This topic contains 146 replies, has 1 voice, and was last updated by Björn Þorri Viktorsson 20 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
06.03.2004 at 00:48 #193936
Sælir lesendur!
Þessum þræði er ætlað það hlutverk að vera fréttavefur af Nýliðaferð umhverfisnefndar í Setrið. Að auki mun ég senda inn fréttir af félögum okkar í Rottugenginu sem mér berast ásamt einhverjum öðrum flækingum. VIL ÉG BIÐJA UM AÐ EKKI VERÐI BULL OG ÓSKYLD MÁL SKRIFAÐ HÉR.
Í kvöld talaði ég við Jón „Ofsa-slóðríkann“ Snæland og var hann þá ásamt Gulla „Mulann“, Kalla „Hrekkjusvíni“, Danna og Geira í góðu leti-yfirlæti í Hrauneyjum. Þar var þá einnig kominn einhver hluti af Nýliðaferðar-þátttakendum, nokkrir bílar frá Vestmannaeyjum sem voru á leið í Setrið í kvöld og síðan Sóleyjarhöfðann á morgun og síðan ef mig minnir rétt Pétur í Hvammsvík (þekki ekki haus né sporð) ásamt 3 bílum og stefna þeir á Grímsfjall.
Von er á fullu húsi í Hrauneyjum í morgunsárið og mun Nýliðaferðin t.d. leggja af stað kl. 0830 og ef Rotturnar vakna þá er svipaður brottfarartími hjá þeim.
Jón tjáði mér að jörð væri hvít og svipuð því er jól hafa litið út undanfarið hér syðra; sem sagt rétt föl.
Meira í morgunsárið,
PR: Umhverfisnefndar
Magnús Guðmundss. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
06.03.2004 at 01:09 #490938
Svona til að koma óskyldu efni að, þá var ég á Bláfelshálsi í dag, og fór aðeins inn að Skálpanesi og þar hafði snjóað ca 40 cm síðan í gær, og var hið skemmtilegasta færi.
Þeir sem fara á fjöll þessa helgi fá trúlega gott færi.
Hlynur
06.03.2004 at 01:09 #497520Svona til að koma óskyldu efni að, þá var ég á Bláfelshálsi í dag, og fór aðeins inn að Skálpanesi og þar hafði snjóað ca 40 cm síðan í gær, og var hið skemmtilegasta færi.
Þeir sem fara á fjöll þessa helgi fá trúlega gott færi.
Hlynur
06.03.2004 at 01:15 #490940HLYNUR ekki grípa frammí!!!!
06.03.2004 at 01:15 #497522HLYNUR ekki grípa frammí!!!!
06.03.2004 at 11:28 #490942Jæja Magnús ertu ekki kominn á fætur!!!
Hvað er að gerast, Hvar eru félagar okkar, Eru menn komnir áleiðis í Setrið, Hvar eru Rotturnar, á að drepa mann úr forvitni????
06.03.2004 at 11:28 #497524Jæja Magnús ertu ekki kominn á fætur!!!
Hvað er að gerast, Hvar eru félagar okkar, Eru menn komnir áleiðis í Setrið, Hvar eru Rotturnar, á að drepa mann úr forvitni????
06.03.2004 at 11:39 #490944Góðann daginn félagar. Fréttir af Nýliðaferðinni eru allar góðar. Ég var að tala við Þránd og lá vel á honum og öllum hópnum. Þeir voru staddir á Búðarhálsi á stikaða kaflanum ennþá en ekki gat hann staðsett þá nákvæmar. Rosa fínt veður sól og blíða, snjór yfir öllu, vatn í lænum, lækir og pollar með þunnum lagís. Vel tókst að koma saman hópnum í Hrauneyjumí morgun og standa nýliðarnir sig mjög vel. Hann sagði að mikið stuð væri í talstöðvunum. Verða þeir líklega bæði þegjandi hásir og með harðsperrur í talfærum undir kvöldmat. =) Smotterísbilannir hafa gert vart við sig.
