This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Lúther Gestsson 20 years, 4 months ago.
-
Topic
-
Sælir félagar.
Ég var að tala við Kjartan Gunnsteinsson fyrrum formann okkar sem var staddur fyrir austan á 4×4 hátíðinni okkar.
Hreint út sagt ótrúleg stemming engu líkara enn búið væri að starta þjóðhátíð í eyjum.
Í dag var farinn flottur jeppatúr og voru 21 stykki jeppar sem fóru frá Borgarfjörð eystri til Húsavíkur og til baka í Breyðuvík og þaðan í Borgarfjörð.
Gekk þetta ferðalag algerlega áfallalaust fyrir sig fyrir utan eitt brotið drifsskaft.Veðrið er búið að leika við þá að sögn Kjartans fyrir utan smá þokubakka sem teygðu sig niðrí hálfar hlíðar og búðu til smá skúra, enn hvað er það fyrir okkar menn.
Núna kl 24:00 er allur hópurinn staddur á kvöldvöku í félagsheimilinu Fjarðarborg (sem ég veit ekki hvar er) og heyrði ég það í gegnum síman að það var HRYKALEGA SKEMMTILEGT allir biðja að heilsa og við sem ekki komumst vegna ýmissa smágalla þetta árið mætum örugglaga næst
Ekki hafði Kjartan heyrt af einhverju sérstöku planaðri ferð suðurmanna í bæinn en margir eru í sumarfrií og liggur ekkert á í bæinn.
Austfirðingar til hamingju með greinilega frábæra skemmtun.
Kveðja
Lúther
You must be logged in to reply to this topic.