FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Fréttir af nefndarfundi 13. ágúst 2008

by Stefanía Guðjónsdóttir

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Fréttir af nefndarfundi 13. ágúst 2008

This topic contains 23 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir Stefanía Guðjónsdóttir 16 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.08.2008 at 21:47 #202802
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member

    Ég mætti á síðasta nefndarfund og hér koma fréttir af honum í von um aukið upplýsingaflæði til félagsmanna.
    kv. Stefanía (ritnefnd)

    1. Formaðurinn setur fundinn 20:19.
    2. Formaðurinn segir frá því að starfsmaðurinn hafi látið af störfum en stjórn var sem slík ekkert ósátt með störf hans. Gerð verður grein fyrir þessu máli á næsta félagsfundi í september. Formaðurinn gerði grein fyrir afstöðu stjórnar í að svara ekki deilumálum á vefsíðunni sem viðleitni í að reyna að stöðva deilumál á netinu. Verið sé að vinna í að skrifa aðalfundargerð upp úr skýrslu stjórnar og verði hún birt um leið og hún sé tilbúin. Stjórnin vill ekki beita lokunum og segir að spjallið eigi að vera frjálst og nota í uppbyggilegt spjall og þeir hafi þess vegna farið þá leið að bjóða mönnum að senda spurningar beint á stjórnina. Hringt hafi verið í ákveðna aðila út af þessu máli og þeir látnir vita.
    3. Formaðurinn greindi frá því að bílavalsnefndin hafi sagt af sér störfum og að það þurfi að manna hana. Sýningi verður 10.-12. október. Kristján Kolbeinsson hefur þó áhuga á að starfa í henni áfram. Formaðurinn segir að það séu nú þegar komin 3 fyrirtæki sem eru búin að panta hátt í 400 fermetra á sýningunni, og telur slæmt að bakka frá henni. Gísli Þór Þorkelsson bauð sig fram fram í bílavalsnefndina.
    4. Formaður segir frá bílasýningunni og að fulltrúi skálanefndar mun verða í Setrinu um afmælishelgi skálans en ætlunin er að gera eitthvað flott á sýninguna í tengslum við Setrið. Formaðurinn segir að það séu tveir kostir í sambandi við sýnininguna ef fáir verði á henni þá er að keyra hana eins ódýra og hægt er kosti í kringum 6 millj. Og ef aðgangseyrir 1000 kr. þarf 6000 manns eða hafa hana stóra og þá þurfi góða þátttöku félagsmanna og fyrirtækja í hana. Talað um að um 15000 manns hafi mætt á kvartmílu eða mótor og sport sýninguna og á öðrum staðnum hafi verið seldur t.d. helgarpassi 1500 kr inn. Talað var um að reyna að byggja upp umræðu um jeppa og sýninguna vikum fyrir sýninguna. Reyna að komast í fjölmiðla og eins að fá litlu nefndina til að standa fyrir ferð og fá umfjöllun um hana og hafa sýninguna svo sem lokahnykkinn á umræðunni.
    5. Umræða um jeppa í fjölmiðlum, árekstrar og utanvega akstur. Alltaf hallar á jeppa í umfjöllunum sbr. Jeppi lenti í árekstri við fólksbíl en hið rétta var að fólksbíll ók aftan á jeppann sem kastaðist í veg fyrir rútu. Formaðurinn talar um hvað það sé erfitt að koma jákvæðri umfjöllun í fjólmiðla hann hafi t.d. talaði oftar en 3 sinnum í einu tilfelli við nokkra fjölmiðla og hafi mbl meðal annars boðið honum að kaupa pláss undir það sem hann kallaði fréttatilkynningu.
    6. Stjórnin segist ætla að reka skrifstofuna sjálfir til að byrja með eða alla vega fram að landsfundi sem á að halda 19.-20. september, helgina eftir stikuferðina, í Kerlingafjöllum. Búið að tala við deildirnar og tóku þeir vel í þessa staðsetningu. Sími skrifstofunar er stilltur á gjaldkerann og síðan á formanninn og síðan símsvara þannig að þeim sem hringja í skrifstofuna verður svarað. Félagatalið er komið í hendur Birgirs Más stjórnarmanns til úrvinnslu. Gjaldkerinn er með bókhaldið og er verið að setja upp fjárhagsáætlun til að marka einhverja stefnu. Laga á t.d. tímabilin á félagsgjöldum því þeir sem greiddu fyrir áramót eru í uppgjörinu í fyrra og sjást ekki á þessu reikningsári. Þar sem bókhaldið er frá áramótum þá verða gíróseðlar fyrir félagsgjöldum ekki sendir út fyrr en eftir áramót til að fá samræmi í yfirlitið og hægt sé að átta sig á því hve margir félagsmenn raunverulega eru í klúbbnum. Erfitt að fullyrða nokkuð um það eins og málum er háttað í dag. Sami maður getur verið talinn tvisvar sinnum. Borgar í janúar og svo aftur í nóvember en kemur ekki fram á árinu á eftir þannig að það virðst sem að X milljónir í félagsgjöld séu 2 föld að hluta til í síðasta reikningsuppgjöri, þarf alla vega að skoða. Gjaldkerinn telur nauðsynlegt að gera milliuppgjör fyrir stjórnarskipti til að koma í veg fyrir að fyrri stjórn geti stofnað reikninga sem að næsta stjórn borgi. Fyrri stjórn sýnir þá hagnað en seinni byrjar með tapi. Vefnefnd beðin um að athuga með lausnir til að hægt verði að greiða félagsgjöld með greiðslukorti á netinu.
