This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Karl GuðJónsson 13 years, 11 months ago.
-
Topic
-
http://mbl.is/frettir/innlent/2011/01/13/fylgjast_naid_med_grimsfjalli/
Tekið af vef mbl.is
Nokkur skjálftavirkni virðist vera enn í kringum Grímsfjall, eftir að skjálfti upp á 4,2 stig mældist við Grímsfjall laust fyrir hálf tíu í morgun. Ekki liggur fyrir hvort hætta sé á því að eldgos hefjist á svæðinu. Veðurstofan fylgist vel með stöðu mála en segir að engin merki séu um gosóróa.Jarðskjálftar eru algengir á þessu svæði og eru Grímsvötn ein virkasta eldstöð landsins. Eftir að hlaup hófst í Gígjuhvísl þann fyrsta nóvember síðatliðinn, töldu margir að eldgos á svæðinu myndi fylgja í kjölfarið.
Fram kemur á vef almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, að Veðurstofan fylgist með framvindu mála og upplýsi almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
You must be logged in to reply to this topic.