FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Framboð á aðalfundi 4 maí 2008

by Ferðaklúbburinn 4x4

Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Framboð á aðalfundi 4 maí 2008

This topic contains 72 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Kjartansson Einar Kjartansson 17 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.04.2008 at 17:02 #202323
    Profile photo of Ferðaklúbburinn 4x4
    Ferðaklúbburinn 4×4
    Participant

    Formaður:
    Sveinbjörn Halldórsson R-43
    Til Meðstjórnar:
    Logi Ragnarsson R-2805,
    Guðmundur Sigurðsson R-151,
    Ágúst Birgirsson R-2707 og
    Birgir Már Georgsson R-20
    Til vara:
    Rikarður Sigmundsson R-3642
    Kristján Gunnarsson R-1667
    Framboð í Hjálparsveit
    Alfreð Birgisson (Spotti) Ö-2102
    Samúel Þór Guðjónss E-1851
    Sólmundur Rögnvaldsson X-771
    Litlanefnd framboð
    Guðmundur G Kristinsson R-3846
    Eitt framboð komið í Umhverfisnefnd
    Þórður Ingi K-725
    Vefnefnd Framboð
    Bergur Pálsson R-3080
    Fjarskiptanefnd.
    Hlynur Snæland R-2208
    Sigmundur Sæmundsson R-3006
    Jóhannes Jónsson R-2729
    Framboð í skálanefnd.
    Frosti Gylfason R-3580
    Ægir Sævarsson R-1001
    Bergur Pálsson R-3080
    Axel Sig. R-3099
    Kári Þórisson R-3398
    Ritnefnd framboð:
    Tryggvi Már Gunnarsson R-4007

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 61 through 72 (of 72 total)
← 1 … 3 4
  • Author
    Replies
  • 05.05.2008 at 10:53 #620694
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Það skiptir bara engu máli hvað hverjum finnst um hvort spjallið eigi að vera opið eða lokað. Aðalfundur er æðstavaldið og þar var ákveðið að loka því nema fyrir félagsmönnum og það hlýtur að standa, svo Vefnefnd byrja nú…..
    Kveðja Lella





    05.05.2008 at 10:58 #620696
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Lella það er hverju orði sannara það sem þú sagðir um sjálfa þig í kynningu til vefnefndarkjörs.

    Kv Klakinn





    05.05.2008 at 11:21 #620698
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Ég hef alldrei reynt að halda því fram að ég sé eitthvað annað en ég er.
    Kveðja Lella FREKJA





    05.05.2008 at 12:27 #620700
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Ég er á því að við þurfum að prufa þetta þ.e.a.s. að hafa spjallið eingöngu fyrir fullgilda félagsmenn. Aðal ástæðan fyrir þessu er að undanfarið hafa allir orðið vitni að þeim leiðindum og orðaskaki sem hefur farið fram á sjallinu. Þetta hefur borist um víðan völl og efa ég ekki að hlakki í sumum að vita að jeppamenn séu ekki samstíga. Við eigum fullt af óvinum…þá á ég við fólk sem er á móti okkar ferðamáta og tækjum. Ef spjallið okkar verður okkur til sóma þá er ekkert því til fyrirstöðu að koma á næsta aðalfund breyta þessu til baka. Stjórn getur boðað líka til aukaaðalfundar ef hún sæji ástæðu til að breyta þessu. En aðalfundur er æðsta vald og þar var þetta samþykkt með töluverðum meirihluta.

    kv,

    Halldór





    05.05.2008 at 13:03 #620702
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er spurning hvort Halli Gulli eigi afrit af textanum eins og hann var lagður fyrir fundinn og geti sett inn á vefinn til að taka af allan vafa um innihaldið?





    05.05.2008 at 14:09 #620704
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég er bara að velta því fyrir mér hvernig þetta verður, því þetta verður samkvæmt samþykkt aðalfundar.
    Til að ófélagsbundinn aðili geti séð hvað fer fram á spjallþræði 4X4 verður hann fyrst að borga 6.000+kr. Hann getur ekki metið það hvort hann hafi áhuga á að ganga í klúbbinn fyrr en búið er að strauja kortið !.
    Þetta eru bara vangaveltur, ef það er einhver misskilningur í þessu þá væri gott að fá að sjá umrædda tillögu sem var samþykkt. Það var samþykkt fyrir einhverju og vefnefnd hefur unnið í því í vetur, að allir aðilar sem skrifa á spjallið geri það undir nafni, þannig að engin hefur getað drullað yfir neinn nafnlaust. Það fannst mér hin besta lausn frá því sem áður var.
    kv. vals.