    7. Formaður gerði talningu á hvað margir voru mættir úr hverri nefnd. Þegar spurt var um hvað margir hafi fengið fundarboðið sem hann sendi á stjórn og nefndir þá kom í ljós að nokkrir sem voru mættir höfðu ekki fengið það og sumir annað hvort séð það á vefsíðu klúbbsins eða á pósti sem sendur var samdægurs og þá á stjorn.nefndir.deildir. Vefnefnd er beðin um að athuga málið og fara yfir netfangalista klúbbsins.
    8. Nefndum er gefið orðið.
    Umhverfisnefndin: Gerði grein fyrir vettvangsferð sem þeir fóru í kjölfar frétta sem að komu fram í fjölmiðlum um utanvegar akstur á svæðinu í nágrenni Landmannalauga. Sýndi nefndin myndir sem að teknar voru á vettvangi. Mikill áhugi er á að auka samstarf við landverði í baráttunni við landspjöll af völdum umferða utan vega og að hylja verksumerki til að koma í veg fyrir endurtekningu. Rætt var um samstarf F4x4 og MSÍ sem eru samtök mótorhjóla og snjósleðafólks í þessum málaflokki. Verið er að koma upp gps gagnabanka sem inniheldur gps staðsetningar af landsjöllum af völdum umferðar utan vega til að halda utan um hvar séu gömul verksumerki og hvað sé nýkomið og helst af hvers völdum. Umhverfisnefndin vill leggja áherslu á að breyta orðalagi í ferðakynningum til Íslands úr „off road driving“ í „mountain trail driving“ eða eitthvað sambærilegt. Fleiri hugmyndir komu fram sem á eftir að vinna úr og verða kynntar félagsmönnum á vefsíðu eða félagsfundi.
    Tækninefndin: Gerði grein fyrir nýjungum í pústkerfum en ekki er komin reynsla á það. Nefndin hefur fundað með samgönguráðaneytinu og er tengiliðurinn þar Róbert Marshall. Skoða þarf stöðu jeppamála hjá Evrópusambandinu m.t.t. þarfa jeppamanna. Nefndin er að skoða hvort að mismunun eigi sér stað þegar kemur að útreikningi á burðargetu bíla eftir tegundum og breytingum. Nýir starfsmenn eru komnir á umferðarstofu og vonast tækninefndin eftir því að geta átt gott samstarf við þá í framtíðinni.
    Skálanefndin: Gerði grein fyrir því að búið er að fella niður afmælisferðina í Setrið en nefndarmaður verður á staðnum með heitt á könnunni. Kynnti vinnuferð sem að þessu sinni er opin félagsmönnum en enginn hefur skráð sig til þátttöku.
    Þarf m.a. að grafa fyrir sökklum og er stjórn að vinna í því að fá gröfu í það. Rætt var um talnalásinn sem á að fara í Setrið en til að komast inn þarf að hringja og fá aðgangsnúmer. Þeir sem eru með þjónustu Símans eru ekki í símasambandi í Setrinum. Skálanefndin segir þetta vera stillingaratriði hjá símanum og reiknar með að þetta komist í lag. Síðan þarf að athuga frágang á olíuleiðslum í Setrinum sér í lagi baka til.
    Ritnefnd: Ritnefnd gaf út eitt vefrit á tímabilinu. Rætt um útgáfu afmælisblaðs fyrir bílasýninguna. Ætlar stjórn að boða ritnefnd á fund fljótlega og fara yfir það mál.
    Litla nefnd: Ekki til staðar
    Ungliðanefnd: Nefndin var búin að standa fyrir einum „hitting“ sem að tókst vel til og fjölgaði félagsmönnum um 3 eftir það. Eru þeir enn að móta starfið en stefna á að koma sér meira á framfæri t.d. í fréttablaðinu.
    Fjarskiptanefnd: Talið er að bilun í endurvarpanum á Hlöðufelli stafi af völdum eldingar. Er verið að vinna að endurbótum. Endurvarpinn á Fjórðungsöldu bilaði og var farið öryggi sem að skipt var um. Farið var yfir kosti og galla gsm kerfisins og ætlar nefndin að safna göngum um hvar gsm samband er og hvar ekki.
    Vefnefnd: Nefndin vinnur að nýrri síðu klúbbsins og eins er verið að smíða GPS síðu með ferlasafni sem hægt verður að sækja úr og jafnvel skoða myndrænt. Nefndin vonast til að geta komið með sýnishorn af þessum síðum fljótlega til að sýna félagsmönnum.
    Hjálparsveit: Eitthvað lítið hefur verið um hjálparbeiðnir en þeim er þó sinnt þegar hjálparsveitin hefur tíma.

