Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Fundargerð aðalfundar.
This topic contains 122 replies, has 1 voice, and was last updated by Halldóra Ingvarsdóttir 16 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
04.05.2008 at 21:37 #202402
Hvar er hægt að lesa fundargerð síðasta aðalfundar og er rétt að loka eigi spjallinu eins og kemur fram á öðrum þræði, ef rétt er finnst mér það fráleit ákvörðun. Bestu kveðjur Björn A 720
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
09.05.2008 at 20:25 #622392
Fundargerðin var tekin af vefnum, sjá skýringar hérna: [url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=521:2wcetdeo]https://old.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=521[/url:2wcetdeo]
09.05.2008 at 20:33 #622394Ætti fundargerðin ekki að birtast einsog fundurinn var ??? þarf að fela einhver nöfn ? afhverju þarf að ritskoða fundargerð ? getur einhver svarað því ?
Þorbjörn Gerðar R-3466
10.05.2008 at 01:16 #622396Ég er sammála formanni það þarf að gera eitthvað róttækt til að gera þetta að einhverju öðru en tuð og bögg klúbb sem þetta er orðið.
Og hafa hugrekki til að gera það sem þarf til að koma á góðum anda í klúbbinn. Menn verð kanski ekki þeir vinsælustu fyrir vikið.Kv Eyþór.
10.05.2008 at 08:24 #622398Eyþór,það er einfaldlega ekki hægt annað en að vera sammála þér.
Kv Klakinn
10.05.2008 at 15:53 #622400Ég get nú ekki verið sammála því að breyta og ritskoða fundargerðina, en svo er það aftur annað mál hvort fundargerð aðalfundar eigi að vera öllum aðgengileg.
Kveðja Lella
10.05.2008 at 18:43 #622402Ekki var sagt frá Því í fundargerðinni þegar Eyþór skilaði Tetra stöðinni og sagði af sér varamanns embætti.
Ekki var heldur sagt frá því í fundargerðinni að Óskar hefði skilað Tertastöð sem hafði verið í umsjá Ofsa, heldur var sagt að Ofsinn sitji á eigum klúbbsins, Tetrastöðinni.
Svona má lengi telja, enda fundargerðin full af rangfærslum og ekki sagt frá, eða rétt farið með staðreyndir.
Fundargerðin hefur heldur ekki verið samþykkt og réttara er að leiðrétta hana, en að næsti aðalfundur hafni fundargerðinni og hendi henni í heilu lagi í ruslið.
Kveðja Dagur
10.05.2008 at 18:47 #622404Ég var nú svo grænn að ég taldi það vera öruggt að fundargerðir væru ekki opnar almenningi. Ef svo er þá finnst mér það alger fjarstæða. Að sjálfsögðu eiga fundagerðir að vera eingöngu fyrir félagsmenn. Hvað kemur fólki við út í bæ hvað fram fer á fundum hjá okkur. Ekki það að við höfum eitthvað að fela. En kannski þarf að leisa úr viðkvæmum málum þar sem einstaklingar koma við sögu og þá á það ekki að vera opið hverjum sem er.
Og hana nú…..kv,
Halldór
10.05.2008 at 22:12 #622406Því miður hafa einhver, vonandi aðeins örfá atriði orðið útundan í ritun fundargerðar en það má og þarf að sjálfsögðu að lagfæra.
En Dagur, að það megi lengi telja og að fundargerðin sé full af rangfærslum er eitthvað sem ég myndi telja að þú þyrftir að færa rök fyrir. Bara svo það sé á hreinu að þetta séu ekki dylgjur einar. Það væri flott að fá að sjá hér hvaða "fullt af rangfærslum" er að finna í þessari fundargerð.
Kv.
Barbara Ósk
10.05.2008 at 22:19 #622408Ég skal gefa Sveinbirni formanni skýrslu um rangfærslur á fundargerðinni, ef hann æskir þess.
Þeir sem voru á fundinum og hafa séð þessa fundargerð ættu að sjá þetta.
Ég mun ekki karpa um þetta hér á vefnum.
kveðja Dagur
10.05.2008 at 22:42 #622410Þú gast fundið það hjá þér að dylgja um rangfærslur á þessum vef. Afhverju geturðu þá ekki rökstutt þær dylgjur á sama stað?
Eða afhverju fékk Sveinbjörn ekki beint þessar dylgjur þínar ef hann er sá eini sem á að fá rökfærslurnar fyrir þeim?Kv.
Barbara Ósk
10.05.2008 at 23:20 #622412Sveinbjörn hefur nú þegar fengið upplýsingar um fjölmargar rangfærslur í þessari umtöluðu fundargerð og ætla ég ekki að upplýsa á vefnum um innihald fundargerðarinnar frekar en orðið er.