    05.05.2008 at 15:43 #620706
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Það sem mér virðist að fólk hafi áhyggjur af….. er hvort fólk kynnist ekki klúbbnum eða geti ekki vitað hvað það er að fara út í, ef það er að hugsa um að ganga í klúbbinn, nema geta farið inn á spjallið. Ég held að undanfarið nánast ár hafi ekki verið spennandi kostur að ganga í blessaðan klúbbinn okkar ef menn hafa metið það út frá spjallþráðum. Það að fólk viti ekki hvað það er að fara út í fyrr en það straujar kortið eru náttúrulega ýkjur. Það er fullt af efni á vefnum þ.á.m. lög félagsins sem segja til um tilgang hans.
    Hvernig fór klúbburinn að hér áður fyrr þegar spjallið eða heimasíðan var ekki til? Hvernig tókst klúbbnum eiginlega að vaxa og dafna hér í denn….????

    kv,
    Halldor





    05.05.2008 at 16:09 #620708
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Óx klubburunn eitthvað og dafnaði að ráði fyrr en með tilkomu vefsins og spjallsins ?

    Ég vissi allavega ekki að hann væri til fyrr en ég kynntist honum á netinu – og þannig veit ég að er með fjölmarga.

    Nýja vefnefndin verður aldeilis að taka sig á í að fylla vefinn af áhugaverðu efni þegar að spjallinu verður lokað – allavega ef að hann á að draga fólk að klúbbnum…

    En svo er ekkert víst að menn vilji endilega fleiri félagsmenn – maður hefur heyrt raddir sumra "eldri" félagsmanna sem vilja bara fækka í klúbbnum… Fá svona gömlu góðu dagana aftur þegar það voru 500 í klúbbnum og öll dýrin í skóginum voru vinir…. eða þar um bil

    Benni





    05.05.2008 at 16:22 #620710
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Benni. Ég held að við getum verið sammála að hann dafnaði. Að sjálfsögðu óx hann líka en kannski ekki eins hratt og hefur verið. En hvað ætli séu margir sem hafa gengið í klúbbinn og er skítsama út á hvað hann gengur og eru jafnvel bara að nota afslætti og kjör sem félagsmaður hefur rétt á?
    Miðað við aðsókn á fundi, ferðir og annað sem klúbburinn stendur fyrir þá er ótrúlega lág prósenta af virku fólki. Það að geta ekki mannað nefndir í þessum "stóra klúbbi" er sönnun þess.

    kv,

    Halldor





    05.05.2008 at 16:31 #620712
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    var ég kosinn til eins árs eða tveggja?





    05.05.2008 at 16:35 #620714
    Profile photo of Ólafur Eiríksson
    Ólafur Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 540

    Að sjálfsögðu ræður aðalfundur.

    Það breytir samt ekki því að að vefsíðan er helsta hryggjarstykkið í nýliðun í félaginu. Mér liggur við að halda að án lifandi vefsíðu sé félagið mjög illa statt.

    Vefsíður lifa á því að á þeim sé nýtt efni. Gagnvirkar vefsíður eru vinsælastar í dag. Utan frá séð verður þessi vefsíða enn eitt líkið á netinu verði spjallinu lokað fyrir öðrum en félagsmönnum. Þetta er einfalt atriði sem varhugavert er að hunsa fyrir klúbbinn. Þ.e ef markmiðið er að hann vaxi og dafni og fái inn nýja félaga.

    Bloggsprengjan ætti að vera nærtækur vitnisburður um hvert hlutirnir eru að þróast.

    Mér virðist sem það sé viss viðkvæmni í gangi í klúbbnum, að fólki þyki óþægilegt að óhreinn þvottur sé á vefsíðunni. Að það setji vondan stimpil á klúbbinn og sé vont fyrir ímyndina osfrv. Það má vera að hluta til rétt, en enn verra er að loka spjallið og starfið inni í skáp á sama tíma og upplýsingabyltingin ríður húsum, og krafan er gagnsæi.

    Er þetta ekki samkeppnismarkaður?





    05.05.2008 at 16:40 #620716
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þið Heiðar og Benedikt voruð kosnir í tækninefnd til 2 ára. Gísli og Magnús voru kosnir til 2 ára á aðalfundi 2007.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 61 through 72 (of 72 total)
← 1 … 3 4

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.