Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Fréttablaðið
This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833 14 years ago.
-
CreatorTopic
-
08.03.2012 at 10:48 #222847
Flott kynning í fréttablaðinu í dag, gott mál að sýna hvað klúbburinn er að gera og hvað hann er að standa fyrir.
Kv Bjarki -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
08.03.2012 at 13:00 #751547
Sammála síðasta ræðumanni, flott útlit sem og fínar greinar í blaðinu í dag.
Logi
R148
08.03.2012 at 14:50 #751549Mér finnst þetta ágætt blað, skýrt letur, fínar myndir og ágætar greinar, bendi sérstaklega á frábæra grein Ellu um Hvítbókina.
Ég verð þó að vera mjög ósáttur með að úreltri grein norðanmanna "Baráttan fyrir ferðafrelsi í Vatnajökulsþjoðgarði" hafi verið hleypt óbreyttri í þetta blað, þegar vitað er að komin er niðurstaða frá stjórn þjóðgarðsins. Þarna hefði verið auðvelt að vanda betur til verka, enda tilvalið að hamra á því á meðan úrskurðurinn er svona nýr. Ekki er við norðanmennina að sakast í þessu efni, ég veit að þeir hefðu verið tilbúnir með breytingar án mikils fyrirvara, hefðu þeir verið beðnir um það.
Annars ágætt blað að mínu mati.
kv. Óli
08.03.2012 at 22:19 #751551Sælir
Er þetta ekki í Monitor sem kemur út með Morgunblaðinu ?
Fann ekkert um 4×4 í Fréttablaðinu.
Kv
Jói Hauks
08.03.2012 at 22:54 #751553Finnur heitir hann víst, og er dreift um allt hér á þessu landshorni a.m.k.
kv.
ÞÞ
09.03.2012 at 15:15 #751555Flott og vel unnið. Þessi viðauki sýnir fólki vonandi málið í réttu ljósi og vel er gerð grein fyrir því góða starfi sem unnið er í sjálfboðavinnu.
Kv, Stebbi Þ.
10.03.2012 at 10:30 #751557Nei Jói, þetta er víst bara ætlað SV horni landsinns. Þetta er ekki sennt til þeirra sem ætlað er að skrifa í "Umræður deilda" .
Nokkurnvegin hið sama á við um Setrið, það er eingöngu ætlað "móðurfélags" svæði, nema þeim íhaldsforkólfum, sem enn lesa trúboð Davíðs, og eru áskrifendur mogga.
Ég veit satt að segja ekki hvort mér er ætlað að setja þessar línur hér í "Virkar umræður" það sem ég tilheiri enn Eyjafjarðarhreppi, og ætti þessvegna sennilega að setja þetta pár í "Umræður deilda"
Kv
10.03.2012 at 11:41 #751559Þetta kom með fréttablaðinu, svo ef menn hafa fengið fréttablaðið á annað borð þá er þetta í því. En ef blaðið hefur ekki verið borið út til ykkar þá er það nú ekki f4x4 um að kenna??????????
Þetta blað var dreift um í 88000 eintökum, þannig að þetta er ekkert ætlað sv horni frekar en öðrum.
Kv Bjarki
10.03.2012 at 12:25 #751561
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Blaðið er viðhengi á pdf formi með [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1726:setrie-blae-um-jeppamennsku-og-fereafrelsi&catid=97:stjorn&Itemid=377:1zi6pxpn]frétt[/url:1zi6pxpn] hér á vefnum.
Blaðið ætti að vera aðgengilegt öllum með internet-aðgan [url=http://f4x4.is/attachments/1726_4x4blad_mars2012.pdf:1zi6pxpn]hér![/url:1zi6pxpn]ÓE
10.03.2012 at 23:48 #751563Flott útgáfa. Vel skrifaðar greinar og læsilegar. Klúbbnum og starfi hans góður vitnisburður.
//BP
15.03.2012 at 17:36 #751565Rétt er það Bergur, þetta er flott blað, og einmitt þessvegna hefði dreifing þess þurft að vera um allt land, en ekki bara á SV horninu (hef ekki enn séð blaðið, en lesið pdf skjalið)
En kannski er ekki þörf á að þessi góði vitnisburður, sem blaðið er ferðafélaginu 4X4, berist víðar en á 101 svæðinu?
15.03.2012 at 17:43 #751567Blaðið var sent um allt land, en ekki dreift í hvert hús. Alllar deildir fengu blöð til að dreifa eftir bestu getu. Eins fá allir áskrifendur Moggans um allt land blaðið. Það er von okkar að blaðið fari á sem flesta staði þar sem hægt er að nálgast það.
Kveðja,
Hafliði
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
