FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Frostvökvi & bremsulögur

by Hjörleifur Jóhannesson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Frostvökvi & bremsulögur

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.10.2003 at 19:21 #193028
    Profile photo of Hjörleifur Jóhannesson
    Hjörleifur Jóhannesson
    Participant

    Mér var bent á að nauðsynlegt sé að skipta reglulega um frostlög á bílnum. Ending á frostlegi er víst ekki nema 2-4 ár og missir hann þá tæringarvarnareiginleika sína. Ég á Nissan Patrol, og varpa þeirri hugmynd fram að sé frostlögurinn í lagi geti það hjálpað til með endingu á heddunum. Bara tilgáta. En hvað um það, ég er að skipta um hjá mér.
    Einnig er bremsuvökvinn með takmarkaðan líftíma og er mér sagt að í Þýskalandi fái bílar ekki skoðun ef bremsuvökvi er orðinn gamall. Er nokkuð fylgst með þessu hér á landi.
    Kv,
    Lalli.

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 15.10.2003 at 19:45 #478172
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hér á landi er ekkert fylgst með þessu.

    Mér skilst að þegar frostlögur verður gamall þá geti breytist hann úr tæringarvörn í tæringarhvata. Útfelling sem getur stíflað kæligöng og annað þvíumlíkt er víst einnig fylgifiskur þess að vökvinn eldist. Gott að endurnýja á 2ja ára fresti ef grænn/blár eða 5 ár á rauðum vökva. Besta kæligeta fröstlögs er ef hlutfallið er 40% frostlögur á móti 60% vatni skv góðri bók sem ég á. En mesta frostþol er 50/50

    Með bremsuvökva er rakinn vandamálið. Ef raki er í kerfinu þá tærast hlutar kerfisins hraðar og gúmmí í dælum geta harðnað. Aðal hættan sem fylgir því að rakamettun sé í vökvanum er að ef vökvinn í hjóldælum hitnar yfir suðumark vatns þá breytist rakinn/vatnið í gufu/loft og bremsurnar verða óvirkar. Vökvinn á að vera svipaður lýsi að lit, ef vökvinn hjá þér er dökkur þá hefur þú eitthvað að gera næstu kvöld. Ef hægt er að taka forðabúrið af höfuðdælunni þá er gott að þvo það í heitu vatni, þar er oft mikið botnfall. Endurnýja bremsuvökva á 1-2ja ára fresti. Nýr vökvi = mun betri bremsur og minni hætta á að td dælur festist og þh vesen..





    15.10.2003 at 21:06 #478174
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Ég las einhversstaðar eða heyrði um könnun sem var gerð á norðurlöndunum, þar voru bornar saman tíðnir ýmisa bilana í bílum á milli landa. Meðal annars var þar borin saman tíðni á biluðum/lekum bremsudælum og þar sást víst mjög skýr munur á milli landa og eina skýringin að sumstaðar var því fylgt vel eftir að skipta um bremsuvökva reglulega en annarstaðar ekki.
    Ég held reyndar að yfirleitt sé talað um að skipta um bremsuvökva reglulega í handbókum bíla… það er nefnilega oft nokkuð mikið vit í bókunum sem koma með bílunum okkar.

    kveða O.Ö.





    15.10.2003 at 21:38 #478176
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    sælir

    Það er þekkt vandamál að gamall frostlögur tæri heddpakkningar, því er það enn mikilvægara að skipta um vökvann á þeim bílum sem eru með þekkt hedd vandamál.

    kv
    Lýður





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.