This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Guðmundsson 13 years ago.
-
Topic
-
NAFNFRÆÐIFÉLAGIÐ
Fyrsti fræðslufundur félagsins í vetur verður haldinn laugardaginn
29. okt. nk. í STOFU 106 Í ODDA, HÚSI HÁSKÓLA ÍSLANDS, og hefst
kl. 13.15.ÁRNI HJARTARSON JARÐFRÆÐINGUR HELDUR FYRIRLESTUR SEM HANN NEFNIR
_HELLANÖFN OG HELLASÖGUR_
Hellafræði (speleology) er gömul og gróin fræðigrein sem fjallar
um hella og allt sem að þeim lýtur. Þess vegna hafa hellafræðingar
einnig fengist við athuganir á nafngiftum hella. Samt lúta hellanöfn
ekki neinum sérlögmálum innan nafnfræðinnar. Íslenska hella má
flokka í fjóra meginflokka. Þeir eru: hraunhellar, aðrir
náttúruhellar, manngerðir hellar og þjóðsagna- eða hulduhellar.
Fjallað verður lítillega um þessa flokkunarfræði í
fyrirlestrinum.Mörg hundruð hellar og skútar um allt land bera sjálfstæð nöfn.
Mörg þeirra eru ævagömul og bera vitni um fornar nytjar, fólk og
atburði. Fjöldi hella hefur fundist á síðustu árum og mörgum
þeirra hafa verið gefin nöfn. Mikill meirihluti þeirra er nýr.
Fjallað verður um þessi nýnefni, einkenni þeirra og flokkun. Margir
hellar munu koma við sögu, t.d. Surtshellir, Víðgelmir,
Sóttarhellir, Mögugilshellir, Loddi, Papahellir, Gnipahellir,
Rútmagahellir, Maístjarnan og Leiðarendi svo einhverjir séu nefndir.Athugið breyttan fundarstað!
Félagar eru hvattir til að sækja fyrirlesturinn og taka með sér
gesti.
StjórninKv. Magnús G.
You must be logged in to reply to this topic.