Meira seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 11:39 #497526Góðann daginn félagar. Fréttir af Nýliðaferðinni eru allar góðar. Ég var að tala við Þránd og lá vel á honum og öllum hópnum. Þeir voru staddir á Búðarhálsi á stikaða kaflanum ennþá en ekki gat hann staðsett þá nákvæmar. Rosa fínt veður sól og blíða, snjór yfir öllu, vatn í lænum, lækir og pollar með þunnum lagís. Vel tókst að koma saman hópnum í Hrauneyjumí morgun og standa nýliðarnir sig mjög vel. Hann sagði að mikið stuð væri í talstöðvunum. Verða þeir líklega bæði þegjandi hásir og með harðsperrur í talfærum undir kvöldmat. =) Smotterísbilannir hafa gert vart við sig.
Meira seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 11:54 #490946Sælir aftur! Var að sleppa einum nýliðanum, Ólafi Gústafssyni sem er í hóp B undir öruggri stjórn Gunna "hása" Kristjánssonar úr símanum. Voru þeir rétt í þessu að koma upp á Kvíslaveituveg aftur af Búðarhálsinum.
Sagði hann að ísinn héldi svona ca. tveimur fyrstu bílunum en restin færi í gegn og þar væru menn að festa sig. Sagðist hafa búist við þessu verra en er hæstángður. Hópurinn heldur vel saman og er í banastuði.Meira seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 11:54 #497528Sælir aftur! Var að sleppa einum nýliðanum, Ólafi Gústafssyni sem er í hóp B undir öruggri stjórn Gunna "hása" Kristjánssonar úr símanum. Voru þeir rétt í þessu að koma upp á Kvíslaveituveg aftur af Búðarhálsinum.
Sagði hann að ísinn héldi svona ca. tveimur fyrstu bílunum en restin færi í gegn og þar væru menn að festa sig. Sagðist hafa búist við þessu verra en er hæstángður. Hópurinn heldur vel saman og er í banastuði.Meira seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 12:47 #490948Var rétt í þessu að tala við Jón "ofsa-slóðríkann" Snæland.
Voru þeir staddir við Nyðri Hágöngur á 10 bílum. Þvílík blíða og klassa færi. Lágmarkshiti í morgun var -14° en var kominn í -3.8° núna. Háar skarir ca. 2m voru á Svörtukvísl en lítið var í ánni. Komust þeir yfir rétt fyrir ofan vaðið þar sem skarirnar voru aðeins minni.
Jón var slasaður þar sem hann hafði flogið á hausinn og skellt hurðinni í leiðinni. Þvældust puttar gírhandarinnar einhvernveginn á milli svo að hann á erfitt með að skipta um gír. Skyldi hann fá sér sjálfskiptann bráðlega?
Jón Ebbi er að sögn á mikið breyttum "Forusturauð" þarna og kemur það ekki til af góðu. Þannig er að vinnumaður hjá honum ætlaði að færa bílinn eitthvað en ekki fór betur en svo að hann keyrði undir eitthvað (náði ekki hvað) og tók allt ofan af bílnum, loftnet ofl. Ekki er bíllinn svipur hjá sjón.
Þeim seinkaði aðeins að fara frá Hrauneyjum vegna þess að Kjartan formaður kom lannngseinastur og tafði í þokkabót með framboðsræðu.
Þegar Jón Snæland kom í Hrauneyjar í gær lanngfyrstur voru þrír hópar farnir á leið á Grímsfjall. Þarna voru Pétur í Hvammsvík ætlaði Grímsfjall – Esjufjöll, Auðunn í bílasprautun Auðunns í Kópavoginum ætlaði Grímsfjall – Snæfell.
Meir seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 12:47 #497530Var rétt í þessu að tala við Jón "ofsa-slóðríkann" Snæland.

06.03.2004 at 13:35 #497532Sælt veri fólkið!
Var að spjalla við Ómar og var allt í góðu gengi hjá honum. Þeir eru nú staddir mitt á milli Þjórsár og Seturs og verða þeir fyrstu komnir inn í Setur fyrir kl. 1400 Flestum gekk vel yfir Sóleyjarhöfðann þó duttu tveir niður úr ísnum þ.e. Þrándur og einhver annar þungur. Nóg var af þar en vel gekk að ná þeim upp úr. Krapapollar hafa verið í farveginum en hægt hefur verið að sneiða hjá þeim. Stefnan er líklega tekinn á Hofsjökul eftir matarhlé í Setrinu.
