FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Fréttaþráður

by Ólafur Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Fréttaþráður

This topic contains 41 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 16 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.11.2008 at 19:33 #203203
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant

    Þá er hópur jeppa lagður af stað í Hólaskóg. Þetta er hópurinn sem fer með litlunefnd og ungliðanefnd. Ég kíkti við á Select rétt fyrir brottför og var góð stemning og mikil tilhlökkun í hópnum.

    Ég vona að þeir sem heyra í hópunum og einnig í öðrum hjópum um helgina skrifi fréttir af ferðum þeirra hér á þennan þráð.

    kv. Óli

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 41 total)
1 2 3 →
  • Author
    Replies
  • 14.11.2008 at 22:13 #632778
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Samúel Úlfr var að hringja í mig og er allur hópurinn kominn í Hólaskóg. Það gekk ljómandi vel og engin stórvægileg óhöpp, enda malbik alla leið. Það er lítill snjór á þessum slóðum, aðeins um 10cm.

    Fleiri fréttir á morgun.

    kv. Óli





    15.11.2008 at 14:10 #632780
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 775

    Eru engar fréttir? Var að reyna að hringja en allt sambandslaust. Einn voða forvitinn :-) og langar mikið að vera með.
    Kv Bjarki





    15.11.2008 at 14:16 #632782
    Profile photo of Halldór Freyr Sveinbjörnsson
    Halldór Freyr Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 62

    já manni vantar að heira einhverjar fréttir hvernig allt gengur hjá þeim.
    kveðjur úr hitanum í Florida;)





    15.11.2008 at 16:23 #632784
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Voru komnir a N64.22 og W19.34, taladi vid tha i gegnum ras 58. Gengur rolega, litid skyggni. Kv AB





    15.11.2008 at 16:32 #632786
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Heyrði í Samúel rétt í þessu. Litlunafndarhópurinn, alls 6 bílar héldu frá Hólaskógi í morgun í átt að Landmannahelli. Þar lentu menn í töluvert miklum festum og brasi, eintómt gaman. Engar bilanir eða slík vandræði.

    Hópurinn hefur nú leyst upp, sumir á leið í bæinn, einhverjir á leið á Laugarvatn en Samúel er einbíla á leið í Setrið til að hitta ungliðana. Þeir eru sambandslausir í bili, en hann ætlaði að láta mig vita af þeim þegar hann kemst í samband við þá.

    kv. Óli





    15.11.2008 at 18:28 #632788
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    er á ferð um Hungurfit og þar í kring. Hefur einhver heyrt í þeim á rás 58 eða í síma? Ég hef prófað í dag í síma en ekki haft erindi sem erfiði.

    vonandi fréttist eitthvað fljótt fyrir okkur kreppusófariddara.

    Kv. Magnús G.





    15.11.2008 at 19:04 #632790
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég kveikti rétt aðeins á Tetra stöðinni og heyrði að hópurinn sem var á leið í Setrið átti 20 km eftir og gekk vel.

    Benni





    15.11.2008 at 20:16 #632792
    Profile photo of Friðrik Hreinsson
    Friðrik Hreinsson
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 858

    ‘I þeim kl 20 10 í gegnum tetra þá áttu þeir ca 15 km eftir inn í setur.
    Það hafði farið vatn inn á sjálfskiptingu og var verið að brasa í því.
    Kv Friðrik.





    15.11.2008 at 21:22 #632794
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Talaði við Samúel núna rétt í þessu. Hann sagðist eiga ca. 3 tíma eftir inn í Setur, gekk rólega en vel. Hann keyrði á snjó og voru þungir skaflar á milli.

    Hann var búinn að vera í sambandi við ungliðahópinn og taldi að þeir væru rétt ókomnir í Setrið. Það hafið farið vatn inn á sjálfskiptingu á 35" barbíkrúser og var sá bíll skilinn eftir á leiðinni. Þetta var eina bilunin sam hann vissi af. Annars gott gengi og allir í góðum gír.

    Kv. Óli





    15.11.2008 at 23:51 #632796
    Profile photo of Helgi V. Viðarsson Bierin
    Helgi V. Viðarsson Bierin
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 155

    Ég heyrði í einum garpnum í kvöld og spurði hvar þeir væru staddir og svarið sem ég fékk var… ÖÖ í snjó!
    Mikið ævintýri fyrir nýgræðing eins og hann, pallhúsið datt reyndar af hjá honum rétt áður en komið var í setur um klukkan 22.

    Kv.
    Helgi B





    16.11.2008 at 01:09 #632798
    Profile photo of Halldór Freyr Sveinbjörnsson
    Halldór Freyr Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 62

    Djöfull er maður svektur yfir að hafa ekki náð að fara í þennan túr. en það verður bara tekið á því í næstu ferð;)

    Halldór R-1043





    16.11.2008 at 01:24 #632800
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    hvernig gerðist það





    16.11.2008 at 02:03 #632802
    Profile photo of Eyþór Guðnason
    Eyþór Guðnason
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 459

    Þetta er væntanlega cruser 97-99 árgerð sem er ekki búið að skifta um vatnskassa í . Það vill bila kælirörinn í þeim sem lísir sér svona.
    Ég myndi veðja á þetta gæti verið rangt.
    Ég átti 98 árg crúser ég skifti um vatnskassan áður en þetta bilaði það var blóðugt að skifta um kassa sem var í lagi að ég hélt, en þegar kassinn var tekinn úr þá brotnuðu kælirörinn úr kassanum við minstu hreifingu.
    Eftir það sá ég ekki eftir peningum sem kassinn kostaði.