    Fundi slitið kl 22:15.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 23 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 19.08.2008 at 09:41 #627778
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Stefanía skrifar :
    Verið sé að vinna í að skrifa aðalfundargerð upp úr skýrslu stjórnar og verði hún birt um leið og hún sé tilbúin.
    HALLÓ
    Skýrsla stjórnar er skýrsla stjórnar, það breytir henni enginn. Aðalfundargerð er ekki skrifuð upp úr skýrslu stjórnar, heldur er skýrsla stjórnar hluti af aðalfundargerðinni.

    Hvað er í gangi ?
    Held að það sé betra að sleppa svona upplýsinga-flóði
    Kveðja Lella





    19.08.2008 at 10:29 #627780
    Profile photo of Óskar Hafþórsson
    Óskar Hafþórsson
    Participant
    • Umræður: 66
    • Svör: 655

    hvað er að þessu
    mámaður ekki vita hvað er að gerast innan klúbsinns
    maður fær þá kannski áhuga á að vera meira með
    mér finst þetta flott framtak hjá þér stef

    skari





    19.08.2008 at 10:42 #627782
    Profile photo of Heiðar S. Engilbertsson
    Heiðar S. Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 414

    Ég ætla rétt að vona að þetta sé einhver misskilningur hjá Stefaníu að núverandi stjórn sé að endurskrifa skýrslu stjórnar frá síðasta ári. Það er hreint og klárt lögbrot ef að það er. Þar að auki veit núverandi stjórn minnst um hvað var að gerast á síðasta ári, eða man einhver eftir þeim í starfi félagsins á síðasta ári, eða hvernig þeir líta út. Ég verða að játa að ég kaus þá, en það var ekki annað í boði.

    Kveðja

    Heiðar
    Suðurnesjadeild





    19.08.2008 at 10:45 #627784
    Profile photo of Gísli Þór Þorkelsson
    Gísli Þór Þorkelsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 1363

    Stefanía var bara ritari á þessum fundi og er að koma því fram sem þar kom fram.
    kv Gísli





    19.08.2008 at 10:50 #627786
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Ég veit það ósköp vel að Stef er að miðla því sem fram kom á fundinum og er ekki að hengja hana.
    En þetta með aðalfundargerðina er bara steypa.
    En þar sem stjórnin svarar ekki á spjallinu, hlýtur formaðurinn að hringja í mig fljótlega og útskýra þetta, en hvað þá með alla hina sem vilja útskýringu, þarf hann þá að hringja í þá alla……
    hmmmm
    Kveðja Lella





    19.08.2008 at 11:35 #627788
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    það er margt áhugavert í þessari lesningu, og gott framtak að byrta þetta.
    Þar kemur m.a. fram að skálanefnd ætli að fara að grafa fyrir sökklum. En hvaða sökklum og fyrir hvað?? Ég mynnist þess ekki að heyrt neitt um frekari byggingar á svæðinu.

