [url=http://europa.eu.int/comm/dgs/energy_transport/galileo/index_en.htm:1rc2ntus]Galileo[/url:1rc2ntus]





    29.12.2005 at 12:39 #537382
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Lofa nákvæmni upp á undir 1 meter með samnýtingu allra kerfana (ef ég skil þetta rétt). Á að vera nógu nákvæmt og áræðanlegt til að geta lent flugvélum.

    Magnað.
    kv
    Rúnar.





    29.12.2005 at 12:58 #537384
    Profile photo of Guðmundur Jónsson
    Guðmundur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 1116

    Galileo var ekki svokallaður faramaður heldur brautryðjandi og finnst mer nafnið á þessu verkefni vera niðrandi fyrir snilling eins og hann.
    það er kannski ágæt að fá samkeppni en raunveruleg ástæða verkefnisins eru draumar EU um GPS tengd gjaldkerfi fyrir öll farartæki sem ferðast um land og láð bandalagsins. Komið hefur fram í fréttum að ríki innan sambandsins hafa reynt að semja við BNA um notkun kerfisins í slíkum tilgangi en BNA hafnar því alfarið þeir vilja sjálfsagt geta ruglað sitt kerfi ef þeir telja þörf á því. Íslendingar hafa meira að seigja eytt fjármunum í að athuga kosti slíkra gjaldkerfa fyrir bíla án þess að taka tillit til kostnaðarins við gps kerfið sem er kannski ekki mjög gáfulegt. Nákvæmni gps kerfisins sem fyrir er meiri en 1 meter og það er verið að lenda flugvélum eftir því kerfi.
    Guðmundur





    29.12.2005 at 13:46 #537386
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Eins og við vitum flest, þá er þegar búið að útbúa tæki fyrir bíla, sem gerir "Big Brother" fært að fylgjast nákvæmlega hvert við förum á bílunum okkar, á hvaða hraða við ökum o.s.frv. Líklega verður líka í því skynjari til að tékka á því hvort við séum edrú. Síðan verður það okkar að afsanna "sekt" ef tækið sýnir einhverja bölvaða vitleysu, því þau bila nú þessi gadgets. Svo eigum við líka að borga stórfé fyrir að stóribróðir fái að fylgjast með okkur. Eins og sprottið út úr höfði embættismanna ríkisins.





    29.12.2005 at 14:47 #537388
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Allar framfarir kosta eitthvað og við verðum að
    borga þær hvor sem við viljum það eða ekki
    þeir finna ráð til að láta okkur borga þær það
    hefur hingað til tekist því miður þeir gera
    þetta ekki frítt
    PS: ég mun halda mig við GPS usa kerfið
    meðan það hefst mögulegt .
    kv mhn





    29.12.2005 at 16:44 #537390
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég er búinn að vera að fylgjast með þessu kerfi dáldið og get sagt ykkur það að þetta er samhæft við GPS kerfi kanans og Glonassið hjá rússanum.

    s.s. þetta sendir líka út ókeypis bylgjurnar sem eru eins uppbyggðar og GPS bylgjurnar frá kananum og það verður ókeypis áfram.

    svo er verið að senda út eitthvað meira sem er áhugavert fyrir flugvélar held ég og stóra bíla og skipaflota og eitthvað. hef lítið skoðað það…

    en þeir segja að þetta eigi eftir að gjörbreyta nákvæmninni og fjölda hnatta sem hægt er að ná hér á norðurhveli m.v. núverandi kerfi. og GPS hlutinn verður ókeypis áfram.

    lallinn





    29.12.2005 at 17:02 #537392
    Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson
    Hafþór Atli Hallmundsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 810

    Mun þetta system passa við þessi GPS tæki sem koma (að ég held) öll frá Bandaríkjunum? Mun eittvað þurfa að endurstilla GPS-tækin eða ganga þau bara á hvaða tungl sem er eða þurfa menn sem ætla að nota þetta að kaupa sér ný tæki? Hvernig mun þetta kerfi aðgreyna sig frá hinum kerfunum- munu þau semsagt ekkert rugla saman merkjasendingum (eða hvað það nú kallast).

    Einn vitlaus og forvitinn
    Haffi H-1811





    29.12.2005 at 17:40 #537394
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Haffi það eru mismunandi tíðnir í kerfunum og einnig mismunandi lotur merkja þannig að gps sem ruglast á milli þessara kerfa myndi kalla ónýtur og myndir líklegast ekki virka vel hvort eð er í upphafi.

    Kveðja Fastur





    29.12.2005 at 17:56 #537396
    Profile photo of Guðmundur Jónsson
    Guðmundur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 1116

    EU eru búnir að vera að rifast við kanan um tíðnina á þassu EU GPS kerfi og niðurstaðan er sú að tíðni þessar kerfa er ekki sú sama Ég sé reindar ekki neinn tilgang með því það er ekki hægt nota sömu gps tækin út af tíðninni einig á merkið í þessu kerfi að vera kóðað svipað og gsm merki þannig að til að geta notað merkið þarf samning við aðilan sem rekur batteríið og hann getur svo lokað á einstaka notentur ef þeir eru leiðinlegir eða borga ekki reikningin sem sem þer segjast reyndar ekki ætla að senda. Þetta er eini tæknilegi munurinn sem ég sé á þessu og hinu gps kerfinu.
    Guðmundur





    29.12.2005 at 22:05 #537398
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    þessu hefur verið breytt frá því ég var að lesa þetta síðast. þessi kerfi verða s.s. ekki samnýtanleg nema kaupa nýjar græjur sem eru gps/galileo compatible.. jahérna hér og hananú. en það eru nú enn nokkur ár í að þetta verði ready… 2008 eru menn að tala um. ég reyndar sendi fyrirspurn um þetta á sínum tíma til Garmin (c.a. 1 ár síðan) og þá fékk ég það svar til baka að Garmin væri ekki með það á dagskrá að þróa fyrir þetta kerfi á næstuni en myndi senda út tilkynningu um málið þegar þeim hentaði.





    29.12.2005 at 23:04 #537400
    Profile photo of Heimir Jóhannsson
    Heimir Jóhannsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 171

    Ég er búinn að fylgjast með þessu í nokkur ár og fengið annað slægið pósta sem ég var áskrifandi af. Á tímabili var óvíst hvort þetta færi í loftið en svo kom fjármagn frá Evrópusambandinu sem sparkaði þessu almennilega af stað. Í dag eru 2 kerfi í gangi annars vegar rússneska kerfið og hins vegar gps kerfið sem við þekkjum. Bæði þessi kerfi eru með ásættanlega nákvæmni en hæðar nákvæmnin hefur ekki verð eins góð. Eins og þetta kemur mér fyrir sjónir kemur þetta flugmönnum og flugöryggi fyrst og fremst til góða. Þegar þetta verður komið á 2008 verður sennilega hægt að lenda rellunni fullur. Þetta gefur líka hryðjuverkamönnum kost á að skjóta kjarnaflaugum með meiri nákvæmni inn um gluggan hjá Ólafi Ragnari eða Gorge Bush. Ég er ekki að sjá mikið benefit fyrir okkur jeppamenn í þessu, nema fyrir þá sem hafa gaman að staðsetja skála og sprungur með meiri nákvæmni. Munar kannski 3-6 metrum.

    kv,
    heijo





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.