Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Framboð á aðalfundi 4 maí 2008
This topic contains 72 replies, has 1 voice, and was last updated by Einar Kjartansson 17 years, 5 months ago.
-
CreatorTopic
-
18.04.2008 at 17:02 #202323
Formaður:
Sveinbjörn Halldórsson R-43
Til Meðstjórnar:
Logi Ragnarsson R-2805,
Guðmundur Sigurðsson R-151,
Ágúst Birgirsson R-2707 og
Birgir Már Georgsson R-20
Til vara:
Rikarður Sigmundsson R-3642
Kristján Gunnarsson R-1667
Framboð í Hjálparsveit
Alfreð Birgisson (Spotti) Ö-2102
Samúel Þór Guðjónss E-1851
Sólmundur Rögnvaldsson X-771
Litlanefnd framboð
Guðmundur G Kristinsson R-3846
Eitt framboð komið í Umhverfisnefnd
Þórður Ingi K-725
Vefnefnd Framboð
Bergur Pálsson R-3080
Fjarskiptanefnd.
Hlynur Snæland R-2208
Sigmundur Sæmundsson R-3006
Jóhannes Jónsson R-2729
Framboð í skálanefnd.
Frosti Gylfason R-3580
Ægir Sævarsson R-1001
Bergur Pálsson R-3080
Axel Sig. R-3099
Kári Þórisson R-3398
Ritnefnd framboð:
Tryggvi Már Gunnarsson R-4007 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.05.2008 at 19:09 #620654
‘i Litlunefnd sem voru kostnir auk mín og Guðmundar.
Magnús Birgirsson (Maggi willys)Kristján Kristjánsson,
Og Ólafur Magnússon.
Með Kv
Klakinn
04.05.2008 at 19:13 #620656
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Takk fyrir ábendinguna.
ÓE
04.05.2008 at 20:05 #620658hver er sveinbjörn? var ekki hægt að hafa stjórnina öðrvísi saman setta
þetta eru bara menn úr reykjavíkur hreppi,
hélt að þetta væri stjórn fyrir allt landið,það þarf nú að breyta reglunum þannig að hver landsbyggðardeild hafi mann í stjórn. alla vega finnst mér það!!!kv. Heiðar U-119
04.05.2008 at 20:26 #620660Fimmti maður í tækninefnd er Benedikt Magnússan og fullt nafn á 4 manni er Rúnar Sigurjónsson
kv Gísli
04.05.2008 at 20:33 #620662
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Takk fyrir ábendinguna.
ÓE
04.05.2008 at 20:51 #620664Hvar eru þeir sem buðu sig fram úr landsbyggðar hreppi???
04.05.2008 at 20:57 #620666Hreiðar átti náttúrulega að vera Heiðar
04.05.2008 at 21:11 #620668Er það rétt sem maður heyrir að samþykkt hafi verið að loka spjallinu !.
–
Margt hefur gengið á á spjallinu en það er nú einu sinni þannig að spjallið er klúbburinn, menn/konur ganga í klúbbinn, þar er mikið af fróðleik, skipulag á ferðum, umræður um hin ýmsu málefni er varðar klúbbinn.
Ég batt vonir við að nýjr stjónarliðar gætu veitt þessum vanþroskaða líð sem hefur riði truntum sínum hér á vefnum tiltal, þannig að spjallið yrði vettvangur heilbrygðra umræðu um sportið sem við elskum svo mikið.
Að loka spjallinum mundi setja klúbbinn aftur um mörg ár, við áhugamenn um ferðamennsku á jeppum mundum finna okkur annan vetvang til samskipta, því vefur án spjalls væri einskins virði. Bara einstefna frá stjórnarliðum til líðsins.
Þrátt fyrir að vanþroska menn hafi verið að gera útaf við spjallið þá er lausnin ekki að loka, heldur er það verkefni að ala þennan líð upp. Ég gekk í klúbbinn vegna spjallsins, ef ekki hefði verið spjall þá ætti ég ekki í dag, frábæra félaga sem ég hef kynnst í gegnum klúbbinn.
Því tel ég að nýjir ráðamenn ættu að huga aðeins að þessu, því ég er sannfærður um að lokun á spjallinu verður upphafið að endalokum Ferðaklúbbs 4X4.
.
kv. vals.
04.05.2008 at 21:12 #620670kannski var engin þaðan veit ekki ég er jafnvel að misskilja þetta fyrirkomulag aðeins
kv Heiðar U-119
04.05.2008 at 21:25 #620672ekki á að lokka spjalinu heldu þartu að vera innskráður til að geta tekkið þátt í umræðuni og skoða spjalið
kv. Ægir
04.05.2008 at 22:07 #620674Eru ekki langflestir af þessum vanþroska einstaklingum borgandi meðlimir í klúbbnum? Ef svo er þá verður ekkert lagað með því að loka á utanfélagsmenn sem gegnumsneytt hafa ekki verið til stórfeldra vandræða í gegnum tíðina.
04.05.2008 at 22:45 #620676Hvor varamaðurinn situr í eitt ár?????
Eyþór sagði af sér hann var kosin sem varamaður 2007 til tveggja ára en sagði af sér….