    Emil Borg





    19.08.2008 at 11:43 #627790
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Lella og Heiðar
    Það kom m.a. fram í máli formanns að skýrsla stjórnar væri til og fundargerðin væri í vinnslu hjá fundarritara aðalfundar. Virðist sem að boltinn liggi þar að því að mér skildist.
    kv. Stefanía





    19.08.2008 at 11:46 #627792
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Þetta er mjög skringilega orðað, þe að verið sé að skrifa aðalfundargerð upp úr skýrslu stjórnar.
    Því skýrslu stjórnar verður ekki breytt.
    Svo er það aftur annað mál hvað er birt opinberlega.
    Kveðja Lella





    19.08.2008 at 12:13 #627794
    Profile photo of Heiðar S. Engilbertsson
    Heiðar S. Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 414

    Takk fyrir þetta svar, þetta lítur betur út svona, heldur en það sem kom fram í fyrsta póstinum. Það er ljóst að skýrsla stjórnar og skýrslur nefnda eiga vera eins og þær voru fluttar á fundinum, óháð því hvort við erum sammála þeim eða ekki. Stefanía, af hverju skrifaðir þú þessa fundargerð, er ekki til einhver sem hefur tittilinn ritari stjórnar.
    Þetta er raunar stórundarleg stjórn, því enginn þeirra( Sveinbjörn undanskilinn) er virkur á spjallinu. Ég man ekki eftir því að þetta hafi verið svona síðustu ár. Stjórnarmenn síðustu ára voru allir mjög virkir á spjallinu
    Það er kannski ekki verið að ætlast til að þeir séu í einhverju karpi á spjallinu en það væri allt í lagi að vita að þeir væru lifandi.
    Það er kannski eins og mann grunar að þetta sé bara leppstjórn og aðrir stjórni bak við tjöldin, kannski þeir sem ráku starfsmanninn.

    Kv.
    Heiðar





    19.08.2008 at 12:54 #627796
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Heiðar
    Ég gat ekki heyrt á máli formanns að það stæði eitthvað til að breyta skýrslu stjórnar heldur lýsti hann yfir miklum áhuga á að koma fundargerð aðalfundar á netið sem fyrst eins og fyrr segir. Hins vegar sé ekki hægt að birta skýrslu stjórnar á netinu þar sem hún er ávísun á málsókn á hendur Ferðaklúbbsins.

    Eins og fram kemur í fyrirsögn þessa þráðar þá eru þetta fréttir af nefndarfundinum en ekki fundargerð. Reikna ég með að ritari fundarins muni setja fundargerðina við hlið fundargerðar fyrri stjórnar af nefndarfundum.

    Hvað varðar virkni núverandi stjórnarmanna á spjallinu get ég ekki svarað fyrir en hélt að þeir væru bara að viðhalda stjórnunarstíl fyrrverandi stjórnar sem að kom með þær yfirlýsingar á félagsfundi að hún myndi ekki svara neinum fyrirspurnum á netinu bara í tölvupósti. Hins vegar er magn ekki sama og gæði en vissulega væri gott að vita hvort þeir væru með lífsmarki það er rétt.

    Hvað varðar starfslok starfsmannsins þá skildist mér á nefndarfundinum að hann hefði sagt upp störfum.

    Kv. Stefanía





    19.08.2008 at 13:09 #627798
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæl
    Það er ekki verið að breyta neinu, skýrslur stjórna og nefnda eru til og verða til. Þeir sem vilja fá að kynna sér innihald skýrslu stjórna og nefnda geta fengið að lesa skýrslunar á skrifstofu félagsins, einnig verður skýrslan borinn upp á Landsfundinum. Aðalfundargerð er að verða tilbúin, hún á ekkert skylt með skýrslunum en segir frá því sem gerðist á aðalfundinum í hnotskurn.
    Þetta framtak Stefaníu er frábært, það var kominn tími til að upplýsingaflæði yrði frá stjórn og nefndum út til félagsmanna. Að fá álit annarra en stjórnar á fundum er miklu betra og gefur góða mynd af starfi klúbbsins.





    19.08.2008 at 13:33 #627800
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Sveinbjörn, afhverju verður skýrslan borin upp á Landsfundi ? Ertu að tala um skýrslu stjórnar ? skýrlsur nefndanna ? eða aðalfundargerðina í heildsinni með öllum skýrslum ?
    Veit ekki til að þetta hafi verið borið undir Landsfund ? ( nema það hafi verið gert í gamla daga ) og þá afhverju ?
    Kveðja Lella





    19.08.2008 at 13:43 #627802
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Emill
    Hvað varðar byggingu sökklana í Setrinu þá náði ég ekki alveg því sem sagt var um þá enda voru þeir inn í upptalningunni á því sem að þyrfti að gera í vinnuferðinni. Kannski er best að Skálanefndin segi frá því.