    Kv Eyþór.

    P.S. þetta er bara ágiskunn sem mjög liklega er röng enda er ég í HEIMSGU hf.





    16.11.2008 at 12:27 #632804
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Var að tala Við Arnþór aftursætisbílstjóra.
    Samúel nokkur kom í Setur, einbíla, um kl 3 í nótt.
    Þeir eru nú lagðir af stað heim um Klakksleiðina og voru við Kisu rétt áðan.
    Ferðalagið gengur hægt, enda algjör snjóblinda.

    fréttaritari





    16.11.2008 at 19:02 #632806
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Var að heyra af ferðalöngunum. Náði ekki í þá sjálfur en Logi stjórnarmaður talaði við Arnþór sem er farþegi í einum bílnum. Þeir eru í fyrri hluta hópsins, Samúel er með bilaða barbíkrúserinn í togi og eiga þeir eftir uþb 10 km í Hólaskóg. Seinni hópurinn á meira eftir, uþb 20-25 km.

    Ég held áfram að reyna að ná í þá og set inn meiri fréttir þegar ég veit meira.

    Tetrastöðvaeigendur mega líka kalla í þá og setja inn fréttir eftir því sem í þá næst.

    kv. Óli





    16.11.2008 at 19:39 #632808
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Ég náði í Friðrik sem er með Arnþóri í bíl núna rétt í þessu. Það hefur teygst nokkuð á hópnum og þeir voru í 5 bíla hóp sem er næst síðasti hóprinn. Þeir voru komnir nokkuð framhjá Sultarfit og reiknaði hann mieð að síðasti hópurinn, sá sem var að draga bilaða krúserinn væru nálægt Sultarfiti.

    Það hafa ekki verið bilanir hjá þeim í dag og allt gengið vel. Lítill snjór núna en þeir keyrðu á slóðanum í litlum snjó. Eldsneytisbirgðir eru í lagi svo allir geta verið rólegir yfir ferðalöngunum.

    Ég reyni svo að ná í Samúel síðar í kvöld og set þá nánari fréttir hér inn ef ég næ í hann.

    Kv. Óli





    16.11.2008 at 21:13 #632810
    Profile photo of Helgi V. Viðarsson Bierin
    Helgi V. Viðarsson Bierin
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 155

    Ég var að heyra í einum unglingnum og voru einhverjir að leggja af stað frá Hólaskógi.





    16.11.2008 at 21:42 #632812
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Ég var að tala við Gylfa, hann er í síðasta hópnum ásamt Samúel og bilaða krúsernum. Þetta hefur verið skemmtileg ferð og allir skemmt sér vel í sköflum og festum, en snjór var þó í lágmarki. Að sögn Gylfa fór framdrif í einum 4Runner og framendinn á bílnum hans varð fyrir einhverju hnjaski þegar verið var að taka á því í gegn um klaka.

    Þeir voru að verða komnir að Hólaskógi og voru hinir hressustu.

    Ég reikna með að þetta verði síðasti fréttapistillinn frá mér í kvöld, enda allir í góðum málum. Gaman verður svo að heyra ferðasöguna og sjá myndir úr ferðinni

    Yfir og út.

    kv. Óli





    17.11.2008 at 02:46 #632814
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég kom í bæinn rétt um 01:00, Gylfi og félagar ásamt LC90 voru eitthvað örlítið á undan okkur.
    Ferðin gekk að ég held þokkalega vel í heildina þrátt fyrir smá tjón hér og þar. Allavegana virtust flestir nokk sáttir.
    Ég gat því miður ekki hringt neitt þar sem síminn minn ákvað að betra væri að verða eftir í snjónum frekar en að ferðast með mér… og eitthvað smávægilegt vesen var á tetra stöðinni hjá mér.
    .
    Mig langaði bara að þakka öllum fyrir góða ferð, afar ánægjulegt að brasa með ykkur. 😉
    .
    Eitt að lokum, ef einhver saknar flísbuxna úr Setrinu (gæti verið að það sé úr fyrri ferðum… þori ekki að segja til um það), líklegast af kvenmanni, þá getur hinn sami vitjað þeirra til mín.
    Samúel Úlfr: S: 618-2317 og þeir sem fengu að láni frá mér talstöðvar megið gjarnan hafa samband við mig á morgun og koma þeim til mín eftir kl 18:00 eða koma þeim á Gylfa í ungliðanefnd.
    .
    Kkv, Samúel Úlfr, hjálparsveit.
    E-1851





    17.11.2008 at 13:18 #632816
    Profile photo of Stefán Baldvinsson
    Stefán Baldvinsson
    Member
    • Umræður: 30
    • Svör: 490

    Sælir ungar ofl. fólk og til hamingu með tittölulega vel hepnaða ferð.
    En Samúel hvernig skildi það vera með kvennpeninginn sem heimsækis Setrið, skildu þær fara meira og minna berrassaðar heim. Saman ber naríurnar forðum og svo þessar núna.
    Maaður bara spir kreppa eðe ekki kreppa, kanski kuldakreppa hjá sumum.
    Kv. Úlfurinn. Sem botnar ekki orðið neitt í neinu með þetta kvennfól.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 41 total)
1 2 3 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.