This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Barbara Ósk Ólafsdóttir 17 years, 5 months ago.
-
Topic
-
Ágætu félagsmenn,
Stjórn 4×4 er að hefja vinnu við að fara yfir efni í eigu klúbbsins, þar á meðal myndbandsspólur sem stendur til að færa yfir á DVD og halda til haga svo hægt sé að veita félagsmönnum aðgang að þeim til skemmtunar og fróðleiks. Á næsta ári er og 25 ára afmæli klúbbsins og þarf að fara yfir mikið efni til að sjá söguna í skýrara ljósi.
Stjórnin skorar á þá félagsmenn sem gætu verið með myndbandsspólur, myndir, pappíra eða hverskonar önnur gögn í eigu klúbbsins, að líta yfir það hjá sér og koma þeim til skrifstofu sem allra fyrst.Með fyrirfram þökk,
Stjórn 4×4
You must be logged in to reply to this topic.