    Lella
    Er ekkert annað sem kom fram í þessum fréttum sem þú vilt ræða. T.d. hvað varðar vettvangsferð Umhvefisnefndar á Landmannalaugasvæðið. Enda ertu að stimpla þig inn á öðrum þráðum sem áhugamanneskja um landspjöll af völdum umferðar og þá bliknar þessi aðalfundargerð í þeim samanburði.

    kv. Stefanía





    19.08.2008 at 13:50 #627804
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Nei Stefanía sé ekki ástæðu til að tjá mig um vettvangsferð Umhverfisnefndar eftir fréttir um utanvega akstur á Landmannalaugasvæðinu.
    Eins og ég talaði um í öðrum þræði finnst mér að okkar Umhverfisnefnd eigi að horfa nær sér, þe í kringum Setrið það er allveg nóg af utanvega aksturs förum þar út og suður og ekki væri það góð umfjöllun um okkur ef fjölmiðlar myndu skoða Sóleyjarhöfða vegleysuna. Sem ég hef ekki séð en mér var sagt að þar væru drulluför djúp og ljót þar sem menn hefðu verið að reyna að komast.

    Kveðja Lella





    19.08.2008 at 13:51 #627806
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Það er eingöngu gert til að kynna þeim málið. Formenn deilda eiga að hafa aðgang að skýrslum stjórna og nefnda. Það er engin hefð fyrir því að gera þetta svona en ef við ætlum að auka upplýsingaflæði og leyfa félagsmönnum á landsbyggðinni að fylgjast með þá er þetta góður staður til þess. Ef byggja á félagið upp og efla það þá er gott að hafa aðgang að skýrslum fyrrverandi stjórna og nefnda til að varast það sem miður fór og geta farið aðrar leiðir. Ég vona að þetta geri einhvað til að upplýsa hvað um er að vera ef ekki þá lætur þú mig vita og ég hringi í þig.
    Kveðja
    Sveinbjörn R-43





    19.08.2008 at 14:03 #627808
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Lella
    Ég get nú alveg verið sammála þér í því að umhverfi Setursins hefur ekki verið til fyrirmyndar. Hvað segirðu um að við förum bara í ferð þangað upp eftir í þeim tilgangi að loka villuslóðum. Ég er viss um að umhverfisnefndin tæki vel í það. En málið er svo lítið þannig að það er sama hvar för sjást þá er jeppamönnum mjög oft kennt um í fjölmiðlum.
    Kv. Stefanía.





    19.08.2008 at 14:47 #627810
    Profile photo of Heiðar S. Engilbertsson
    Heiðar S. Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 414

    Sæl öllsömul

    Þetta er svo sem ágætishugmynd að kynna aðalfundagerðina á landsfundi, en ég man ekki eftir því að það hafi verið gert síðustu 10 ár eða svo, en ég hef verið á þeim flestum, en fín hugmynd.
    En í sambandi við sökklana á Setrinu held ég að byggingaleyfið fyrir viðbygginguna falli úr gildi fljótlega ef ekkert verður gert.

    Kv. Heiðar





    19.08.2008 at 15:01 #627812
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæll Heiðar
    Það var nú aðl ástæðan fyrir því að farið var í þessa framkvæmd. Við verðum að tryggja að við getum byggt við Setrið.

    Kveðja
    Sveinbjörn R-43





    19.08.2008 at 15:05 #627814
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    góðan dag
    Fróðlegt væri að heyra meira um þessa viðbyggingu sem nokkru sinni hefur verið minnst á áður, ég geri ráð fyrir að það sé búið að teikna hana þar sem menn eru að fara að ráðast í að gera sökkla eða hvað ! Eru þetta gamlar teikningar eða er kannski verið að vinna á einhverri undanþágu ?
    kveðja
    AB





    19.08.2008 at 15:10 #627816
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Stefanía, ekkert mál ég er alveg til í að fara og laga til á slóðunum í kringum Setrið. En þetta er eitthvað sem þyrfti að gera á hverju ári.
    í Sóleyjarhöfðan þarf stórtækar vinnuvélar til að laga það sem hægt er að laga þar.
    Sveinbjörn, ekkert að því að kynna skýrslurnar og fundargerð aðalfundar á Landsfundi, en þá kemur hitt málið, hver ætlar að svara þeim spurningum sem upp geta komið, ekki er víst að formenn nefnda og fyrrverandi formaður séu viðstaddir til að svara og þá er sú hætta fyrir hendi að upp lendi spurningar sem enginn getur svarað fyrir, eða einhver annar svari einhverju sem ekki var svarið.
    Svei mér þá, ég er hætt að skilja hvað ég er að skrifa svo ég er að hugsa um að hætta …….
    kveðja Lella á puttanum á kantinum
    Stef hvað þola brettakantarnir þínir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 23 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.