Þetta eru engar dylgjur.
kveðja Dagur
10.05.2008 at 23:45 #622414Dagur, það fylgir því ábyrgð að koma með ásakanir í garð annarra á jafn opinberan hátt og hér á þessum vef. Þessi einstaki þráður hefur til dæmis verið lesinn 4.310 sinnum nú þegar þetta er ritað. Þar sem þú hefur nú sett fram á opinberan máta ásakanir um að ritari fundarins hafi sett "fullt" af rangfærslum í aðalfundargerð félagsins væri sjálfsagt að styðja það einhverjum rökum þannig að hægt sé að sjá hvort þær séu sannar.
Ég var til dæmis sjálf þarna á fundinum og hef líka lesið fundargerðina en finn ekki þessar mörgu rangfærslur.
Þar sem þú berð þarna fram að fundarritari hafi logið, finnst mér sjálfsögð kurteisi og virðing við þá manneskju að rökstyðja það eða draga það til baka.
Kv.
Barbara Ósk
11.05.2008 at 00:06 #622416Er þessi fundargerð aðgengileg öllum eða ? er ekki verið að "RITSKOÐA" hana ??
11.05.2008 at 00:19 #622418Þorbjörn, mér vitanlega er ekki hægt að "ritskoða" fundargerðir, hvað þá aðalfundargerð sem er í eðli sínu aðeins frásögn af fundi. Fundargerðin hefur verið fjarlægð að ég held tímabundið af vefnum. Ég á frekar erfitt með að svara fyrir það. Eðlilegra að það geri núverandi stjórn klúbbsins.
Kv.
Barbara Ósk
11.05.2008 at 00:33 #622420Hvers vegna er þessum þræði ekki lokað af vefnefnd,er þetta boðlegt að fólk karpi hér útí eitt.Þetta er orðið meira en leiðinlegt og eiginlega jaðrar við að vera vandræðalegt að klúbbur af þessum kaliber láti þetta viðgangast,yfir 100 póstar af röfli – þvílíkt og annað eins rugl hérna.
Kv Jóhannes.
11.05.2008 at 00:47 #622422Mér var að detta í hug hvort ætti að eyða bara þessum þræði eins og hann leggur sig, það er með ólíkindum að þið haldið þessu til streitu, það er ekki eins og þið séu einhverjir asnar, ég í raun skil ykkur bæði (barbara/dagur) en þó sérstaklega barböru sé hún höfð fyrir röngum sökum. Eigum við ekki bara að láta þetta gott heita og láta staðar numið hér.
11.05.2008 at 01:02 #622424Góður!! Benni.
Já málefnaleg umræða hér á vefnum er algjörlega útilokuð.
Þessi fundargerð eins og hún er, er ekki til byrtingar og játa ég mig sekan um að hafa uppljóstrað örlítið um hvað var ekki í henni.
Líklegast er best að loka þessum vef utan nokkurra Jaris auglýsinga.
DylgjuDúkkan hefur nefnt orðið Dylgjur umþaðbil 67 sinnum nýlega og er nafnið við hæfi.
Þannig að í staðin fyrir innanfélagsmál er hægt að hafa Dylgjur og Slúður.
Auglýsingar gætu verið Jarisar og rest í sama dúr.
Þetta er að verða vonlausasti vefur landsins.
kveðja Dagur
11.05.2008 at 01:46 #622426"vonlausasti vefur landsins" já það má vera að hann sé að verða það og er þá ekki í beinu framhaldi kominn tími til að við förum að sína á okkur sparihliðina áður en við stútum honum endanlega, eigum við ekki að snúa bökum samann núna og kalla þetta bara gott.
11.05.2008 at 03:26 #622428Ég get ekki séð af hvers vegna vefnefnd ætti að eyða þessum þræði. Þarna inni á þessum þræði eru komnar stórar ásakanir og að mínu mati fynnst mér að þeir sem komu með þær skulu nú standa fyrir máli sínu. Ég efast um að vefnefnd hafi vald til að að eyða þessum þræði. Dagur, ég minnist þess að hafa lesið það í ,,gömlu" fundargerðinni að Barbara og Eyþór hafi sagt af sér.
Kveðja
Spotti
11.05.2008 at 10:55 #622430finnst þér vera útlit fyrir að það verði leist hér á vefnum….Allt í lagi að klára þetta mál en spurning hvort stjórn eigi ekki bara að kalla viðkoandi inn á teppi til sín og lata sverfa til stáls þar í eitt skipti fyrir öll í staðin fyrir að menn/konur haldi streitulaust áfram áranguslausu kíti árfam hér á vefnum.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.