Gott væri að vita hvor situr í eitt ár.
kv
Agnes Karen Sig
04.05.2008 at 22:52 #620678Ég er sammála Val, sem mest af spjallinu ætti að vera opið. Ég hef trú á því að þau leiðindi sem hafa hrjáð spjallið muni ganga yfir, e.t.v. með hjálp eitthverskonar ritstjórnar. Með viðeigandi ritstjórn (moderation) er hægt að minnka suðið, þannig að fleiri nenni að lesa þræðina. Vefsíðan, þar með talið spjallið, er besta tækið sem við höfum til þess að ná til nýrra félaga.
-Einar
04.05.2008 at 22:58 #620680held samt að sumir ættu að byrja á að taka til hjá sér sjálfum áður en þeir gagnrína aðra og nota orð eins og"vanþroska menn" svona framkoma er til skammar og er ekki til að bæta eitt né neitt.
04.05.2008 at 23:21 #620682verður að vera opið afram annars sannast
það sem eg og aðrir hafa haldið fram,
það er að þetta se bara klubbur fyrir
örfaa gæðinga i reykjavik og vini þeirra.
Semsagt missir algjörlega markskveðja með von um að nyja stjornin taki sönsum
Helgi
04.05.2008 at 23:46 #620684Ég verð að segja það að mér finnst þetta vera svartur dagur í sögu klúbbsins. Það að það skuli ekki ein einasta kona vera í neinni nefnd eða stjórn.
Ég ætla rétt að vona að þetta sé ekki byrjun á aftur hvarfi til fortíðar þegar þetta var KARLREMBUKLÚBBUR.
Kveðja Lella
05.05.2008 at 00:19 #620686Lella mín, ertu fyrst að fatta það núna að þetta algjör KARLREMBUKLÚBBUR. Engar kerlingar takk.
Þær eiga bara vera heima og sauma og vera sætar.
Ég hélt reyndar á tímabili að þetta yrði svona Reykjavíkurkarlrembuklúbbur, þegar Einar EIK reyndi að koma í veg fyrir að við landsbyggðarpakkið fengum að greiða atkvæði.Kv. Heiðar
Form Suðurnesjadeildar og nýjasta fórnarlamb Barböru.
05.05.2008 at 01:11 #620688Fyrir alla muni halda spjallinu sem mest opnu og sem minnst inngrip. Ritskoðun er stórlega ofmetin og hún er líklega jafnversta stjórntæki sem til er. Fátt veldur meiri óánægju en einmitt hún. Hún getur og hefur, ein og sér, orðið uppspretta endalausra deilna og úflúðar – um það eru víða nærtæk dæmi.
Mér skilst að íslendingar láti almennt fremur illa að stjórn og af íslendingum er jeppafólk varla sú grúppa sem lætur best að stjórn. Þegar haft er í huga hið fræga nöldurgen okkar þá blasir við að spjall af þessu tagi verður alltaf öðru hvoru afrennsli fyrir nöldrið sem þarf að brjótast út. Að því leyti er þetta gott og blessað og óþarfi að mála skrattann á vegginn yfir því. Smá umburðarlyndi sakar ekki.
Það má heldur ekki gleyma því að ýmis gagnrýni og ábendingar sem hér koma fram er sjálfsagður og eðlilegur þáttur í frjálsum félagasamtökum. Því er það mjög gott og gagnlegt ef yfirvöld í klúbbnum sjá sér fært að svara efnislegum athugasemdum hér eftir mætti. Það gæti skilað sér til lengri tíma í ánægjulegra starfi.
Þáttakendur mega síðan gjarnan tóna niður persónugeringu og ræða efnisatriði.
Óska nýju stjórnar- og nefndarfólki farsældar og þakka þeim sem nú láta af störfum.
Kv.
Óli.
05.05.2008 at 07:12 #620690Ég fyrir mitt leiti tek undir að hluti af spjallinu rétt eins og nú verði hafður opin öllum,þó eins og verið hefur hluti lokaður öðrum en félagsmönnum,það verður erfiðara að ná til nýliða og koma upplýsingum nema í auglýsingarformi á forsíðu,en eins og ekki hefur verið sett fram hér,þá hefur Stjórn ákveðið að næsti almenni félagsfundur fari í að ræða stefnu og framtíð klúbbsins.
Og held ég að það væri ráð að koma þessum og öðrum skoðunum á framfæri við stjórn eða á fundinum.
Ég fyrir mitt leiti er fylgjandi því að spjallið verði opið eins og verið hefur,eða hluti þess þannig að byrjendur og utanfélagsmenn eigi auðveldari aðgang að klúbbnum,en ég geri um leið ráð fyrir því að lokun sú sem sammþykkt var,hafi ekki verið sett fram í hugsunarleysi,heldur að vel hugsuðu máli sem eigi eftir að fara aftur og aftur yfir áður en endanlegt form á spjallinu sé dagsins ljós.Kv Klakinn
05.05.2008 at 09:46 #620692Heiðar, velkominn í tækninefnd! Ég er sannfærður um að með ykkur Rúnar þar innanborðs, þá verður breytingafrelsi bílskúrskallanna varið af krafti. Hvað menn gera annað í bílskúrunum varðar mig ekkert um 😉
-Einar
p.s.
Þessi óskiljanlega lagabreyting sem fór inn á aðalfundi 2007, sýnir einfaldlega mikilvægi þess að vandað sé til verka þegar verið er að krukka í lög félagsins.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
