This topic contains 2 replies, has 3 voices, and was last updated by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833 10 years, 5 months ago.
-
Topic
-
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ford F350 Crew 4×4 SRW pallbíl, en honum var stolið úr geymsluhúsnæði í Súðarvogi í Reykjavík. Pallhýsið var ofan á bílnum og var því einnig stolið. Pallbíllinn hafði verið í geymslu undanfarna mánuði og því er ekki vitað með vissu hvenær honum var stolið, en þjófnaðurinn uppgötvaðist í gær.
Skráningarnúmer ökutækisins, AT-837, voru lögð inn í vetur, en einnig hafði eigandinn fjarlægt rafgeymirinn úr bílnum. Pallbíllinn var læstur þegar honum var stolið.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ef einhver sér til pallbílsins í umferðinni er hinn sami vinsamlegast beðinn um að hringja tafarlaust í 112 svo hægt sé bregðast við strax.
Ath. Bíllinn er í eigu félagsmanns klúbbsisn. Endilega svipist um eftir bílnum og setjið inn á fésbókina.
kv.
Sveinbjörn
You must be logged in to reply to this topic.