FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Fréttablaðið-kálfur

by Magnús Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Fréttablaðið-kálfur

This topic contains 26 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra Guðbrandur Þorkell Guðbra 17 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.03.2008 at 08:42 #202050
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant

    Góðann daginn. Mér þykir það miður að sjá ekki umfjöllun um Umhverfisnefnd í kálfinum í dag eins og gert er með aðrar nefndir.

    Kv. Magnús G.

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 21 through 26 (of 26 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 08.03.2008 at 21:35 #617008
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    "Enginn getur gert svo öllum líki og ekki Guð í himnaríki" sagði einhver fyrir margt löngu. Líklega kerlingin fræga sem allt hefur sagt skrítið. En hvað um það. Ég ætla allavega að þakka fyrir þennan ágæta kálf, auðvitað hefði einhverjum þótt þurfa að hafa þetta og öðrum hitt eins og gengur, en þegar plássið er takmarkað, þá verður oft að velja og hafna og ég held að ritnefndinni hafi bara tekist það bærilega. Allavega er það efni sem komst framhjá niðurskurðarhnífnum góð kynning á góðum félagsskap og það er aðalatriðið.
    Gott mál. Hafið þökk fyrir sem lögðuð á ykkur vinnu og fyrirhöfn við að koma þessu á koppinn.





    08.03.2008 at 22:45 #617010
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Já ólsari, umhverfismál virðast afgangsmál sem auðvelt er að ýta til hliðar og ekki finnum við í umhverfisnefnd fyrir áhuga á málaflokkum hjá núverandi stjórn klúbbsins. Á fundi nefnda með stjórn klúbbsins voru umhverfisnefndarmenn gagnrýndir fyrir að aðhafast í umhverfismálum, mælingum á frosti og rakastigi í jörð, svo að segja megi um hvort að aurbleita væri á vegum.
    Gagnvart mörgum öðrum málum finnum engan skilning hjá stjórn.
    Þeir stjòrnarmenn sem farnir eru úr stjórn klúbbsins, voru með áherslu á umhverfismál og svo Óskar sem lánaði stjórn nafnið sitt, svo hægt vori að kalla núverandi stjórn starfhæfa, en í raun er hann ekki í stjórn og kemur ekki nálægt stjórnarstörfum.
    Klúbburin starfar því ekki samkvæmt lögum klúbbsins.
    Þetta er ófremdarástand, sem vart verður búið við.
    kveðja Dagur





    08.03.2008 at 23:16 #617012
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    Það eina sem ég vil gagnrýna er að kálfurinn var of mikið lesmál. Myndir segja meira en mörg orð yfir það sem við erum að sækjast eftir á fjöllum.





    08.03.2008 at 23:17 #617014
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Hvernig er það. Er bara ekkert nógu gott fyrir ykkur flatlendingana? Umfjöllun um klubbinn er fín og þeim sem sáu um efnistök til sóma. Þó að eitthvað lítilræði hafi farið úrskeiðis. Er einhver hér sem er tilbúinn til að taka ábyrgð á svona máli og standa við það án þess að hafa neitt fyrir það nema skítkastið. Ég yrði hissa ef að nokkur maður eða kona byði sig fram til nokkura verka fyrir klúbbinn nokkurntíman í framtíðinni. Þvílíkt skítkast, huh. Við norðanmenn köstum þó bara hrossaskít hver í annann en þetta er manni !!!!

    Einn hamingjusamur norðanmaður með hrossaskít í andlitinu.
    Kveðja:
    Erlingur Harðar

    PS: Og Halli Gulli… ekkert svona!!! :-)





    09.03.2008 at 18:38 #617016
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þó ég vilji helst ekki taka þátt í hnútukasti hér á vefnum finnst mér skylt að taka fram að ég hef ekki fundið fyrir því að umhverfisnefnd fái ekki það bakkupp frá stjórn sem við þurfum eða að við séum eitthvað olbogabarn. Eins og fram kemur hér að ofan á ég sem formaður nefndarinnar sök á því að ekki er grein þarna um umhverfisnefndina. Grein sem ekki berst birtist ekki, svo einfalt er nú það.
    Kv – Skúli





    09.03.2008 at 19:04 #617018
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er marg búin að koma skýring á því hversvegna pistill um umhverfismál kom ekki, sbr. innslag Skúla hér fyrir ofan. Þótt maður taki þá skýringu góða og gilda, þýðir það ekki að maður hafi ekki áhuga á umhverfismálum. – Mér finnst hinsvegar ástæða til að þakka því góða fólki sem lagði mikið á sig í sjálfboðavinnu til að koma þessu fylgiriti á koppinn, þau unnu gott verk og eiga heiður skilinn fyrir. Við hljótum að geta verið sammála um það. Ég sé allavega ekki ástæðu til að biðjast afsökunar á því að vera þeim þakklátur.
    kv.





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 21 through 26 (of 26 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.