FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ford pick up bílar árg. 1975 – 1990

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Ford pick up bílar árg. 1975 – 1990

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samson B Jónasson Samson B Jónasson 20 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.02.2005 at 00:57 #195502
    Profile photo of
    Anonymous

    Já, ég spyr bara eigið þið svona bíla? hef ekki séð mikla umræðu um þessa bíla hérna en er að spá í að fá mér einn hugsanlega sjálfur…

    Þið sem eigið svona og aðrir sem þekkja til endilega koma með smá lýsingar á eyðslu, aukahlutum, vél og fl. og hvort þið séuð sáttir…

    takkkk

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 15.02.2005 at 19:55 #516976
    Profile photo of Þrándur Arnþórsson
    Þrándur Arnþórsson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 209

    Ég hef átt F-150 1987 í rúm 12 ár. Það er fyrst núna sem ég hef ákveðið að endurnýja og það er nú ekki stórar viðgerðir sem þyrfti (nema að boddíið er að ryðga í sundur). Í þessum bílum eru sterk drif og vél sem endist vel. Í mínum er Dana 44 klofhásing að framan og Ford 8,8 að aftan. Auðvelt er að fá hlutföll og læsingar í ameríska Ford jeppa og raunar tiltölulega lítið sem þarf að gera til að koma 38 tommu dekkjum undir svona bíl. 302 vélin með beinni innspýtingu hefur líka komið þokkalega út í eyðslu ca. 20 lítrar fyrir þetta stóran bíl.

    Athyglisvert er hversu menn eru feimnir við að skoða ameríska jeppa yfirhöfuð. Tók t.d. eftir því að konurnar sem mættu í Ísland í bítið nefndu engan amerískan jeppa þegar þær nefndu helstu gerðir sem í notkun eru! Margir sem virðast halda að það séu bara japanir sem kunna að búa til bíla. Minni t.d. á að enn eru nokkrir Bronco jeppar um þrítugt í fullri notkun.

    Almennt er auðveldt að fá varahluti í ameríska bíla, t.d. hjá Benna. Að mínu mati hefur umboðið reyndar verið frekar slakt, en vonandi stendur það til bóta…

    Það er eitthvað af myndum á vefnum mínum:
    [url=4x4offroads.com]4x4OffRoads.com[/url]

    Þrándur





    15.02.2005 at 21:18 #516978
    Profile photo of Samson B Jónasson
    Samson B Jónasson
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 90

    Ég á einmitt einn ´87 öllu Sama dótinu í og bíllin hjá "trandur". nema minn er á 36", þegar é setti þau undir þá skar ég úr að framan en ekki að aftan smellti klauf eitt vörubílaplastbretti og smellti að framan. og að aftan setti ég aðeins minni svona plastbretti sem eru notuð á benz flokkabíla og fleiri mini vörubíla, án þess að skera nokkuð úr.

    Ég vil taka það fram að þetta ÁTTI að taka sem minstan tíma og það tókst nokkuð vel bara.

    En núna er stefnt á að klippa úr að aftan og hækka um 2"-3" á boddy og smella undir 39,5" Irok

    Ég tel þetta vera besta jeppa sem ég hef átt. enda er þetta eini jeppin sem ég hef átt. Eins og ég keyri hann (Ef að bensín pedallinn er ekki klesstur við gólfið þá er hann aldrei langt frá því) Þá er hann að eiða 24 – 25l

    En ég var að spá hvort þú getir sagt mér trandur hvað þú gerðir þegar þú eða sá sem breytti honum .

    kveðja
    samuel





    16.02.2005 at 21:31 #516980
    Profile photo of Þrándur Arnþórsson
    Þrándur Arnþórsson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 209

    Sælir

    Ég hækkaði bílinn sjálfur um 2 tommur á boddíi. Það er tiltölulega einfalt, 12 boltar sem halda boddíi á grind eru teknir úr, lengri boltar fengnir og plastkubbar á milli. Lengja þarf í sjálfskiptstönginni og skera úr hlíf utanum viftuspaða. Þurfti að klippa aðeins úr og setja kanta (Buschwacker). Síðar komu hlutföll og læsingar sem Jón Árni sem var með Jeppasport setti í og loks loftpúðafjöðrun að aftan sem er eiginlega alveg nauðsynleg eftirá að hyggja. Irok er ábyggilega skemmtileg stærð af dekkjum fyrir svona bíl.

    Þrándur





    16.02.2005 at 23:21 #516982
    Profile photo of Samson B Jónasson
    Samson B Jónasson
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 90

    Þakka nytsamlegt svar, bíllin minn er beinskiptur þannig að líklega slepp ég við breytingar þar. Þannig að þetta þarf ekki að vera svo mikið mál ef maður gefur sér tíma í það án þess að vera að stressa sig með að koma honum út.

    Ég er mikið búin að hugsa um loftpúða og langar mikið, en veit ekki hvort þetta sé raunhæf breyting fyrir mig þar sem að fyrst um sinn vil ég halda bílnum sem ódýrustum og leggja ekki ofmikla vinnu í hann ef ég skyldi skemman þegar ég stýg mín fyrstu skref í jeppamenskunni.

    Mistök eru mannleg
    Byrjenda mistök eru staðreynd :)

    Kveðja
    samuel





    18.02.2005 at 01:01 #516984
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    takk fyrir svörin, en hvað segiði eru þetta ágætis byrjenda bílar? (ég veit að hilux yrði kannski betri kostur en mig langar lítið í þannig bíla)

    og er eitthvað sérstaklega flókið að gera við þetta miðað við hvað annað..? og eru þeir ekki nokkuð góðir í snjó?

    penguin





    19.02.2005 at 18:00 #516986
    Profile photo of Samson B Jónasson
    Samson B Jónasson
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 90

    Þetta er minn fyrsti jeppi og ég er mjög ánægður með hann. hann er á 36" og ca 2,3tonn á fjöllum kannski soldið þungur en maður hefur mjög gott af því þegar maður er að byrja. Tek öllum festum fagnandi þótt mér líki illa við spottan. svo þarf svo lítið að breyta þeym til að koma dekkjum undir þá.

    Mjög gott er að komast að öllu í húddinu á þeim og auðvelt að redda varahlutum í þá, annars er þetta bara spurning hvernig bíl þig langar í.

    gangi þér vel

    kveðja
    samuel





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.