Meira seinna
Magnús fréttaritari
06.03.2004 at 13:35 #490950Sælt veri fólkið!

06.03.2004 at 15:00 #497534Hvar ertu Maggi klukkan er orðin 15:05? hvað er fólkið að bralla?
06.03.2004 at 15:00 #490952Hvar ertu Maggi klukkan er orðin 15:05? hvað er fólkið að bralla?
06.03.2004 at 15:43 #497536Sælt veri fólkið! Lúther þú verður nú að fara í Lyfju og fá þér stórann skammt af róandi, eða einn trúðasleikjó. Annars er allt gott af þeim að frétta. Þegar ég talaði við Jón Snæl. áðan var hann í þeim töluðum orðum að fara yfir Skjálfandafljót þar sem heitir Fossaleiti og er staðsett í Langadragi rétt eftir að farið er framhjá nyrðri afleggjaranum inn á Gæsavatnaleið. Sagði hann að miklar festur hefðu orðið annarsstaðar í Skjálfandafljóti og 6 af 10 bílum fest sig um leið. Versta festan var hjá Gulla og flæddi svolítið inn í bílinn hans. Farið var með hann upp í hlíð og hellt úr honum. Það er ýmist of eða van hjá honum varðandi drykkjarmálin? Jón Snæl. hakkar í sig verkjatöflur eins og Smartís og verður hann líklega orðinn frínilegur þegar húma fer að nóttu. Færið var gott og skemmtilegt en meiri snjór var í Vonarskarðinu en þar sem þeir eru núna. Ofurtoyotan var að sögn eigandans ekki í framdrifinu vegna of góðs færis. Byrjað var að skafa pínulítið en stefna þeir ótrauðir á Laugafell fyrir kvöldið. Meira gat hann ekki talað vegna þess að hann var að dragast afturúr.
Meira seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 15:43 #490954Sælt veri fólkið! Lúther þú verður nú að fara í Lyfju og fá þér stórann skammt af róandi, eða einn trúðasleikjó. Annars er allt gott af þeim að frétta. Þegar ég talaði við Jón Snæl. áðan var hann í þeim töluðum orðum að fara yfir Skjálfandafljót þar sem heitir Fossaleiti og er staðsett í Langadragi rétt eftir að farið er framhjá nyrðri afleggjaranum inn á Gæsavatnaleið. Sagði hann að miklar festur hefðu orðið annarsstaðar í Skjálfandafljóti og 6 af 10 bílum fest sig um leið. Versta festan var hjá Gulla og flæddi svolítið inn í bílinn hans. Farið var með hann upp í hlíð og hellt úr honum. Það er ýmist of eða van hjá honum varðandi drykkjarmálin? Jón Snæl. hakkar í sig verkjatöflur eins og Smartís og verður hann líklega orðinn frínilegur þegar húma fer að nóttu. Færið var gott og skemmtilegt en meiri snjór var í Vonarskarðinu en þar sem þeir eru núna. Ofurtoyotan var að sögn eigandans ekki í framdrifinu vegna of góðs færis. Byrjað var að skafa pínulítið en stefna þeir ótrauðir á Laugafell fyrir kvöldið. Meira gat hann ekki talað vegna þess að hann var að dragast afturúr.
Meira seinna
Magnús G.
06.03.2004 at 15:50 #497538
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæl öll.
Var að tala við Arnar Inga, annan eyjamanninn, þeir eru í samfloti við nýliðahópinn. Búið að ganga svona þokkalega að sögn. Voru rétt komin upp á Hofsjökul í engu skyggni og þungu færi, líklega að fara að snúa við til baka í þessum skrifuðu orðum. Bíllinn hjá honum (Nissan DC 38tommu) að virka vel, vantaði kannski betra grip (nýrri dekk).
Hann og Stebbi (Trooper 38tommu) stefndu á að vera í Setrinum í kvöld og ná síðan þjóveginum (Herjólfi) heim á morgun.
Björgólfur.
06.03.2004 at 15:50 #490956

You must be logged in to reply to this topic.